Jæja. Eitthvað er að frétta eins og venjulega. Elvar er byrjaður að lesa, og er farinn að koma með lestrar bækur heim. í lestri hans er sérstök áhersla lögð á stafi eins og R og S þar sem þessari stafir lengjast töluvert í lestri hjá honum. Hann er búinn að eignast töluvert að vinum og er nánast á hverjum degi einhverjir gaurar í heimsókn, sem er nú bara gott mál. í vesturkoti í gær hjá Ester Unu var fjársjóðsdagur, þar sem allar deildir voru að leita að fjársjóðum og voru með andlitsmálingu og ég veit ekki hvað og hvað, voðalega gaman og það fannst Elvari líka hann kom með. Gaman fyrir hann að koma í leiksskólann sinn gamla og hitt allar fóstrurnar. Ása er að byrja í nýrri vinnu vonandi sem fyrst í des er hún að fara að vinna hjá fjármáladeildinni í Norvik. Norvik er eitt af stærstu fyrirtækjunum á Íslandi, þetta er móðurfélag Byko, Nóatúns, Krónunnar, Intersports, 11/11, Húsgagnahallarinnar og fleiri fyrirtækja hérlendis og erlendis. Þetta er æðislegt fyrir hana að fara vinna á nýjum vettvangi, og er hún alveg að deyja úr spenningi. Ég er að fara erlendis eina ferðina enn, og er ég að fara til Danaveldis í boði fyrirtækisins sem ég vinna hjá Árdegi. Erum við að fara að skoða höfuðstöðvarnar hjá Merlin, svo verður farið á fótboltaleik, Danmörk - Ísland í Parken, vonandi að hann fari ekki 14-2 eins og um árið, eða er það ekki rétt að hann hafi farið með þessari markatölu ?
Jæja þetta er svona það sem er að frétta af okkur í bili. Þangað til næst
kv Einar Eir og co.
1 ummæli:
Hæ hæ allir , Ása mín til hamingju með nýju vinnuna:) Já Einar vonadi gerum við betur núna og bara snúum þessu við komum heim með sigur ... eða nálægt því hehe kveðja Heiða og fjölsk
Skrifa ummæli