miðvikudagur, 25. apríl 2007

Akureyrarferð

Við lögðum land undir fætur síðastliðinn miðvikudag 18.april og skelltum okkur til höfuðborgar norðursins. Ferðin gekk mjög vel þar sem við keyrðum um kvöldin og börnin sváfu þetta af sér, svona að mestu. Við gerðum mest lítið nema bara að njóta þess að vera í faðmi fjölskyldunnar. Á laugardaginn fóru við á snjóþotu og stiga sleða. Við fórum upp í Hlíðarfjall, sem Elvar kallaði að vísu alltaf "Bláfjallafjall", en við fórum þangað til að leita að einhverjum brekkum til að renna sér í. Það var alveg troðið í fjallinu þar sem Andresar andarleikarnir stóðu sem hæst, þannig að við eiginlega hrökkluðumst úr fjallinu. Að lokum enduðum við í brekku sem ég var vanur að renna mér í þegar ég var lítill snáði á Akureyri, og ber hún nafnið "Jólasveinabrekkan" og skemmtu börnin sér konunglega við þessa iðju. Ég og afi voru að dunda í Charade-num að gera við það litla sem þarf að gera við hann, en hann fer einmitt að verða klár í að komast á götuna og hingað suður. Sem er mikið tilhlökkunnarefni í fjölskyldunni. Þetta var rosalega gott að komast norður í ferska og hreina sveitaloftið, þrátt fyrir að svifryksmengunin sé lagnt yfir heilsuverndarmörkum. Þá er allavega gott fyrir sálina að komast norður í rólegheit og stresslaust umhverfi, hjá afa og ömmu. Við viljum þakka mömmu og Úlla fyrir allt en sérstaklega viljum við þakka ömmu og afa í Stórholtinu fyrir okkur, þau eru eins og venjulega "sannir gestgjafar" Takk enn og aftur Einar Ása Elvar og Ester Una

Hér eru myndir frá norður ferðinni, njótið vel.

http://picasaweb.google.com/einareir/170407220407Akureyrarfer02/photo#s5057373020091986482

sunnudagur, 15. apríl 2007

Afmælisveislan hans Elvars

Veislan hans Elvars var haldin í gær laugardag. Klukkan 13:00 byrjaði gaura afmælið, þar sem strákarnir sem eru með honum í skólahópnum í leikskólanum komu ásamt Benidikt og Óliver vinum í gamla leiksskólanum. Það afmæli stóð til klukkan 15:00. Mikið var um að vera eins og venja er þegar níu stykki koma saman. Einnig komu Erla, Villi og Gabríel. Klukkan 15:30 byrjaði veisla númer tvö. Þá komu allar ömmunar og nánast allir afarnir. Þar voru saman komnar ömmur frá Garðabæ, akureyri og Gragarvogi, og afi úr garðabæ. Langa-afi og langa-amma úr grafarvogi og svo kom langa-amma frá Akureyri. Eins komu Sara Sif og Rósa. Elvar skemmti sér dásamlega þennan dag, og fékk mikið að skemmtilegum gjöfum. Samtals komu Kristó, Dagur, Ísleifur, Carlos, Birgir, Daníel, Ólíver, Benidikt, Villi, Erla, Gabríel, Rósa, Sara, amma Ester, kristján afi, Ottó afi, Solla amma, Una amma, Guðjón langa-afi, Inga langa-amma og svo að lokum Rósa langa-amma. Og svo náttúrulega við fjölskyldan, þannig að samanlagt eru við að tala um að ég held 25 manna afmæli, takk fyrir það.
Hægt er að sjá myndir inni á myndasíðunni

Biðjum að heilsa
Einar Ása og börn

fimmtudagur, 12. apríl 2007

Lítil frænka fædd í Svíaríki














Við viljum óska litlu frænku okkar til hamingju með það að vera komin í heiminn.
Einnig viljum við óska foreldrum og systkynum hennar til hamingju með hana.
Hún er voðalega falleg litla skottið.
Innilega til hamingju
Bæjarholtsgengið

miðvikudagur, 11. apríl 2007

2190 dagar frá fæðingu frumburðarins


Komi þið sæl og blessuð. Í dag eru 2190 dagar frá því við parið stóðum í ströngu, en þó aðallega hún Ása mín. Sem sagt það eru 2190 dagar frá því við urðum foreldrar í fyrsta sinn. 2190 dagar frá því unginn okkar dróg andann í fyrsta sinn. 2190 dagar frá því hann kom í heiminn. Með öðrum orðum Elvar Máni er sex ára í dag. Þetta var var mjög svo notalegur dagur hjá kallinum litla, eða stóra. Dagurinn byrjaði á því að Elvar var vakinn upp með afmælissöng og opnaði hann augun með svo miklu brosi að hann lýsti upp allt herbergið. Því næst labbaði hann inní stofu og sá afmælisgjöfina sem var.....splúnku nýtt hjól fyrir stóra stráka, og ekki með neinum hjálparadekkjum, sem honum fannst vera mest spennandi. Síðan fór hann í leikskólann og þar var boðskortunum dreift á þá sem eiga að koma í afmælið sem á að vera á laugardaginn. Eins og tíðkast í Vesturkoti þá fá allir þeir sem eiga afmæli að velja sér köku og valdi hann sér súkkulaði köku. Þegar við komum heim var farið að undirbúa klöldmatinn, en hann var búinn að velja hann. Og vildi hann fá grillaða hamborgara. Afi amma og Guðjón Ingi komu og snæddu með okkur. Held að þetta hafi verið dýrindis dagur fyrir guttann okkar. Eitt gullkorn sem kom frá honum í gær. Ég spurði hann að því hvað honum langaði í, í afmælisgjöf. Og þá sagðist hann vilja eitthvað sm væri fyrir sex til tíu ára, eða pabbi eitthvað dót sem er fyrir sex til sextán ára.
Elsku hjartans Elvar til hamingju með daginn
pabbi og mamma
Nokkrar myndir eru komnar inná myndasíðuna okkar