sunnudagur, 30. mars 2008

Páskar ofl.

Jæja þá er komið að einni færslu til að uppfylla þörfum bloggþystra netverja. Um páskana vorum við fyrir norðan hjá öllum öfunum og ömmunum. Mikið skemmtilegt var gert á Akureyri til dæmis farið í sundlaugina hennar Unu ömmu og svo borðað og borðað og einn daginn fórum við Elvar uppí Hlíðarfjall með eitt stykki Stiga sleða, og renndum okkur niður fjallið meðfram veginum, á tímabili var föðurnum hætt að lítast á blikuna vegna ofsafengins hraða sem við vorum komnir á, en við sluppum við teljandi meiðsl. Á laugardeginum urðum við vitni af því að Subaru Legacy bíll brann til kaldra kola beint fyrir utan húsið hjá afa og ömmu, ótrúlega sjón, getið séð fullt af myndum á myndasíðunni okkar. Við þökkum fjölskyldunni fyrir norðan kærlega fyrir getrisnina og allt.
Kveðja Bæjarholtið.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

til hamingju með afmælið Elvar Máni sætilíus, frá hlíðarmafiunni.

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ og til hamingju með afmælið Elvar Máni , er ekki allt gott að frétta hjá ykkur og allir frískir , húsbóndinn eitthvað latur að skrifa inn á síðuna hehe , kærar kveðjur Heiða og fjölsk