fimmtudagur, 8. mars 2007

Eitthvað sem maður skilur ekki....



Komi þið sæl og blessuð. Mig langar að ræða smá mál. Eitt og annað sem ég er hættur botna í. Byrja á þessu. Dómskerfið. Ekki það að ég hafi eitthvað verið að botna mikið í því í gegn um tíðina en fréttir sem hafa verið undanfarið eru farnar að fá mann til þess að hugsa að það er nú ekki allt í lagi með þetta kerfi. Til dæmis þessi afi sem misnotar barnabarnið sitt og fær þriggja mánaða fangelsi og einhverja fimmtán mánuði skilorðsbundið. Og svo kemur daginn eftir frétt um mann sem neyðir fimmtán ára stelpu til samræðis og fær þrjátíu mánaða fangelsi. Ok á hvorn aðilann mun þetta hafa meiri áhrif þegar fram líða stundir. Ég er ekki að gera lítið úr þessari nauðgun alls ekki en ég held að það muni hafa meiri áhrif á ungt barn, að vera misnotað að afa sínum. Mér finnst þetta ömurlegt hvað það er tekið vægt á kynferðisafbrotamálum gegn börnum. Þessa menn á að loka inni. Sjá til dæmis Steingrím Njálsson. Hvað hann er búinn að misnota marga drengi í gegnum áratugina, og hann er meira frjáls ferða sinni heldur en inni á Hrauninu. Ég skil ekki hvers vegna hann sé að draga andann ennþann dag í dag, að eitthvað foreldri eða fórnarlamb hans sé ekki búið að ganga frá honum fyrir fullt og allt. Mér finnst allavega þetta kerfi engan veginn að virka eins og það kemur manni fyrir sjónir í fréttaflutningi fjölmiðla. En það er eins og það er.Svo er eins með fanga sem verið er að flytja á milli Litla Hrauns sem eru að stinga undir Laganna vörðum. Hvers vegna í ósköpunum eru þessir menn ekki í járnum. Þeir eiga að vera járnaðir á höndum og fótum og helst með svona grímu eins og Anthony Hopkins var með í Silent of the lambs. Heyrði ég fleygt þeirri sentingu í dag að það ætti ekki að vera að auka refsingunua á þá meira en hún er. En HALLÓ þessir menn þyrftu ekki að vera í þessum sporum, þetta er yfirleitt eitthvað sem þeir hafa kallað yfir sig sjálfir. Það er fyrst í fremst öryggi almennings að hafa þessa menn í járnum í staðinn fyrir að missa þá út um allan bær, og í þokkabót er yfirvaldið að gera sig að athlægi með því að geta ekki flutt þá af einum stað yfir á annan án þess að missa þá úr höndum sér..haha hí á ykkur....

Annað sem hefur eflaust mikið verið rætt að kaffistofum landsmanna í dag eru feminista kerlingar, og "sláandi" forsíðuauglýsing í nýjasta Smáralindarbæklingnum. Ég held að það sé ekki allt í lagi með suma. Ég er mikið búinn að horfa á þessa mynd og gæt bara því miður ekki séð neitt kynferðislegt við hana hvort sem ég horfi á hana beint á hvolfi eða á hlið. Ég er því miður ekki að sjá það. Líklegast er það rétt eins og einn hlustandi sídegisútvarpsins á Bylgjunni sagði í dag " Þegar þessar kerlingar eru farnar að sjá eitthvað kynferðislegt út úr svona myndum þá eru það þær sem eru orðnar afbrigðilegar en ekki við, að sjá kynlíf út úr öllu.
Ég vona að ég hafi ekki verið að særa einhverjar feminista konur með þessum skrifum mínum en eins og oft hefur komið fram hér þá er þetta einungis mín skoðum sem hér kemur fram

Lifið heil
Einar Eir

Engin ummæli: