Jæja þá er búið að kaupa nýjan bíl fyrir stórfjölskylduna. Fyrir valinu varð svakalegur kaggi, eða nánar tiltekið Toyota Corolla H/B árgerð 2005. Þetta er lítill gæjabíll með fullt af aukahlutum og ég veit ekki hvað og hvað. Það er einungis ein gömul kona búin að eiga hann frá því hann var nýr, kona í Borgarnesi og er hann keyrður 24.þús sem þykir nú ekki mikið nú til dags. Ekki er nú mikill söknuður frá Gamla Ford, enda var hann að við teljum að fara syngja sinn síðasta hljóm. En allavega nýr bíll kominn og myndir af vanginum koma inn innan tíðar
Lifið heil
kveðja Við á nýja bílnum
2 ummæli:
Hæ hæ og til hamingju með nýja bílinn , vonandi reynist hann ykkur bara vel :) kv Heiða og fjölsk
GLEÐILEGA PÁSKA ALLIR OG HAFIÐ ÞAÐ GOTT :) KV HEIÐA OG FJÖLSK
Skrifa ummæli