fimmtudagur, 16. júní 2011

Lítill felagi



Þessi tók à móti mer þegar ég kom heim ì dag.

Flott mynd



sunnudagur, 11. apríl 2010

9 ára afmælisgutti


Elvar Máni á afmæli í dag, hann er níu ára gamall. Ótrúlegt til þess að hugsa að heil níu ár séu liðin frá því að tveir óharnaðir ungir enstaklingar hafi verið við það að gera í buxurnar af stressi yfir því sem koma skildi. Níu ár frá því að pabbinn stóð skjálfandi á gangi sjúkrahússins með tárin í augunum eftir að hafa verið viðstaddur fæðingu sonarsins. Níu ár síðan mamma leið vítishvalir í á þriðja sólarhring við að koma þessu einstakling í heiminn. Níu ár frá því að þessir tveir einstaklingar fullorðnuðust heilmikið.

Ótrúlegt hvað tíminn flýgur.

En einhver merkilegur sagði eitt sinn að

"Ef tíminn líður hratt, þá hefur þú gaman og leiðist ekki"

Þannig að það er greinilegt að okkur er ekki búið að leiðast,

því það er eins og þetta hafi gerst í gær


Elvar til hamingju með afmælið

föstudagur, 24. júlí 2009

Yttersparet gatan


Þetta er gatan sem við flytjum í. Yndisleg gata, ótrúlega barnvænt og rólegt

fimmtudagur, 23. júlí 2009

Hverfið okkar


Þetta er hverfið sem við munum búa i

Einsetumadurinn


Búinn að komast að því hvernig ísskápur hjá einsetuköllum eins og mér lítur út. Lítill ísskápur og lítið af mat

miðvikudagur, 22. júlí 2009

Pabbinn i sviariki




Bad

Eldhus



Ibudin sem eg er i nuna



Fyrir framan husid i taby



sunnudagur, 16. nóvember 2008

Tími til kominn

Margir hugsa eflaust núna sé tími til kominn að fjarðargengið láti í sér heyra. Alltof mikið hefur drífið á daga okkar undanfarið. Hápunktur dagsins í dag ef afmælisveislan sem var hjá okkur. Litla Ester okkar átti afmæli á miðvikudaginn var og haldin var veisla henni til heiðurs í dag. Þetta var frekar lítil veisla, enda kreppa er það ekki ? Annað sem staðið hefur upp úr undanfarið er að heimilisfaðirinn missti vinnuna sína, þegar BT fór í þrot. Undirbúningur jólanna er að hefjast og ég veit ekki hvað og hvað. Elvar er búinn að missa allar framtennurnar og er orðinn mjög gúffalegur að sjá. En ég lofa núna að fara herða mig í því að skrifa á síðuna okkar.
Þangað til næst, og lofa að það verði ekki eins langt og síðast
Einar og co.

miðvikudagur, 6. ágúst 2008

Að láta taka mynd af sér

Sumir ættu ekki að láta taka mynd af sér, allavega ekki án fata. Fann þess skemmtilegu mynd á veraldarvefnum ( ekki það að ég sé eitthvað mikið að leitast eftir svona myndum ) og fékk vægt sjokk yfir henni.
Allavega það sem ég myndi vilja segja við þessa konum....EKKI LÁTA TAKA FLEIRI MYNDIR AF ÞÉR ÁN FATA

þriðjudagur, 22. júlí 2008

Sumargleði UMF Brennza

Óvissuólympíuleikar Sumargleði UMFB var haldin síðastliðna helgi.
Hér eru myndbrot af þeim.

föstudagur, 18. júlí 2008

Ljósmyndamyndbönd af krökkunum

Ég var að búa til ljósmyndamyndbönd af krökkunum, ljósmyndir af þeim í gegnum tíðina. Því miður eru ekki margar myndir af Elvari frá því hann var pínu lítill því þær fóru þegar gamla talvan hrundi um árið. Allavega vonandi að þið sem horfið njótið 

kv Einar Eir

mánudagur, 14. júlí 2008

Sunnudagsóvissuferð

Við fórum í óvissuferð sem endaði ekki eins vel og búist hafði verið við. Þannig var að Kristján Atli gisti hjá okkur og ákváðum við Ása að fara með krakkana í óvissuferð á sunnudeginum. Vorum allir pakkaðir vel inn í fatnað þar sem rigning hafi verið um morguninn. Smurt var nesti og svo var farið í nýja skó. Við ákváðum að fara í fjöruferð nema hvað við vorum ekki alveg vissum hvaða fjöru við ætluðum í, Gróttan er alltaf classic en það er fjaran sem allir fara alltaf í, þannig að við vildum fara í einhverja aðra. Þá minnist Ása þess úr æsku að hún hafi farið í fjöruferð fyrir neðan Garðakirkju, var keyrst þangað en ekki reyndist það vænlega fjara. Við enduðum í Gróttu, stigum út úr bílnum í hávaða roki og mígandi rigningu. Hlaupið var niður í fjöru nokkrir krabbar týndir í poka og svo var hlaupið aftur uppí bíl, þar sem nánast allir vorum við það að fá kal. Bíllinn settur í gang, miðstöðin á fullan hita og nestið borðað í bílnum. En eins og Kristján Atli kom svo skemmtilega að orðið " Mjög skemmtileg óvissuferð en fékk blauta og snöggan endi" 

fimmtudagur, 10. júlí 2008

Fyrsta tönnin farin


þá er litli kúturinn okkar búinn að missa sína fyrstu tönn. Önnur framtönnin að neðan er búin að vera dálítið laus undanfarna daga og brá faðir drengsins á það ráð í kvöld að klára þetta, rífa úr honum þessa lausu tönn. Það var vont í smá stund og svo var þetta búið, guttinn kominn í rúmið skömmu seinna og tönnin út í glugga. Já hann vildi setja hana út í glugga vegna þess að hann sagði okkur að, ef hann myndi setja hana undir koddann þá myndi hann bara fá eina krónu en ef hann myndi setja hana út í glugga þá fengi hann 10.krónur eða hundrað kall. Svo er bara að bíða og sjá hvað verður í glugganum hjá honum á morgun 

kv Einar og Ása

miðvikudagur, 9. júlí 2008

Komin úr vordvala...

Jæja þá er komið að því einu sinni enn að lofa öllum sem lesa þetta að ég fari að taka mig saman í andlitinu og byrja að skrifa markvisst. Töluvert er búið að vera að gera hjá the family undanfarið. Ég og Ester Una erum í sumarfríi þessa dagana og Elvar Máni á kafi í leikjanámskeiðum, hann er einnig ný búinn að vera á golfnámskeiði þar sem honum gekk alveg glymrandi vel, Ása er að vinna. Ekki gaman að vera að vinna þegar restin af The Family er í fríi. En þetta er einmitt það sem við höfum upp úr því þegar bæjarfélög ákveða að hafa leiksskóla lokaða hluta úr ári. Ég er á móti þessu, en hverju fæ ég breytt...engum sköpuðum hlut. Við fórum til Akureyrar fyrir stuttu síðan áttum þar yndislega heldi eins og venjulega hjá afa og ömmu, nema hvað. Við komum heim "nýjum" bíl. Við fórum á rúntinn á bílasölur og sáum draumabílinn á ákváðum að gera allt sem við gætum til að kaupa hann. Og hvað haldi þið, við þurftum nú ekki að gera mikið til að eignast hann. Fimm tímum eftir að við sáum hann, áttum við hann takk fyrir takk. Toyota Corolla Verso sjö manna eðalvagn. Elvar er þessa stundina í Nauthólsvik að baða sig með krökkunum úr leikjanámskeiðinu og í morgun var hann í keilu með þeim. Ég og Ester Una byrjuðum í sumarfríi á mánudaginn og strax í gær þriðjudag var hún farin að væla um það að fara á leiksskólan og hitta krakkana. "Pabbi leigóla leiga grakka" þannig að því var redda og er hún búin að fara í gær og í dag á róló og leika við krakka og er ekkert smá ánægð með lífið þar. Við erum einnig búin að fara í tvær útilegur það sem af er júní. Fórum með pabba og Sollu í Langbrók í Fljótshlíð og svo fórum við í Húsafell síðustu helgi með stórum hóp af fólki. Hvoru tveggja mjög skemmtilegar ferðir þó að verðrið í Húsafelli hafi nú nánast toppað allt. jæja þá fer þetta að vera gott í bili. Nýjar myndir verð komnar inn á myndsíðuna okkar innan tíðar

Med venlig hilsen 
Einar og co. 

mánudagur, 12. maí 2008

Allt að gerast

Nú er allt að fara að gerast hjá okkur, Florida eftir örfáa daga. Elvar Máni er gjörsamlega að missa sig yfir þessu öllu saman. Honum hlakkar svakalega mikið til. Ester Una talar alltaf um að hún ætli að sjá mikka mús og mínu mús, og prinsessur. Okkur foreldrunum hlakkar einnig til en erum samt sem áður ekkert að átta okkur á því að við séum að fara eftir þrjá daga. En þetta kemur allt á föstudaginn, en þá förum við út. Við vorum á árshátíð um helgina sem heimilisfaðirinn var meðal annars á sjá um, þetta var á hótel Selfossi frábær hátíð í alla staði mikið drukkið mikið dansað og mikil gleði allt eins og það á að vera. Jæja þá verða þetta lokaorðin í bili

tjá
Einar Eir

sunnudagur, 30. mars 2008

Páskar ofl.

Jæja þá er komið að einni færslu til að uppfylla þörfum bloggþystra netverja. Um páskana vorum við fyrir norðan hjá öllum öfunum og ömmunum. Mikið skemmtilegt var gert á Akureyri til dæmis farið í sundlaugina hennar Unu ömmu og svo borðað og borðað og einn daginn fórum við Elvar uppí Hlíðarfjall með eitt stykki Stiga sleða, og renndum okkur niður fjallið meðfram veginum, á tímabili var föðurnum hætt að lítast á blikuna vegna ofsafengins hraða sem við vorum komnir á, en við sluppum við teljandi meiðsl. Á laugardeginum urðum við vitni af því að Subaru Legacy bíll brann til kaldra kola beint fyrir utan húsið hjá afa og ömmu, ótrúlega sjón, getið séð fullt af myndum á myndasíðunni okkar. Við þökkum fjölskyldunni fyrir norðan kærlega fyrir getrisnina og allt.
Kveðja Bæjarholtið.

föstudagur, 14. mars 2008

Nýr Mafíubíll

Jæja þá er búið að kaupa nýjan bíl fyrir stórfjölskylduna. Fyrir valinu varð svakalegur kaggi, eða nánar tiltekið Toyota Corolla H/B árgerð 2005. Þetta er lítill gæjabíll með fullt af aukahlutum og ég veit ekki hvað og hvað. Það er einungis ein gömul kona búin að eiga hann frá því hann var nýr, kona í Borgarnesi og er hann keyrður 24.þús sem þykir nú ekki mikið nú til dags. Ekki er nú mikill söknuður frá Gamla Ford, enda var hann að við teljum að fara syngja sinn síðasta hljóm. En allavega nýr bíll kominn og myndir af vanginum koma inn innan tíðar

Lifið heil
kveðja Við á nýja bílnum

sunnudagur, 17. febrúar 2008

Ekkert Eurovision party í ár.


Því miður verðum við að tilkynna að í ár mun sá árlegi viðburður Eurovision partýið sem við höfum haldið í mörg ár mun ekki verða árið 2008. Svo óheppilega vill til að við verðum í USA þegar keppnin á sér stað. Biðjum við þá sem hafa átt húsaskjól hjá okkur á þessum dögum að leita annað því miður. En þetta verður þá miklu miklu stærra eftir það. Árið 2009 verður stærsta Europartý aldarinnar.

Þetta tekur okkur sárt, mjög...
Einar og Ása

mánudagur, 4. febrúar 2008

Heimasíðan hjá bekknum hans Elvars

Eitt sem ég vildi koma á framfæri og er það heimasíðan sem bekkurinn hans Elvars er kominn með. Það munu þau setja inn það sem þau eru að gera hverju sinni.
Hægt er að skoða myndir og ýmislegt, það er á stikunni hægra megin á skjánum
Slóðin er eftirfarandi.
http://www.123.is/1.bekkirhvaleyrarskola.

Njótið vel

Mamma og pabbinn

Smá fréttir

jæja þá er komið að smá fréttum af Holtinu. Ester Una og búinn að vera með hlaupabólur og það ekkert smá. Barnið var alveg þakið í bólum, hún var eiginlega ein bóla en er það nú búið, sem betur fer. Heimilisfaðirinn fór að hitta kennarann hans Elvar í foreldraviðtali og var verið að fara yfir hvernig hann hefur verið að standa sig í skólanum. Og viti menn....hann ætlar greinilega ekki að feta í fótspor föðursins hvað það varðar. Hann er að standa sig mjög vel í lestri og lesskilningi, og svo í reikningi...herre guð. Hann fór í reikningspróf og lögð voru fyrr hann 28 dæmi og var hann með 28 rétt af þeim. Sem sagt hann fékk 10 í einkunn. Og er það meira en faðir hans fékk samanlagt í stæðfræði alla sína skólagöngu, eða svona hér um bil. Annars er allt gott að frétta af okkur. vildi bara láta vita.
Set inn nýjar myndir fljótlega af okkur hér af Holtinu

kv Við

mánudagur, 31. desember 2007

Árspitillinn 2007

Þá er komið að fyrsta pistli þessa árs.

Þetta er árið sem allir urðu ein ári eldri en þeir voru árið á undan. Hér er komið að einu ársuppgjörinu í viðbót,þetta er svona til að gefa ykkur innsýn inní það helst sem hefur drifið á daga okkar þetta árið og byrjum við núna, einn, tveir og nú.....

Janúar: árið byrjaði eiginlega á því að farið var með Ester Unu á bráðamóttökuna með gat á hausnum,og reyndist þetta ekki verða síðasta ferðina þangað á þessu ári. Ennig var það í jan að Elvar fékk svakalegt ofnæmi eftir að hundur stökk uppí anditið á honum og sleikti á honum augað ofl. Upp úr því fékk hann svakalegt ófnæmi svo ekki sé nú meira sagt.



Febrúar. Öskudagurinn var í feb með tilheyrandi undirbúningi, mikið var um búningaprófanir eins og sjá má. Einnig var farið í extreme room make over, á barnaherbergjunum. Þetta er eitthvað sem átti að gerast um leið og við vorum flutt inn á sínum tíma, en var það eitthvað farið að dragast. Voru herbergin máluð og eitthvað af nýjum hirzlum keyptar inn. Heimilismóðirin varð einnig ári eldri en hún var áður, en það var nú ekki að sjá á henni að hún væri neitt að eldast, alltaf jafn ungleg og sæt. Fórum í fyrstu sumarbústaðaferðina í febrúar með guðrúnu og ómari í vaðnes á gamlar slóðir notalegt og gaman

Mars: Mikil og stór Árshátíð á vegum Árdegis á Örkinni í Hveragerði þar sem hálandaleikar voru haldnir og fór lið okkar með sigur af hólmi, í flokki bestu búninganna, en ekki hvað. Annað man ég nú eftir að standi mikið upp úr í þessum mánuði



April: Mikill og stór mánuður. Elvari Máni varð sex ára, hvorki meira né minna, hvað þetta er nú fljótt að líða, svo ég segi nú ekki annað. Haldin var svakaleg veisla og konu tvær ömmur hans utan af landi, Una amma hans og Rósa langa amma hans. Einnig var mikið um gaurana af leikskólanum hans. Ester Una fór að nota kopp í þessum mánuði, það er nú nokkuð merkilegt og svo fórum við norður. Það var rosalega skemmtileg ferð þar sem það var fullt fullt af snjór og lékum við okkur öll börnin í honum. Alltaf jafn gaman og gott að fara norður til fjölskyldunnar.

Mai: í byrjun mai var ákveðið að snúa svalamálinu hræðileg við. Fyrir mai áttum við nefnilega ljótustu svalirnar á blokkinni, en við ákváðum að snúa þessu kvæði í kross eða nánst í heilann hring og taka svalirnar í extreme makeover, og gera þær að flottustu svölunum á blokkinni eða hreinlega flottustu í hafnarfirði takk fyrir takk. Og ég held að það hafi tekist með ágætum. Risessan nam land með sínum drukknu stjórnendum, nema hvað farið var að sjá hana eins og flest allir höfuðborgarbúar. Tignarleg græja þessi risessa. Haldinn var hér í mai árlegur viðburður sem er eurovision teitið,sem er orðinn hjá sumum fastur puntur í lífinu, orðið eins sjálfsagt hjá þeim eins og að eiga afmæli á hverju ári oþh. Elvar fór á slysó um miðjan mánuðinn þar sem nöglin var tekin af einu putta á honum eftir slys í leikskólanum.










Júní Farið var í fyrstu útileguna í júní og var haldið í Húsafell með hrikalega skemmtilegu fólki. Mikið var um glaum og gleði, borðað af góðum mat og ég veit ekki hvað og hvað, Andri og Lólí, takk fyrir lúllið.
Svakalegt partý var í leikskólanum hjá Elvari þar sem það sumarhátið þar sem grillaðar voru pylsur og hoppikastalar, söngur og endalaus gleði. Víkingahátíðin var haldin hátíðleg í Hafnarfirði í júní með öllu tilheyrandi og auðvitað létum við okkur ekki vanta. Við fórum með Erlu og Benedikt og Gabríel. Elvar og Benedikt fengu sverð og voru að skylmst og berjast eins og fornfeður okkar gerðu. Þjóðhátíðardagur Íslendinga er einmitt líka í þessum mánuði, nánar tiltekið þann sautjánda ef það hefur farið fram hjá eihverjum. Við fórum ekkert til reykjavíkur, enda skilur maður ekki í dag hvað fólk er að sækja þangað í mannmergð og vitleysu, þegar maður getur verið í fallegum og rólegum bæ eins og Hafnarfirði þar sem allir taka lífinu með jafnaðargeði, fyrir utan nokkra sem komu úr reykjavík...nei nei ég segji svona þetta var allavega mjög skemmtilegt og fóru krakkarnir í nokkur tæki og fengu nammi. Um kvöldið fórum við Elvar niður á Thorsplan þar sem skemmtidagskrá var og meðal annars hann Jógvan vinur hans Elvars.Hann fékk hjá honum áritað mynd og gat sýnt honum á þeir væru með eins klippingu. Í lok júní var farið í sumarbústaðferð með skemmtilegast fólki á íslandi. Erlu og Villa. Farið var á saman stað og árið áður en það er fyrir ykkur sem ekki lásuð síðasta árspistil, í Munaðarnesi. Eyddum við með þeim einni helgi í frábæru yfirlæti og rosalegum veitingum. Ekki leit þetta vel út á tímabili þar sem Ásu og Erlu var falið að kveikja upp í splúnku nýju kolagrilli, en það vildi nú ekki betur en svo að þær stöllur náðu ekki bara að kveikja uppí grillinu, þeim tókst að kveikja í grillinu og geri aðrir betur, frábær helgi verður lengi í minnum höfð.

Júlí: Þá fórum við erlendis til Svíveldis, í heimsókn til Adda, Rögnu og krakkana. Þetta var svakalega skemmtileg ferð og mikið skemmtilegt gert svo sem, tívoli, gögnuferð, menningarferð, sólbað, borðað, drukkið, hlegið, flogið, hoppað, myndað, fagnað, spilað, baðað, unnið og verslað. Þetta var mjög skemmtileg ferð og þökkum við fyrir okkur.

Ágúst. Byrjaði á því að Ester Una fékk gat á höfuðið, en var gert að sárum hennar heima fyrir enda foreldrar komnir í ultra æfingu á þessu sviði. Fjórum dögum seinna varð svo annað slys, þegar Elvar og Daníel voru að leika sér í ganni slag og Elvar kýli Daníel svo hann fékk blóðnasir. Ester Una hætti hjá dagmömmunni og byrjaði í leikskóla, byrjaði hún í sama leikskóla og Elvar var í. 18 ágúst afrekaði Elvar Máni töluvert og var það þegar hann fór og tók þátt í Latabæjarhlaupinu, og var hann svo ákveðinn í því að vinna þetta, hljóp hann og hljóp og tók fram úr fullt af fólk þangað til, á ákveðnum tímapunti var hugur hans farinn að bera hann töluvert langra en fæturnir þannig að hann steyptist á andlitið, sem betur fer á gras. En við það missti hann alla þá sem hann var búinn að taka, fram úr sér og gott betur en það. Hann fékk medalíu og var voðalega stolltur af sér þegar þessu var lokið. Í lok ágúst var farið uppá Skaga til vinafólks okkar, Elíasar og Ásthildar fórum við að sjá Hálandaleika sem voru með einhverjum heljarmennum að þykjast vera eitthvað, sem þeir voru að vísu.

September: Farið var til frænda okkar í Færeyjum á árshátíð á vegum Hátækni yfir heila helgi. Þar var meðal annars Hátæknileikar og var ein greinin sem keppt var í, búningakeppni og var allt lagt í sölunar og upp úr krafsinu voru fyrstu verðlaunum komið í hús. Þessi ferð verður ógleymanlega. Elvar byrjaði í skólanum, í fyrsta bekk í Hvaleyrarskóla, og hefur honum gengið mjög vel það sem af er þessu skólaári.
Heimilisfaðirinn byrjaði í nýju starfi innan fyrirtækisins og hætti að stjórna vöruhúsinu og tók við starfi sem deildarstjóri RMA deildar Árdegis.
Október: ekkert var svosum gert í þessum mánuði sem stendur upp úr.
Nóvember: Heimilisfaðirinn fór til Danaveldis á vegum vinnunnar og var aðallega verslað og verslað fyrir familyuna. Elvar kom í þessum mánuði heim úr skólanum með sitt fyrst glóðurauga eftir gannislagsmál í skólanum við vin sinn. Ása byrjaði í nýrri vinnu hjá Norvik, og er hún að vinna á fjármáladeildinni hjá þeim.

Desember: Mánuður ljóss og friðar, byrjaði á því að heimilisfaðirinn fór á fertugsaldurinn og var haldið á holtinu mikið teiti, þar sem fjölskyldu, vinum og vandamönnum var boðið til gleðskaps. Þakka ég öllum þeim sem heiðruðu mig á þessum tímamótum. Farið var frekar snemma í það að skreyta jólatréið aðallega vegna þess að það var að fjúka af svölunum í einu af þeim ofsaveðrum sem herjað hafa á skerið. Við áttum yndislega jól, með ótrúlega mikið af pökkum sem krakkarnir fengu og stórir. Elvar sá um að lesa á alla pakkana meðan Ester Una varð æstari og æstari yfir því að fá ekki að opna alla pakkana sem voru undir tréinu. Og eins og venjulega var farið á annan í jólum í hádeginu í Garðabæ og svo í Grafarvoginn um kvöldið. Nú er síðasti dagur ársins 2007 að renna sitt skeið og viljum við þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur að gera þetta ár eins skemmtilegt og það varð. Óskum fjölskyldum okkar og vinum gleðilegs árs og friðar og sjáumst sem flest á komandi ári.
Þökkum fyrir allt á senn líðandi ári
Einar, Ása, Elvar Máni og Ester Una


sunnudagur, 23. desember 2007

Ekki fyrir þá sem trúa á jólasveina

Ég var eitthvað að vafra um á netinu og rakst á pistilinn sem ég mun láta fylgja hér að neðan.

Skyndilegt Andlát Jólasveinsins

Það eru um það bil 2 milljarðar barna (undir 18 ára aldri) í heiminum. Hinsvegar, þar sem Jólasveinninn heimsækir ekki múslima, hindúa, gyðinga eða búdda, þá minnkar vinnan fyrir jólasveininn niður í 15% af börnum heimsins, eða 378 milljónir. (skv. Population Reference Bureau). Að meðaltali eru 3,5 börn í hverju húsi sem gerir 108 milljón hús sem jólasveinnin þarf að heimsækja. Hér gerum við ráð fyrir að a.m.k. eitt gott barn sé í hverju húsi.
Jólasveinninn hefur 31 klukkustund á aðfaranótt jóla til að koma pökkunum til skila, þökk sé mismunandi tímabeltum og snúningi jarðar, ef hann ferðast frá austri til vestur (sem virðist rökrétt). Samkvæmt þessu þarf hann því að heimsækja 967,7 hús á hverri sekúndu. Þ.e. jólasveinninn hefur 1 ms til að leggja sleðanum, hoppa út, fara niður reykháfinn, koma pakkanum í skóinn, borða það sem honum er gefið, fara aftur upp reykháfinn, hoppa í sleðann og fara í næsta hús. Gerum ráð fyrir að hvert af þessum 108 milljón húsum eru jafndreifð um jörðina (sem er að sjálfsögðu mjög vafasöm nálgun en við samþykkjum til að nálga okkar reikninga). Við erum því að tala um 1255 metra á milli húsa eða samtals 121 milljón kílómetra og þá erum við ekki að taka með í reikninginn pissustopp og löggildar samningsbundnar kaffipásur. Þetta þýðir að sleði jólasveinsins ferðast á um 1046km/sek — 3.000 sinnum hraðar en hljóð. Til að sýna fram á hverju fjarstæðar þessar tölur eru þá fer formúlubíll u.þ.b. 0.01km/sek og hreindýr komast ekki nema upp í u.þ.b. 24km/klst. Einnig er mjög áhugavert að skoða þyngd sleðans. Gerum ráð fyrir því að hvert barn fái ekki meira en lítið lego (1000 gr) þá er sleðinn að bera tæplega 500.000 tonn, og þér er jólasveinninn sjálfur ekki reiknaður með. Hreindýr getur hinsvegar ekki togað meira en 150 kg og jafnvel þó við gerum ráð fyrir að í “flugi” þá geti hreindýr togað 10 sinnum meira þá er ekki séns að 8-10 hreindýr geti togað þennan sleða. Jólasveinninn þyrfti um það bil 360.000 hreindýr! Það eykur því þyngdina um önnur 54.000 tonn eða um það bil þyngd á stóru skemmtiferðaskipi. 600 þúsund tonn að ferðast á 1046km/sek í lofti býr til þónokkra loftmótsöðu — þetta myndi hita upp hreindýrin á svipaðan hátt og þegar geimskip flýgur inn í gufuhvolf jarðar. Fremstu hreindýrin myndi taka við 14,3 milljón milljónir milljóna júla af orku á hverri sekúndu. Þ.e. þau myndu brenna og næstum samstundis gera næsta par berskjaldað og brjóta hljóðmúrinn svona til gamans. Öll 360.000 hreindýrin myndu gufa upp á 4,26 ms eða rétt áður en jólasveinnin kæmi að húsi nr. 5 í röðinni. Ekki má gleyma því að hröðunin sem jólasveinninn fær þegar hann stoppar úr 1046km/sek á segjum 1 ms yrði um það bil 17.500G. 120 kílóa jólasveinn myndi límast aftast í sleðann með tæplega 90 milljón N krafti, samstundis brjóta öll bein í líkama hans og kremja öll líffæri. Því er rökrétt að álykta að ef jólasveinnin hafi einhverntíman verið til þá er hann núna dáinn vegna fólksfjölgunar.

laugardagur, 22. desember 2007

Bráðum koma blessuð jólin...


...börnin fara að hlakka til. Og það má með sanni segja að það sé nokkuð rétt. Jólastemmingin í bæjarholtinu er í hámarki. Þetta er samt sem áður búið að vera dálítið öfugsnúið miðað við jólin okkar áður. Til að mynda hefur jólatréið allt af verið sett upp á þollák, en jólatréið var eiginlega það fyrst sem var sett upp af skrautmunum. Ástæðan fyrir því var einfaldlega sú að við urðum að bjarga jólunum. Tréið okkar var úti á svölum á meðan veðurofsinn gekk yfir suður og vesturland, og var tréinu kippt inn svo við myndum ekki tapa því for good. Talandi um jólatréið, við erum með stærsta jólatré sem við höfum nokkurn tíman verið með, og gott ef þetta er ekki eitt stærsta jólatré sem hefur verið sett upp í bæjarholti 1-5. Það er meira að segja það stórt að við þurftum að klippa ofan af því til að toppurinn passaði ofaná það. Þetta er eitthvað tveir fimmtíu og eitthvað....sæll eigum við að ræða það eitthvað....nei hélt ekki....Elvar er svakalega spenntur yfir þessum öllu saman, sérstaklega þar sem hann er farinn að kunna að lesa sitthvað....Til Elvars...Frá Afa og ömmu....Mamma pabbi þessi stóri pakki er til mín, og svo er haldið áfram lestri. Mesta vandamálið héldum við að væri að halda Ester Unu frá tréinu og pökkunum en þar virðist ekki vera neitt stórmál, þó að hún komi annars slagið og nánast hendi sér í hrúguna. Margt annað er skemmtilegt og nýtt á þessum jólum, svo sem....fyrsta skiptið sem heimilisfaðirinn er í smá jólafríi fyrir jólin,það hefur ekki gerst í sjö síðustu jól. Nánast í fyrst skiptið sem heimilisfaðirinn er búinn að kaupa jólagjöfina fyrir heimilismóðurina fyrir aðfangadag. Fyrsta skiptið sem við erum svakalega afslöppuð fyrir þetta allt saman og erum ekkert að míga í okkur út af öllum sem á eftir að gera, sem by the way er eiginlega ekki neitt. Já og þá í fyrsta skiptið sem við erum eiginlega búin að gera allt sem við þurfum að gera fyrir þorláksmessu, takk fyrir takk. Þannig er það nú.....talandi um jakkaföt..humm ok. Ég fór með jakkafötin mín í hreinsun síðastliðinn þriðjudag klukkan átta um morguninn og hafi með jólakjólinn hennar Ester Unu. Nema hvað það er ekki nema frá sögum færandi að ég vippa mér inn læt afgreiðslukonuna hafa allt klabbið og fæ miðan sem segir til um það hvenær ég má ná í fötin. Ég þakka fyrir mig, sný mér undan og labba af stað í átt að hurðinni, tek miðann á loft og tékka á því hvort þau verði tilbúin á morgun eða hinn......en shit....á miðanum stóð "Eftir klukkan 16 - 24.12.07." Ég stoppaði og hugsaði og reyndi að rífja upp hvort mér væri nokkuð að misminna, hvort aðfangadagur væri ekki alveg örugglega 24.12. Sný mér við á puntinum og spyr konuna hvenær það sé lokað á aðfangadag ? Og hún svarar með sinni rámu rödd. " Það er annað hvort klukkan tólf eða eitt. Já ok en það stendur á miðanum mínum að ég eigi að koma og ná í þetta eftir klukkan sextán ? Já ok, komdu bara fyrir klukkan eitt þá. Loki þið klukkan eitt ? Jaa eða klukkan tólf. Hvort lokið þið klukkan tólf eða eitt ? Ég ætla ekki að koma klukkan eitt og þá hafi þið lokað klukkan tólf, er ekki í lagi að ég komi fyrir klukkan tólf ? jújú komdu þá fyrir klukkan tólf. sagði hún að lokum og var að verða fannst mér á henni að verða frekar pirrý pú. En ok....vá hvað það er að taka langan tíma að hreinsa ein jakkaföt og með því. Sex dagar, mér finnst það frekar mikið. Venjulega hef ég verið að fara með fötin, meira að segja aðeins seinna en þetta og verið að fá þau yfirleitt daginn eftir eða eftir tvo daga. En ekki sex daga. Og plús það að þetta er ein stærsta hreinsun í borginni. Þetta er allavega í síðasta skiptið sem ég fer með fötin mín í Fönn, bara svo ég komi því að hvaða fyrirtæki þetta er. Allavega jólahátíðin handan við hornið, allt klappað og klárt sem á að vera klappað og klárt. Var að enda við að sjóða hangikjötið þannig að þá er ekki eftir nema taka á móti jólum með drottinn sér við hlið, já og familyuna.

Óska öllum sem hafa haft þolinmæði í að lesa þau fáu blogg sem koma hingað inn, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Annars kemur inn jólapistill strax eftir jól þar sem farið verður yfir gjafalistann....right

Gleðileg jól þið fallega fólk sem lesið um okkur

Einar, Ása, Elvar Máni og Ester Una

þriðjudagur, 11. desember 2007

Margt að gerast

Jæja..það helsta sem gerst hefur hjá okkur undanfarna daga er það að Ása er byrjuð í nýju vinnunni, líkar svakalega vel í henni. Byrjað er að skreyta Holtið með seríum og fínerýi. Elvar kom heim í dag með glóðurauga eftir fyrstu slagsmálin, sem var að vísu gannislagur sem endaði á þann veg að félaginn gaf Elvari einn gú moren....fjólublátt auga og voða fínn. Ester Una kom einnig heim hálf krambúleruð, batt aftur fyrr sig og fékk svakalega kúlu á hausinn. Kúlu á stærð við Hafnarfjörð. Heimilisfaðirinn ennþá að reyna að ná áttum eftir það að vera kominn á fimmtugs.....nei ég meina fertugsaldurinn. Þangað til næst

Einsó Fertugi bráðum.....
yfir og út

þriðjudagur, 4. desember 2007

Ungur fallegur drengur fæddist


Það var fyrr nákvæmlega 262802 klukkustundum sem þennan heim leit undurfagur drengur dagsins ljós. Þessum dreng var gefið nafnið Einar Guðmundur, og er það ég sjálfur. Fyrir ykkur sem nennið ekki að reikna út klukkustundirnar þá skal ég létt ykkur það verk og segja ykkur að þetta gera 360 mánuðir, vá að ég sé búinn að lifa í 360 mánuði, það er nú töluvert að mér finnst. 360 mánuðir deilt í 12 mánuði gera 30 ár....já nákvæmlega ég er 30 ára í dag...shit hvað mér finnst það mikið. Ég man þegar mamma var 30 ára og mér finnst það eitthvað svo stutt síðan, þannig að innan tíðar verð ég orðinn jafn gamall mömmu....ekki það að ég sé að segja að mamma sé eitthvað gömul síður en svo, mamma mín er ung og falleg kona. Ég er búinn að halda upp á afmælið og vill ég þakka öllum þeim sem lögðu leið sína til mín, og hjálpa mér að sjá einhvern fögnuð í þessum ófögnuði. Ég hélt afmælispartý síðast liðinn laugardag þar sem ég fékk mína nánustu vini og einnig Rósu systir, Karen systir og svo kom mamma. Haldið var feiknar teiti og mikil gleði var við völd. Svo í kvöld bauð ég þeim sem ekki komust á laugardaginn, pabba og Sollu, tengdó og svo koma Inga Fjóla amma hennar Ásu. Ég vill enn og aftur þakka öllum þeim sem glöddust með mér á þessum tímamótum. Þakka enn og aftur
Einar Gamli Eir

laugardagur, 17. nóvember 2007

Ryklaus borg.


Eitt sem ég er að velta mikið fyrir mér þessa daga á sérstaklega eftir 1.nóv sem er einmitt fyrsti dagurinn sem löglegt er að keyra um götur borgarinnar á nagladekkjum. Tugum eða hundruðum milljóna er varið í það á hverju ári að leggja nýtt asfalt á götur borginnar vegna eyðingar á því, sem er að metu tilkomið vegna notkunnar á negldum vetrarhjólbörðum. Það eru nú til dags ekki margir klukkutímar yfir þessa vetrarmánuði, sem dauðansnauðsyn er að notast við naglana. Og ef það er spáð frosti þá eru saltararnir komnir út á götur borgarinnar að dreifa hundruðum tonna á klukkutíma svo borgarbúar þurfi ekki að keyra á ísilögðum götum og keyra á hvorn annan. Ég held persónulega að það sé nánast undantekningarlaus þegar óhöpp eru að verða í umferðinni er það vegna þess að einhver aðili hefur ekki verið að keyra miðað við aðstæður. Maður hefur oft séð kannski í glæru hálku eða blindbil að bílar eru að þreysast framúr manni í óeðlilegum hraða, sem er náttúrulega ekki heilbrigt. Ég er alls ekki að segja að ég hafi og sé alltaf til fyrirmyndar í umferðinni, alls ekki. Ég á alveg mín andartök í rugli og vitleysu en sem betur fer mun færri í dag en áður fyrr. En það er mín skoðun að ég og mínir líkir séu oft á tíðum betri að keyra en þeir sem eru í borginni, og sem keyra bara í borginni og hafa aldrei keyrt annars staðar en í borginni. Ég er nú úr þannig sveit að salt var ekki notað nema til þess að salta hafragrautinn og sandur var bara notaður til þess að leika sér að í sandkassa.Í minni sveit þurfti maður bara að keyra á hálku ef það var hálka, og ef það var snjór þá þurfti maður bara að láta sig hafa það að reyna að komast í gegn, því traktorinn sem mokaði sveitina fór nú ekki hratt yfir og það lá við að snjórinn væri farinn þegar hann var búinn að moka einu sinni. En það sem ég vill meina með þessu er það að ég og mínir líkir eru svo vel vanir að keyra við hinar og þessar aðstæður. Keyra til dæmis til Akureyrar þó svo að það væri ófært og komast þessa hundrað kílómetra á einhverjum fimm klukkutímum, pikkfesta sig í snjósköflum en ná samt að losa sig án þess að fara út úr bílnum eða missa bílinn í skrið í hálku og ná að afstýra því að illa færi. Þetta er bara eins og vetrarmánuðirnir hljómuðu í sveitinni. Ég er alls ekki að setja mig á eitthvað háan hest og segja að ég sé besti bílstjóri á Íslandi langt frá því, en það sem ég er að segja að mínir líkir hafa bara þurft að komast í gegnum mun erfiðari aðstæður í akstri. Hérna á malbikinu er mjög sjaldan sem borgarbúar þurfa að keyra í alvöru snjór, og ef það kemur mikill snjór þá er nánst búið að skafa hann áður en hann er lentur á jörðinni. En svo ég fari nú að koma mér að bottom line-inu þá er það að ég vill að yfirvöld hér í borginni og vegagerðinni banni hreinlega notkunn á nagladekkjum í borginni, eða þá að það verði lagður á sérstakur skattur á nagladekk.Nagladekk á ekki að þurfa að nota ef fólk er að keyra að mestu í borginni. Það er hrein vitleysa, eins er búið að sýna fram á það að í lang flestum tilfellum sem naglar eru notaðir þá eru það konur sem nota þá. Hvað er það ? Er það öryggisleysi hjá konum ? Eða gamall vani eða ? Ég veit ekki hvað það er því miður, kannski einhverjar konur sem lesa þetta geti svarað okkur því. Ryklaus borg mun aldrei verða að veruleika frekar en fíkniefnalaus ísland árið 2000 eða var það hugsað fyrir árið 3000 ég man það ekki, kannski betra að stefna að síðara ártalinu meiri glóra í því. Allavega Ryklaus mun aldrei verða fyrr en lög verða sett eða skattur
Þetta er einungis mín skoðun og endurspeglar ekki skoðun heimilisins, en bara svona til að koma því að þá eru okkar bíll á heilsársdekkjum
kveðja
Einar Eir

Nokkrunm dögum seinna...

Jæja. Eitthvað er að frétta eins og venjulega. Elvar er byrjaður að lesa, og er farinn að koma með lestrar bækur heim. í lestri hans er sérstök áhersla lögð á stafi eins og R og S þar sem þessari stafir lengjast töluvert í lestri hjá honum. Hann er búinn að eignast töluvert að vinum og er nánast á hverjum degi einhverjir gaurar í heimsókn, sem er nú bara gott mál. í vesturkoti í gær hjá Ester Unu var fjársjóðsdagur, þar sem allar deildir voru að leita að fjársjóðum og voru með andlitsmálingu og ég veit ekki hvað og hvað, voðalega gaman og það fannst Elvari líka hann kom með. Gaman fyrir hann að koma í leiksskólann sinn gamla og hitt allar fóstrurnar. Ása er að byrja í nýrri vinnu vonandi sem fyrst í des er hún að fara að vinna hjá fjármáladeildinni í Norvik. Norvik er eitt af stærstu fyrirtækjunum á Íslandi, þetta er móðurfélag Byko, Nóatúns, Krónunnar, Intersports, 11/11, Húsgagnahallarinnar og fleiri fyrirtækja hérlendis og erlendis. Þetta er æðislegt fyrir hana að fara vinna á nýjum vettvangi, og er hún alveg að deyja úr spenningi. Ég er að fara erlendis eina ferðina enn, og er ég að fara til Danaveldis í boði fyrirtækisins sem ég vinna hjá Árdegi. Erum við að fara að skoða höfuðstöðvarnar hjá Merlin, svo verður farið á fótboltaleik, Danmörk - Ísland í Parken, vonandi að hann fari ekki 14-2 eins og um árið, eða er það ekki rétt að hann hafi farið með þessari markatölu ?
Jæja þetta er svona það sem er að frétta af okkur í bili. Þangað til næst
kv Einar Eir og co.

sunnudagur, 4. nóvember 2007

Halló þú skítugi heimur



Jæja langt er síðan síðast. Og frá mörgu að segja. En byrjum á deginum í dag. Heimilisfaðirinn fór í dag og verslaði jólagjöf. Jólagjöfina sem við hjúin ákváðum að gafa hvort öðrum. Og var það ryksuga, en samt engin venjulega ryksuga, við keyptum Dyson. Dyson í án alls vafa ein geggjaðasta ryksuga sem er til sölu á Íslandi í dag. Og við hana eru endalausir kostir sem eru alltof margir til að telja upp hér, en til dæmis er einn kostur sem hún hefur og er það að hún blæs frá sér algerlega hreinu lofti. Og er undirritaður búinn að prufa að anda að sér fráloftinu og hlaut ekki varanlegan skaða af. Svo er hún pokalaus, ekkert vesen að losa poka eða neitt rugl, einungis að losa hvirfilbylsjúnitið af og losa úr því í ruslið. Allavega þetta er græjan, og á hún að vera til á hverju heimili hér í landi. Við vorum með svaka partý í gær. Ragna var með alla krakkana hér á landinu og komu Kristján Atli og Berglind til okkar og sváfu í nótt, og héldum við partý. Það var spilað matador frá undir miðnætti með ótrúlegu tapi okkar hjúa, Við vorum hreinlega rassskellt af krökkunum. Og Berglind endaði sem sigurvegari, og átti hún nánast orðið meira en bankinn. Og gat ekkert okkar tekið eitt kast án þess að þurfa að borga henni tugi og jafn vel hundruði þúsunda. Jæja þá af Færeyjaferðinni. Við komumst í hana á endanum. Flugum nánast á réttum tíma út. Þetta var hrikalega skemmtileg ferð með mikið af skemmtilegu fólki. Það sem var hápunturinn er sá að við undirritaður og hans lið unnum búningaverðlaun Hátæknileikana. Vorum við klædd sem vampírur og vorum við eins og vampírur. Hvítmáluð í framan með dökka bauga, blóð í munnvikum og framan á okkur, með svakalega flottar skikkjur sem Ása saumaði. Afbragðs saumakona. Jæja það var drukkið töluvert mikið að færeyskum bjór, sem smakkaðist prýðilega. Svo var maturinn um kvöldið mjög fínn og vínið smakkaðist afbragðs vel og var drukkið mikið af því, og sumir þarna kannski aðeins of....en ekki við hjúin, við vorum temmileg. Farið var svo á bar sem við höfðum farið á kvöldið áður og tókum ástfóstri við, og heitir Café Natur, ef þið farið einhvern tíman til Færeyja þá er þetta staðurinn til að skemmta sér á.Þarna var hægt að fá, bjórturn. Fimm lítra turn sem var meira en einn meter á hæð, með dælu á og allt. Ótrúlega skemmtilegt að drekka bjór þannig, vildi að það væri til svo hér heima. En allavega þetta var hin skemmtilegast ferð og hvet ég alla til að fara allavega einu sinni á ævinni til Færeyja, þó það væri ekki nema bara til að fá sér bjórturn á Café Natur. Svo flugum við heim á sunnudaginn, allir í frekar góðu fíling, aha..frekar þunn þessi þota sem við fórum með.

En allavega svo er þetta í bili biðjum að heilsa

Einsi og Ása Sól

fimmtudagur, 25. október 2007

Illa að fara fyrir Færeyjum !!

Nú er ljótt ástandið, og illa virðist vera að fara fyrir færeyjaferð okkar hjóna. Samkvæmt Atlantic Airways sem er flugfélagið sem við fljúgum með hefur ekki verið flogið til frænda okkar og þrjá daga. Ástæðan fyrir því er mikið þoka á eyjunum. Búið er að fresta öllum flugi þangað tl á morgun og verður gaman að sjá hvort við komumst þá ásamt hundruðum annarra sem leggja leið sína, austur að borða skerpukjöt og drekka Ákavíti. Annars fer ég bara á næsta bar og drekk mitt íslenska brennivín og ét úldið hangikjöt. Fregnir af Færeyjaferð inna tíðar

kv Einsi Gumm og Ása Sól

laugardagur, 20. október 2007

Sex dagar í Færeyjar


Jæja getum nú ekki neitað því að það er tilhlökkun fyrir því að fara til Færeyja. Aðeins eru sex dagar í það. Eins og fram hefur komið áður hér þá er þetta árshátíð hjá Hátækni, og verður flogið frá þreykjavíkurflugvelli næstkomandi föstudag og komið heim á sunnudag. Gaman verður að hitta og sjá frændur okkar Færeyinga, vona að þeir séu ekki eins og Þingeyingar..nei nei grín. Eitt er það sem ég og við munum smakka og er það skerpukjöt og verður það mjög spennandi. Annars verður nánar sagt frá þessu seinnna. Heimilislífið gengur sinna vandagang fyrir utan að Ester Una er búinn að vera frekar mikið veik undanfarna daga frá fimmtudegi til miðvikudags en það er nú allt komið, og hún orðin eins og hún á að sér að vera.
Nánar um Föreyjar seinna

yfir og út

föstudagur, 12. október 2007

Jæja komið að færslu

Sæl verið gott fólk

Komið er að nýrri færslu til að upplýsa fólk hve mikið hefur drifið á daga okkar síðan síðast.
Elvari gengur svakalega vel í skólanum og finnst voðalega gaman. Hann er líka byrjaður að æfa handbolta með FH og æfir hann með áttunda flokki. Hann er tvo daga í viku og er það toppurinn.
Ester Unu gengur vel í leikskólanum og hefur tekið ástfóstri við asísku fóstruna sem þar er.
Ása er byrjuð að þjálfa handbolta og er það sjöundi flokkur telpna sem hún þjálfar þrjá daga í viku. Heimilisfaðirinn hefur tekið við nýju starfi innan fyrirtækisins, og er nú orðinn deildarstjóri RMA deildar fyrirtækisins. Er það mikil áskorun sem því fylgir, og er það gott mál. Það sem er að fara gerast hjá okkur er það að ég og Ása eru að fara til Færeyja á árshátíð hjá Hátækni í lokk mánaðarins og hlökkum mikið til að heimssækja frændur okkar í færeyjum. Þetta er svona það sem mest hefur verið undanfarið. Lofa ég að herða mig í upplýsingum til ykkar í gegnum veraldarvefinn, um það sem drífur á daga okkar.

kv Einar Eir

laugardagur, 29. september 2007

Erlendir starfsmenn á Íslandi eða ekki ???

jæja smá færsla úr firðinum. Ég var eitthvað að vafra á alheimsvefnum í gær og rakst á myndband sem fékk mig til að hugsa aðeins. Í allri þessari umræðu sem búin er að vera varðandi erlenda starfsmenn í verslunum á höfuðborgarsvæðinu þá verð ég að sýna ykkur atriði sem ég fann á youtube. Þetta tiltekna atriði er orðin nokkura ára gamalt og passar einmitt mjög vel inn í samfélagið eins og það er í dag. Það fékk mig til að hugsa um hvort allt væri eins og það líti út fyrir að vera í þeim verslunum sem erlent starfsfólk er að vinna, eða hvort þetta sé eins og fóstbræðraþátturinn er sem hér er að neðan.

Endilega horfið á þetta, þetta er frábært

kv Einar Eir

fimmtudagur, 30. ágúst 2007

Akranesferð

jæja nú verður maður að fara að verða mun duglegri við þá yðju að blogga ( veit einhver hvað er íslenska orðið yfir að "blogga" ) Jæja síðustu helgi fórum við í kaupstaðferð til Akranes. Sem er voðaega vingjarnlegur bær handan hafsins. Við fórum þangað á laugardeginum að hitta vinafólk okkar, Elías Ásthildi og þeirra börn og buru. Áttum með þeim yndislegan dag og fórum meðal annars á horfa á hálandaleika. Sem er nú ekki frá sögum færandi, nema hvað að þar var "Monster-truck" bíll ( eða við skulum leyfa þessum köppum að segja það ) þetta var Nissan Patrol á 49" dekkjum, sem eru nú alveg það mesta sem hægt er að hafa undir svona dollum. Nema hvað hann átti að keyra yfir einhverjar bíldruslur sem búið var að stilla upp fyrir framan hann. Hvílíkur bíll sem maður myndi halda að hann tæki þessa druslur og myndi borða svona í morgunmat. En nei...hann var í mesta basli að komast upp á þá. Einhverjir kraftajötnar þurftu að koma og lyfta orðum þeirra upp svo hann gæti m0gulega komist upp, en allt kom fyrir ekki. Bíllinn ýttist alltaf frá þegar hann reyndi að láta vaða yfir hann. ( ég myndi að vísu líka reyna að koma mér í burtu ef ég væri einhver daihastu dolla ) en svo gekk þetta hjá honum með miklum látum og braki og brestum og glerbrotum og ég veit ekki hvað og hvað. Svo fórum við heim til Ella og Ásthildar og áttum þar dýrindis kvöld með æðislega góðum mat. Ég reyndi að taka einhverjar myndir af þessu "Monster-trukka-yfirkeyrslu" njótið þangað til næst

Ýtið á slóðina hér að neðan til að skoða myndirnar
http://picasaweb.google.com/einareir/HLandaleikarAkranesiGSt/photo#s5104624685037785746

þriðjudagur, 28. ágúst 2007

Allt komið á full swing

Elvar er kominn á fullt í skólann. Allt gengur mjög vel. Skólinn er búinn á milli eitt og tvö á daginn og þá fer hann í Holtasel, sem er frístundaheimili. Sem er mannað, annað en frístundavistunin í RVK. Allt betra í Hafnarfirði, fyrir ykkur sem vita það ekki. Ég fór og náði í Elvar frekar snemma í dag, eða um hálf þrjú, og sá hvers lags heraga er beitt á þessari vistun. Þarna eru þrjár eldri konur sem þurfa og reyna að hafa einhvern hemil á 30 rollingum. Ég er nú ekki að segja að ein þarna hafi verið að öskra á börnin, en hún notaði allavega ekki inniröddina, eins og börnunum er kennt að nota í leikskólanum. Þeim er kennt í leikskólanum að nota inniröddina alla leikskólavistunina. Í einhver fjögur til fimm ár. Svo koma þau í skóla og inná svona frístundaheimili þar sem þreyttar eldri konur vinna á lágmarkslaunum. Hugsandi um allan daginn afhverju þær séu í þessari vinnu, afhverju þær séu ekki í einhverju rólegu skrifstofu starfi, löngu búnar að fá nóg af rollingum sem vilja bara leika sér, og vera börn. Ný komnar úr svakalega löngu sumarfríi og gleymdu í þrjá mánuði hvað þetta er erfitt og vilja bara komast í frí sem allra fyrst aftur. Allir krakkarnir að tala ofan í aðra og heyra ekki utan að komandi hljóð frá meira en tveggja metra radíus. Þá nota þær ( hún ) það sem ég vill segja að sé útiröddina, eða landshornaröddina ( rödd sem fólk getur notað til að kalla á milli landshluta ) Leiðir maður þá hugann að því að í fyrsta bekk þá er verið að eyðileggja fjögra til fimm ára starf leikskólakennara. Já ég segi eyðileggja, því eitt er það sem maður hefur lært af því að vera foreldri og barn sjálfur.....
"Börnin læra það sem fyrir þeim er haft"

sunnudagur, 19. ágúst 2007

Latabæjar-menningarlegur dagur



Jæja Menningarnótt er liðin með öllu tilheyrandi. Bankarnir eru svo sannarlega búnir að spreða þjónustugjöldunum sem íslendingar hafa þurft að greiða það sem af er þessu ári, svo sannarlega. Ég verð nú að segja frá því að mér fannst dálítið fyndið að horfa á tónleikana sem voru í kassanum á föstudagskvöldið. Það var í boði Kaupþings, haldið á Laugardagsvelli. Þegar uppi var staðið átti að hafa verið komið þarna yfir 40.000 manns saman komin...glætan og enginn séns að það sé mögulegt. Í fyrsta lagi tekur stúkan ekki nema 7500 manns, þannig að það hafi verið 33.000 og yfir á blettinum fyrir framan svðið. Right. Það er eins og allir Akureyringar myndu klóna sig og fara á blettinn, plús það að sviðið var þvert á völlinn en ekki langsum, þannig að það er ennþá minni séns að þetta hafi verið eins og það átti að hljóma og vera. Allavega á laugardaginn fór ég og Elvar að hlaupa maraþon, Latabæjarmaraþon. ( sem var í boði Glitnis og viljum við þakka viðskiptavinum Glitnis fyrir að gera okkur þetta kleyft takk takk ) Þetta var mjög gaman, að vísu hrikalega mikið af fólki saman komið á þessu bletti ( skítið að fólk er alltaf að koma saman á einhverjum blettum humm ) Við hlupum 1.000.m og var það bara frekar mikið fyrir Elvar og reyndar reyndi það töluvert á mig líka. Við vorum frekar aftarlega þegar ræst var afstað en Elvar var svo ákveðinn í að vinna og vera með sprengju í rass að hann byrjaði á því að hlaupa alveg eins og hann gat, en fljótlega varð allur vindur úr honum. Hann hægði á sér og smá saman byrjuðu þeir sem hann var búinn að taka fram úr, að skríða fram úr okkur. En hann má eiga það kúturinn minn að hann hljóp allan tíman fyrir utan tvö skipti þegar hann flaug á hausinn, held ég vegna þess að hausinn var kominn töluvert á undan fótunum, þannig að hann flaug á magann. Svo á endanum fékk á meldalíu og var voðalega stoltur yfir þessu, og má hann vera það. Ég veit samt ekki hvort þetta var að reyna meira á mig eða hann, ég var alveg búinn sem sýnir manni að þolið er kannski alveg eins gott og það ætti að vera. Ég sit hér og skrifa tuttugu klukkutímum síðan hlaupið var, og er að drepast úr strengjum í fótunum.áiiii. Við fórum í grillveislu í Garðabæ og svo um kvöldið fórum við að sjá flugeldasýningunum sem var í boði Orkuveitunnar, lengi lifi Orkuveitan. Við fórum niðurá Laugarnestangann og horfðum á hana frá alveg hreint frábærum stað. Ég tók nokkrar myndir sem komu bara ágætlega út. Þetta var fínn dagur allir skemmtu sér vel.
Myndir eru komnar inná myndasíðuna
Eigið góðan dag
Við.

Mynd sem ég tók á sýningunni í gær

föstudagur, 17. ágúst 2007

Upprennandi óperusöngvari...NOT

Ég og Elvar voru að horfa að tónleikana í sjónvarpinu sem voru í boði Kaupþings þá allt í einu hóf Elvar upp raust sína og tók lagið. Sem betur fer var ég með myndvélina mjög nærri mér svo ég greip hana og hóf að taka upp án þess að hann gerði sér grein fyrir því. Mér finnst drengurinn taka sig vel út sem Tenor söngvari og held að hann ætti að leggja það fyrr sig í framtíðinni....ja það er annað hvort það eða box, hann er ágætur í því líka

Njótið
Einar Eir



miðvikudagur, 15. ágúst 2007

Rússibanaferðin mikla frá Svíaveldi

Leikskólinn byrjaður hjá Ester Unu


jæja þá er Ester Una byrjuð í leikskólanum Vesturkoti sem er sami leikskóli og Elvar hefur verið í. Ég byrjaði með hana í aðlögun í gær og gekk það ljómandi vel. Var með hana í um það bil eina klukkustund. Svo fórum við klukkan átta í morgun og vorum til klukkan hálf tólf, og gekk þetta betur en ég var búinn að vona. Hún er náttúrulega svo veraldarvön þessi dama og tekur öllu með bros á vör. Deildarstjórinn sem hetir Hulda kom að orði við mig og sagði að hún væri greinilega mjög opin fyrir þessu og væri örugglega sú fyrsta sem myndi ná að sleppa alveg foreldrum sínum. Svo fórum við út að leika en hvað hún var orðinn eitthvað syfjuð og lagðist niður hingað og þangað. hún lagðist niður meðal annars í rennibrautinni þegar hún var búinn að renna sér niður og stóð hún á stéttinni og var eitthvað að góna út í loftið og svo allt í einu lagðist hún í jörðina þetta er svona meðal þeirra staða sem hún var að leggja sig á. en svo þegar við komum inn þá var öll þreyta búinn að ærslagangurinn hófst á ný. Það best við þetta var það að hún var alveg hætt að taka eftir mér þarna inni og hætt nánast að koma til mín. Sem er að ég tel góðs viti varðandi aðlögun. Ok þetta er allt að ganga sem sagt vel og svo ég Elvar að byrja í Hvaleyrarskóla strax eftir helgi þannig að það er mikið að gert að stóru heimili þessa dagana. Hægt er að sjá myndir frá fyrsta deginum hennar með því að ýta á slóðina hér að neðan

Lifið heil.

http://picasaweb.google.com/einareir/LeikskLinnAByrjaHjEsterUnu/photo#s5098923993572719010

föstudagur, 10. ágúst 2007

Stilling í Skeifunni....


Ég vill beina öllum þeim sem þurfa að versla eitthvað í bílana sína frá því að versla hjá Stillingu í Skeifunni. Ekki það að ég vilji ekki að fólk versli við þetta fyrirtæki, síður en svo. Stilling er til dæmis með útibú í Kópavogi sem frábært og einnig í Hafnarfirði sem er auðvitað frábært og svo á Bíldshöfða. Til að gera grein fyrir máli mínu og þessari yfirlýsingu kemur hér smá dæmisaga. Nú er svo komið að það þarf að skipta um tímareim í bílnum okkar og var mér sagt að fara í Stillingu til að kaupa tímareimasett og pakkdósir. Ok við hjúin lögðum leið okkar til höfuðborgarinnar í verslunnarleiðangur. Komum við í umrædda verslun þar sem við fengum tímareim, en pakkdósir var starfsmaðurinn ekki að finna í bókunum hjá sér. "Ha hvað segir þú ?" Ég er ekki að finna þetta í bókum hjá mér." ( ef fólk veit það ekki þá eru í svona varahlutaverslunum bækur sem innihalda öll númer á öllum varahlutum í alla bíla, þannig að það var mjög einkennilegt að þetta væri ekki í hans bókum ) Nema hvað hann segir okkur að fara í Kistufell og tala við þá "Þeir eiga þetta alveg örugglega " Við leggjum leið okkar í Kistufell, komum þangað í hádeginuog þar er u.þ.b 80 ára gamall maður og u.þ.b 150.kg að afgreiða. Hann blaðar í sínum bókum og ekki að finna neitt. Ég segi við hann. "Ertu ekki að finna þetta ?" "Nei ég er það nú ekki, ég vinn nú bara í bókahaldinu, sá sem á að vera hér er ekki við"
Já ok....15-20 mín fóru í það að finna ekki neitt.Og á endanum sagði hann okkur að fara í Vélaland, þeir ættu þetta alveg örugglega til. Við fórum út pínu vonsvikin yfir því að hann ætti þetta ekki til, en jafnframt full af bjartsýni að þetta væri til hjá Vélalandi. Uppá Höfða var haldið. Hjá þeim var sama sagan. Starfsmaðurinn fór eitthvað á bakvið og kom til baka "Nei þetta er ekki til. Hefur þú prófað að fara í Bílanaust ( sem heitir Enn Einn, N1 í dag ). Jæja nú vorum við orðin frekar pirruð, en eins og áður full af bjartsýni.Í Bílanaust var haldið. Inn farið og náð tali á starfsmanni þar. "Einar: Mig vantar pakkdósir í Ford Focus ? Starfsm: Hvernig pakkadósir ? Einar: Ég er að fara skipta um tímareim. Starfsmaður: Nei það á ég ekki til. Einar: Veistu hvar ég get fengið þær ? Starfsm: já það er spurning með Stillingu eða Kistufell. Einar: Nei ég er búinn að fara á báða staði og það ekki til. Starfsm: ok, en ertu búinn að prufa Fálkann, þeir ættu að eiga þetta til hjá sér. Einar: Ok takk fyrir þetta. Starfsm: NÆSTI.... Ok ef við höfum einhvern tíman verið frekar pirruð þá var það akkurat á þessu tímapunkti. Rætt var í bílnum á leiðinni niður á Suðurlandsbraut að þetta væri síðasti staðurinn. Ef þetta væri ekki til þá færum við heim og myndum versla þetta á morgun hjá umboðinu.Nokkrum mín seinna vorum við komin í Fálkann, með bjartsýnina uppmálaða....Ég stökk inn...en vitið hvað. ÞETTA VAR EKKI TIL........ Nú var bara eitt í stöðunni og það var að gefast upp og láta í minni pokann fyrir varahlutaverslunum á höfuðborgarsvæðinu....Haldið var heim á leið. Ég ákvað samt fyrst við vorum á leiðinni heim að koma við í Stillingu í Kópavogi. Það labbaði heimilisfaðirinn inn þungum skrefum, og sá ekkert nema svart. Þegar ég sá starfsmanninn þar inni vissi ég að þarna væri maðurinn. Hann fór í tölvukerfið og sá að hann átti til tvo af þeim þrem hringjum sem til þyrfti. Þá kom hann með setningu dagsins.Starfsmaðurinn:Heyrðu það á að vera til eitt svona stykki í Hafnarfirði og eitt uppi á höfða. Ef þið viljið bíða þá skal ég hringja og athuga hvort þetta sé til, vilji þið það ? Einar og Ása í kór: JÁ TAKK.... Ok Hafnarfjörður svaraði og þetta var ekki til, en svo hringdi hann upp á Höfða og JESSS þetta var til þar. Við þökkuðum að okkar mati starfsmanni mánaðarins kærlega fyrir góða þjónustu. Hlaupið var út í bíl með mikla hamingju hjarta yfir því að við værum að sjá fyrir endan á þessu. Brunað uppá höfða og þetta var til, til allrar hamingju. Jæja nú er þessari dæmi sögu loks lokið, eftir u.þ.b þriggja klukkustunda þeyting fram og til baka. Ok það sem við pirruðum okkar yfir þegar þessu var lokið var. Ef starfsmaðurinn í Stillingu í Skeifunni hefði nú kunnað að leita í bókunum sínum og í tölvukerfinu eins og starfsmaður mánaðarins gerði í Kópavogi þá hefði hann séð að þetta væri til í Kópavogi og Bíldshöfða og við sloppið við nánast endalaust kjaftæði. Starfsmaður mánaðarins í Stillingu heitir Kristinn Óskar Marteinsson og á allan okkar heiður skilið fyrir framúrskarandi þjónustu, reyndi að finna mynd af kappanum en hann virðist ekki vera á veraldarvefnum. En þetta endaði allavega vel og tímareim sett í bílinn í fyrramálið. Þakka öllum sem nenntu að lesa og beini fólki frá því að fara í Stillingu í Skeifunni
Lifið heil
Einar Eir