sunnudagur, 16. nóvember 2008

Tími til kominn

Margir hugsa eflaust núna sé tími til kominn að fjarðargengið láti í sér heyra. Alltof mikið hefur drífið á daga okkar undanfarið. Hápunktur dagsins í dag ef afmælisveislan sem var hjá okkur. Litla Ester okkar átti afmæli á miðvikudaginn var og haldin var veisla henni til heiðurs í dag. Þetta var frekar lítil veisla, enda kreppa er það ekki ? Annað sem staðið hefur upp úr undanfarið er að heimilisfaðirinn missti vinnuna sína, þegar BT fór í þrot. Undirbúningur jólanna er að hefjast og ég veit ekki hvað og hvað. Elvar er búinn að missa allar framtennurnar og er orðinn mjög gúffalegur að sjá. En ég lofa núna að fara herða mig í því að skrifa á síðuna okkar.
Þangað til næst, og lofa að það verði ekki eins langt og síðast
Einar og co.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk takk takk , mikið var nú gott að heyra smá frá ykkur , leitt að heyra með vinnuna og vonandi er hægt að fá eitthvað að gera á þessum verstu tímum íslandssögunnar, fyrir dugnaðarforka eins og þig Einar. Ester Una innilega til hamingju með afmælið . Elvar þú ert ábyggilega flottur svona tannlaus . Sendum ykkur kærar kveðjur , og gangi ykkur vel að púsla daglegum venjum saman . kv Heiða og fjölsk