miðvikudagur, 25. apríl 2007

Akureyrarferð

Við lögðum land undir fætur síðastliðinn miðvikudag 18.april og skelltum okkur til höfuðborgar norðursins. Ferðin gekk mjög vel þar sem við keyrðum um kvöldin og börnin sváfu þetta af sér, svona að mestu. Við gerðum mest lítið nema bara að njóta þess að vera í faðmi fjölskyldunnar. Á laugardaginn fóru við á snjóþotu og stiga sleða. Við fórum upp í Hlíðarfjall, sem Elvar kallaði að vísu alltaf "Bláfjallafjall", en við fórum þangað til að leita að einhverjum brekkum til að renna sér í. Það var alveg troðið í fjallinu þar sem Andresar andarleikarnir stóðu sem hæst, þannig að við eiginlega hrökkluðumst úr fjallinu. Að lokum enduðum við í brekku sem ég var vanur að renna mér í þegar ég var lítill snáði á Akureyri, og ber hún nafnið "Jólasveinabrekkan" og skemmtu börnin sér konunglega við þessa iðju. Ég og afi voru að dunda í Charade-num að gera við það litla sem þarf að gera við hann, en hann fer einmitt að verða klár í að komast á götuna og hingað suður. Sem er mikið tilhlökkunnarefni í fjölskyldunni. Þetta var rosalega gott að komast norður í ferska og hreina sveitaloftið, þrátt fyrir að svifryksmengunin sé lagnt yfir heilsuverndarmörkum. Þá er allavega gott fyrir sálina að komast norður í rólegheit og stresslaust umhverfi, hjá afa og ömmu. Við viljum þakka mömmu og Úlla fyrir allt en sérstaklega viljum við þakka ömmu og afa í Stórholtinu fyrir okkur, þau eru eins og venjulega "sannir gestgjafar" Takk enn og aftur Einar Ása Elvar og Ester Una

Hér eru myndir frá norður ferðinni, njótið vel.

http://picasaweb.google.com/einareir/170407220407Akureyrarfer02/photo#s5057373020091986482

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vá æðislegar myndir ...love eskihlíðin .-)