miðvikudagur, 23. maí 2007

Útskriftaferð hjá Elvari


Á mánudaginn uðru þáttaskil í lífi Elvars Mána þegar hann fór í útskriftarferð með skólahópnum sínum. Farið var á mánudagsmorguninn með rútu í Vatnaskóg. Þar var ýmislegt aðhafs yfir daginn og endaði svo dagurinn með kvöldvöku. Þetta var mikið ævintýri fyrir þessa litlu gutta að fara frá foreldrum sínum og gista einhversstaðar annars staðar en heima hjá sér í faðmi foreldra. Elvar var svo ekkert að breyta út af sínum venjulegu venjum og vaknaði klukkan sjö morguninn eftir. Svo var farið aftur í rútuna og komið heim í leiksskólann um klukkan 12 daginn eftir. Mikið húllum hæ var þegar þeir komu aftur. Búið var að skreyta allt í blöðrum og búið að setja bannera út um allt sem boðuð stóru gaurana velkomna heim úr ferðalaginu. flest allir foreldrar voru komnir til að taka á móri sínum guttum. Allavega þetta var mikið ævintýri. Eins fór Ása í Hvaleyrarskóla í gær að skoða og kynna sér skólann sem stóri strákurinn okkar fer í, í haust. Þetta er víst rosalega fínn skóli og verður gaman fyrir gutta að fara í hann, en það fer alveg að koma að því. Engar myndir eru ennþá komnar úr útskriftarferðinni en ég set inn myndir um leið og ég er búinn að finna þær hjá leiksskólanum

kv Einar Eir

Engin ummæli: