Eitt sem ég er að velta mikið fyrir mér þessa daga á sérstaklega eftir 1.nóv sem er einmitt fyrsti dagurinn sem löglegt er að keyra um götur borgarinnar á nagladekkjum. Tugum eða hundruðum milljóna er varið í það á hverju ári að leggja nýtt asfalt á götur borginnar vegna eyðingar á því, sem er að metu tilkomið vegna notkunnar á negldum vetrarhjólbörðum. Það eru nú til dags ekki margir klukkutímar yfir þessa vetrarmánuði, sem dauðansnauðsyn er að notast við naglana. Og ef það er spáð frosti þá eru saltararnir komnir út á götur borgarinnar að dreifa hundruðum tonna á klukkutíma svo borgarbúar þurfi ekki að keyra á ísilögðum götum og keyra á hvorn annan. Ég held persónulega að það sé nánast undantekningarlaus þegar óhöpp eru að verða í umferðinni er það vegna þess að einhver aðili hefur ekki verið að keyra miðað við aðstæður. Maður hefur oft séð kannski í glæru hálku eða blindbil að bílar eru að þreysast framúr manni í óeðlilegum hraða, sem er náttúrulega ekki heilbrigt. Ég er alls ekki að segja að ég hafi og sé alltaf til fyrirmyndar í umferðinni, alls ekki. Ég á alveg mín andartök í rugli og vitleysu en sem betur fer mun færri í dag en áður fyrr. En það er mín skoðun að ég og mínir líkir séu oft á tíðum betri að keyra en þeir sem eru í borginni, og sem keyra bara í borginni og hafa aldrei keyrt annars staðar en í borginni. Ég er nú úr þannig sveit að salt var ekki notað nema til þess að salta hafragrautinn og sandur var bara notaður til þess að leika sér að í sandkassa.
Í minni sveit þurfti maður bara að keyra á hálku ef það var hálka, og ef það var snjór þá þurfti maður bara að láta sig hafa það að reyna að komast í gegn, því traktorinn sem mokaði sveitina fór nú ekki hratt yfir og það lá við að snjórinn væri farinn þegar hann var búinn að moka einu sinni. En það sem ég vill meina með þessu er það að ég og mínir líkir eru svo vel vanir að keyra við hinar og þessar aðstæður. Keyra til dæmis til Akureyrar þó svo að það væri ófært og komast þessa hundrað kílómetra á einhverjum fimm klukkutímum, pikkfesta sig í snjósköflum en ná samt að losa sig án þess að fara út úr bílnum eða missa bílinn í skrið í hálku og ná að afstýra því að illa færi. Þetta er bara eins og vetrarmánuðirnir hljómuðu í sveitinni. Ég er alls ekki að setja mig á eitthvað háan hest og segja að ég sé besti bílstjóri á Íslandi langt frá því, en það sem ég er að segja að mínir líkir hafa bara þurft að komast í gegnum mun erfiðari aðstæður í akstri. Hérna á malbikinu er mjög sjaldan sem borgarbúar þurfa að keyra í alvöru snjór, og ef það kemur mikill snjór þá er nánst búið að skafa hann áður en hann er lentur á jörðinni. En svo ég fari nú að koma mér að bottom line-inu þá er það að ég vill að yfirvöld hér í borginni og vegagerðinni banni hreinlega notkunn á nagladekkjum í borginni, eða þá að það verði lagður á sérstakur skattur á nagladekk.
Nagladekk á ekki að þurfa að nota ef fólk er að keyra að mestu í borginni. Það er hrein vitleysa, eins er búið að sýna fram á það að í lang flestum tilfellum sem naglar eru notaðir þá eru það konur sem nota þá. Hvað er það ? Er það öryggisleysi hjá konum ? Eða gamall vani eða ? Ég veit ekki hvað það er því miður, kannski einhverjar konur sem lesa þetta geti svarað okkur því. Ryklaus borg mun aldrei verða að veruleika frekar en fíkniefnalaus ísland árið 2000 eða var það hugsað fyrir árið 3000 ég man það ekki, kannski betra að stefna að síðara ártalinu meiri glóra í því. Allavega Ryklaus mun aldrei verða fyrr en lög verða sett eða skatturÞetta er einungis mín skoðun og endurspeglar ekki skoðun heimilisins, en bara svona til að koma því að þá eru okkar bíll á heilsársdekkjum
kveðja
Einar Eir

