Jæja þá er komið að einu lagi í viðbót. Að þessu sinni er það Grískt goð og alger hjartaknúsari að nafni Sarbel, og er hann alveg pott þétt eins og Jónsi er fyrir okkur. ( ekki það að ég hafi eitthvað mikið álit á Jónsa, en allavega hafa stelpur það ) Hann er fæddur 1981 í London. 22 ára var hann farinn að syngja í óperum í london. Nokkuð efnilegur, og myndarlegur. Hann er mjög fínn og búinn að gefa út nokkrar plötur og túra eitthvað um heiminn og bla bla bla. Lagið sem hann flytur er að vísu mjög grípandi lag, mjög auðvelt að fá það á heilann. Allavega fékk ég það á heilann, "ég og heilinn minn" það heitir "Yassou Maria" og er slóðin á það hér. http://eurovision.ert.gr/en/video.asp?name=sarbel&song=2 Sarbel verður tíundi á svið með sitt lag á úrslitakvöldinu 12. mai, hlakka til að sjá hjartaknúsarann.Ég er einnig búinn að komast að því hverjir eru kynnar á úrslitunum og er það hið frábæra par, Jaana Pelkonen og Mikko Leppilampi. Frábær nöfn á fólki sem ég hef ekki hugmynd um hver eru, en Leppilampi, geggjað.
Þetta er röðin eins og hún verður fyrra kvöldið, og er vonandi að Eric the Hawk komist áfram.
1. Bulgaria 2. Israel 3. Cyprus 4. Belarus 5. Iceland 6. Georgia 7. Montenegro 8. Switzerland 9. Moldova 10. The Netherlands 11. Albania 12. Denmark 13. Croatia 14. Poland 15. Serbia 16. The Czech Republic 17. Portugal 18. FYROM 19. Norway 20. Malta 21. Andorra 22. Hungary 23. Estonia 24. Belgium 25. Slovenia 26. Turkey 27. Austria 28. Latvia
Úrslitakvöldið verður upp raðað eins og hér stendur.
1. Bosnia-Herzegovina 2. Spain 3. Country from Semifinal 4. Ireland 5. Finland 6. Country from Semifinal 7. Country from Semifinal 8. Country from Semifinal 9. Lithuania 10. Greece 11. Country from Semifinal 12. Sweden 13. France 14. Country from Semifinal 15. Russia 16. Germany 17. Country from Semifinal 18. Ukraine 19. United Kingdom 20. Romania 21. Country from Semifinal 22. Country from Semifinal 23. Armenia 24. Country from Semifinal
Njótið þess að hlýða á Sarbel og fáið það á heilann
yfir og út Einar Eir
1 ummæli:
Myndi það drepa þig að skella inn einni auglýsingu fyrir Funky Fish á þessa síðu?
Andskotinn sjálfur!
Skrifa ummæli