miðvikudagur, 21. mars 2007

Grískt goð.


Jæja þá er komið að einu lagi í viðbót. Að þessu sinni er það Grískt goð og alger hjartaknúsari að nafni Sarbel, og er hann alveg pott þétt eins og Jónsi er fyrir okkur. ( ekki það að ég hafi eitthvað mikið álit á Jónsa, en allavega hafa stelpur það ) Hann er fæddur 1981 í London. 22 ára var hann farinn að syngja í óperum í london. Nokkuð efnilegur, og myndarlegur. Hann er mjög fínn og búinn að gefa út nokkrar plötur og túra eitthvað um heiminn og bla bla bla. Lagið sem hann flytur er að vísu mjög grípandi lag, mjög auðvelt að fá það á heilann. Allavega fékk ég það á heilann, "ég og heilinn minn" það heitir "Yassou Maria" og er slóðin á það hér. http://eurovision.ert.gr/en/video.asp?name=sarbel&song=2 Sarbel verður tíundi á svið með sitt lag á úrslitakvöldinu 12. mai, hlakka til að sjá hjartaknúsarann.

Ég er einnig búinn að komast að því hverjir eru kynnar á úrslitunum og er það hið frábæra par, Jaana Pelkonen og Mikko Leppilampi. Frábær nöfn á fólki sem ég hef ekki hugmynd um hver eru, en Leppilampi, geggjað.

Þetta er röðin eins og hún verður fyrra kvöldið, og er vonandi að Eric the Hawk komist áfram.
1. Bulgaria 2. Israel 3. Cyprus 4. Belarus 5. Iceland 6. Georgia 7. Montenegro 8. Switzerland 9. Moldova 10. The Netherlands 11. Albania 12. Denmark 13. Croatia 14. Poland 15. Serbia 16. The Czech Republic 17. Portugal 18. FYROM 19. Norway 20. Malta 21. Andorra 22. Hungary 23. Estonia 24. Belgium 25. Slovenia 26. Turkey 27. Austria 28. Latvia

Úrslitakvöldið verður upp raðað eins og hér stendur.
1. Bosnia-Herzegovina 2. Spain 3. Country from Semifinal 4. Ireland 5. Finland 6. Country from Semifinal 7. Country from Semifinal 8. Country from Semifinal 9. Lithuania 10. Greece 11. Country from Semifinal 12. Sweden 13. France 14. Country from Semifinal 15. Russia 16. Germany 17. Country from Semifinal 18. Ukraine 19. United Kingdom 20. Romania 21. Country from Semifinal 22. Country from Semifinal 23. Armenia 24. Country from Semifinal

Njótið þess að hlýða á Sarbel og fáið það á heilann

yfir og út Einar Eir

þriðjudagur, 13. mars 2007

Eurovision


jæja þá fer að líða að því að Eurovision fari í loftið, nánar tiltekið þann 12 mai. Framlag Íslendinga frumflutt á Engilsaxnesku í gær. Verð aðeins að tjá mig um það. Mjög fínt að það sé aðeins búið að hraða laginu og einnig að það sé orðið aðeins þyngra. En ég er 100% sammála Dr. Gunna að þetta sé óskiljanlegur texti og mér finnst of flókinn. Chorusinn á að vera grípandi og auðveldur að ná, en það var mér ekki að finnas með þetta viðlag, engan veginn. Eins var þetta mjög svo drungalegt myndband, svart hvítt var ekki að heilla mig. Mjög dramatíst að sýna svona mikið af íslenskri náttúru, allt gott með það, auðvitað smá landkynning. gæti orðið til þess að einhverjir austantjallar kæmu til landsins. jæja nóg um það.
Annað smá vandamál sem komið er upp og það er að júróvíson er 12 mai og það sem kemur upp á sama dag eru alþingiskosningarnar. Hvernig ætlar Ríkissjónvarpið að redda því, það verður gaman að sjá. Persónulega er ég meira til í að horfa á Eurovision heldur en kosningarnar. Reddið þessu bara hverning sem það verður gert.
Ég hef verðið undanfarið að krúsa á netinu í leit að Eurovisionlögum sem önnur lönd eru að senda í keppnina, og hef fundið nokkur sem við eigum nú að getað jarðað með Rauða Hauknum. Og svo eru önnur sem eiga eftir að jarða okkur. Ég mun á næstu dögum henda einu og einu inná síðuna ykkur til yndisauka og skemmtunnar. Fyrsta lagið sem ég set inn er framlag Swiss.Og er það enginn annar en DJ Bobo. Hver man ekki eftir DJ Bobo. Hann var til dæmis með lagið Everybody , sem var mjög vinsælt nítjánhundruð nítíu og eitthvað. Sjá lagið og myndbandið hér http://youtube.com/watch?v=mZkmk8oR7Og
Annars er Boboinn orðinn aðeins eldri og með minna hár en hann var með á tímum, Everybody. Lagið sem hann er með í keppninni heitir Vampires are alive og er svosum ágætis lag, ber þess merki að hann sé orðinn eldri og reyndari....jájá. Ekki alveg þessi evróvision stíll á laginu, sem er að vísu hverfandi í þessari keppni. Við mikinn söknuð sumra. En allavega hér er linkurinn á Vampires are alivehttp://youtube.com/watch?v=9-dDxp8Cez0, njótið þess og dæmið hver fyrir sig. Mér finnst þetta ágætis lag eftir því sem ég hlusta á það oftar. En það er einungis mín skoðun. commentið endilega á hvernig ykkur finnst þetta lag og hvernig þið haldið að DJ Bobo muni ganga.

Bið að heilsa í bili
Einar Eir

fimmtudagur, 8. mars 2007

Eitthvað sem maður skilur ekki....



Komi þið sæl og blessuð. Mig langar að ræða smá mál. Eitt og annað sem ég er hættur botna í. Byrja á þessu. Dómskerfið. Ekki það að ég hafi eitthvað verið að botna mikið í því í gegn um tíðina en fréttir sem hafa verið undanfarið eru farnar að fá mann til þess að hugsa að það er nú ekki allt í lagi með þetta kerfi. Til dæmis þessi afi sem misnotar barnabarnið sitt og fær þriggja mánaða fangelsi og einhverja fimmtán mánuði skilorðsbundið. Og svo kemur daginn eftir frétt um mann sem neyðir fimmtán ára stelpu til samræðis og fær þrjátíu mánaða fangelsi. Ok á hvorn aðilann mun þetta hafa meiri áhrif þegar fram líða stundir. Ég er ekki að gera lítið úr þessari nauðgun alls ekki en ég held að það muni hafa meiri áhrif á ungt barn, að vera misnotað að afa sínum. Mér finnst þetta ömurlegt hvað það er tekið vægt á kynferðisafbrotamálum gegn börnum. Þessa menn á að loka inni. Sjá til dæmis Steingrím Njálsson. Hvað hann er búinn að misnota marga drengi í gegnum áratugina, og hann er meira frjáls ferða sinni heldur en inni á Hrauninu. Ég skil ekki hvers vegna hann sé að draga andann ennþann dag í dag, að eitthvað foreldri eða fórnarlamb hans sé ekki búið að ganga frá honum fyrir fullt og allt. Mér finnst allavega þetta kerfi engan veginn að virka eins og það kemur manni fyrir sjónir í fréttaflutningi fjölmiðla. En það er eins og það er.Svo er eins með fanga sem verið er að flytja á milli Litla Hrauns sem eru að stinga undir Laganna vörðum. Hvers vegna í ósköpunum eru þessir menn ekki í járnum. Þeir eiga að vera járnaðir á höndum og fótum og helst með svona grímu eins og Anthony Hopkins var með í Silent of the lambs. Heyrði ég fleygt þeirri sentingu í dag að það ætti ekki að vera að auka refsingunua á þá meira en hún er. En HALLÓ þessir menn þyrftu ekki að vera í þessum sporum, þetta er yfirleitt eitthvað sem þeir hafa kallað yfir sig sjálfir. Það er fyrst í fremst öryggi almennings að hafa þessa menn í járnum í staðinn fyrir að missa þá út um allan bær, og í þokkabót er yfirvaldið að gera sig að athlægi með því að geta ekki flutt þá af einum stað yfir á annan án þess að missa þá úr höndum sér..haha hí á ykkur....

Annað sem hefur eflaust mikið verið rætt að kaffistofum landsmanna í dag eru feminista kerlingar, og "sláandi" forsíðuauglýsing í nýjasta Smáralindarbæklingnum. Ég held að það sé ekki allt í lagi með suma. Ég er mikið búinn að horfa á þessa mynd og gæt bara því miður ekki séð neitt kynferðislegt við hana hvort sem ég horfi á hana beint á hvolfi eða á hlið. Ég er því miður ekki að sjá það. Líklegast er það rétt eins og einn hlustandi sídegisútvarpsins á Bylgjunni sagði í dag " Þegar þessar kerlingar eru farnar að sjá eitthvað kynferðislegt út úr svona myndum þá eru það þær sem eru orðnar afbrigðilegar en ekki við, að sjá kynlíf út úr öllu.
Ég vona að ég hafi ekki verið að særa einhverjar feminista konur með þessum skrifum mínum en eins og oft hefur komið fram hér þá er þetta einungis mín skoðum sem hér kemur fram

Lifið heil
Einar Eir