fimmtudagur, 28. júní 2007

Fréttir úr leiksskólanum hjá Elvari Mána

Vesturkot, frétt af starfinu:

Skólahópur fór á Akranes



Í gær fórum við í skólahóp í heimsókn upp á Akranes. Við fórum með strætó og þurftum við að taka fjóra vagna aðra leiðina. Í frábæru veðri fórum við fyrst að skoða Byggðasafnið að Görðum og í hádeginu snæddum við pizzu og fengum gos með!! Eftir það tókum við smá hvíld áður en gengið var á Langasand. Þar lékum við okkur í hvítum sandinum ásamt því að vaða í sjóinn og gerði það mikla lukku. Svo var haldið heim á leið með strætó og lentum við fyrir utan Vesturkot kl:18:00. Þið getið skoðað fleiri myndir á fjölskyldusíðunni.

(27. 6. 2007)

miðvikudagur, 27. júní 2007

þriðjudagur, 26. júní 2007

Varla hægt að bíða eftir þessu !!!




Að drepa eða ekki drepa


Mávar og umtal um þá er búið að vera allnokkuð í umræðunni undanfarna daga, hvort og hvernig eigi að losna við þá af höfuðborgarsvæðinu. Verið er að prufa í "tilraunaskyni" þá mannúðlegu aðferð að svæfa þá. En samt sem áður eru dýraverndunnarsinnar alveg hoppandi yfir þeirri aðferð. Ég verð nú að segja mína skoðun og reynslu af þessu máli. Við hjúin fórum með börnin í gær niður að tjörn í heimabæ okkar til að "gefa öndunum" Þegar við vorum að keyra í áttina að tjörninni var engu líkara en það væri hvít iðandi slikja yfir allra tjörninni. En þegar við keyrðum nær sáum við að þetta að hvílíkur haugur að mávum. Þegar við komum nær og ætluðum að henda brauði til litlu andanna komu þær syndandi í áttina til okkar vitandi það að þarna væru fæðarar á ferð.Brauð var tekið úr pokanum og hent í loftið og þá...var engu líkara en allir mávar væru með staðsetningartæki á sér og gps púnturinn var brauðið. Því það varð allt vitlaust. Tugir máva steyptu sér niður í hyldýpi tjarnarinnar til að ná þessu litla bita sem aumingja litlu endurnar áttu að fá. Og eina sem endurnar gátu gert var að fara í kaf. Elvari fannst þetta að vísu svakalega gaman og henti heilli brauðsneið og ó mí god.... það var eins gott að það voru engir nálægt því það varð algerlega allt kreysí. Maður má teljast heppinn að vera ekki hreinlega étinn í misgripum fyrir brauðsneið. Manni stóð heldur ekki á sama haldandi á pokanum með öllum andamatnum. Allavega hvað þessa ferð varðar þá voru einhverjar 15 sneiðar kláraðar og endurnar fengu ekki neitt. Þá er komið að minni skoðun. Mér finnst þetta ólíðandi að það sé ekki hægt að fara með börnin sín að gefa öndunum brauð nema eiga á hættu að þau séu hreinlega étin. Það á að fá meindýraeyða til að staðsetja sig vð bakka tjarnanna og skjóta á þessi kvikindi með loftriflum. Það á að eyða þessu úr byggð. Ég skil ekki sjónarmið dýraverndunnarsinna því miður er ég ekki að skilja það. Þetta eru nú samt í lagi fyrir mennska tvífætlinga sem þekkja ekki mun á máv, svan eða einni aumingjans önd. Þau hafa jafn gaman af.
En ég vona að einhvern geti komið mér í skilning með það mál allt saman.
En þetta er allavega mín skoðun.

vona að einhverjir geti rifist með þetta mál

óverndarsinninn Einar Eir

föstudagur, 22. júní 2007

Er einhver að skoða síðuna okkar...

Maður veltir því fyrir sér hvort fólk sé hætt að koma inná síðuna okkar. Fer að spá í því hvort þetta sé allt til einskis að vera að skirfa og setja inn myndir, þegar comment eru hætt að koma á síðuna. Ég spyr, er fólk þarna úti í hinum stóra heimi sem er að skoða hjá okkur daglegt líf ? Eða er ég að skrifa inní hið stóra svarthol sem netheimurinn er orðinn ? Er síðan okkar ein af tug milljónum síða sem eru týndar, í einhverjum símalínum, á ljóshraða hringinn í kringum hnöttinn og án áfangastaðar. Og endar hvergi heldur alltaf áfram þangað til hún er tekin í sambandi ? Nei ég bara spyr, er einhver þarna úti ??

Sorgarhöfundur netsins

mánudagur, 18. júní 2007

Þjóðhátíðardagurinn 17.júní



"Hæ hó jibbí jei og jíbbí jei það er kominn sautjándi júní" Þetta er það sem hljómaði í eyrum landsmanna allan gær dag þegar þjóðhátíðardagurinn var haldinn hátíðlegur um mest allt land. Hátíðarhöld voru sérstaklega skemmtilega en hvar annars staðar en í heimabænum Hafnarfirði. Auglýst dagskrá hófst snemma morguns og enduðu ekki fyrr en seint um kvöldið, og hjá eflaust einhverjum hafa hátíðarhöld haldið áfram, fram eftir nóttu, en ekki hjá okkur. Við tókum daginn snemma og ákváðum að drífa okkur um leið og dagskráin byrjaði á Víðistaðatúninu, þar sem búið var að auglýsa tívolí fyrir börnin þar sem allt var frítt.
Við héldum að við kæmum það tímanlega að fólk væri svona við það að tínast á svæðið. En raunin varð önnur. Þegar við komum tíu mínútur yfir auglýsta dagskrá þá var allt orðið kjaftfullt af fólki. Allir hafa eflaust hugsað eins og ætlað að ná fram fyrir alla. Nema þá að hafnfirðingar séu bara alltaf svona tímanlega í öllu.Þetta var allavega skemmtilegt og fóru börnin í tæki þrátt fyrir langar biðraðir. Svo tókum við smá rúnt í nágrannabæjarfélagsins Reykjavíkur, en ákváðum að vera ekkert að fara út úr bílnum. Það er búið að vera svo mikið um ofbeldi þar að við hættum okkur ekkert út. Svo komu Ester Kristján og Guðjón í mat til okkar um kvöldið, og ég og Elvar fórum á tónleika í miðbæinn um kvöldið. Og þá er ég auðvitað að tala um miðbæ Hafnarfjarðar en ekki hvað. Þar voru hinir og þessir að syngja og gleðja Hafnfirðingar. Hara eða Hera systur, man ekki alveg hvort það var, komu sáu og sigr...nei þær voru ekki að sigra neitt.Svo komu homminn og kerlingin, nei nei nei ég ætla ekki að vera með nein leiðindi en Friðrik Ómar og Guðrún Gunnars og svo kom aðalnúmerið, eða það fannst Elvari allavega. Til að byrja á réttum stað með söguna þá fór ég með Elvar í klippingu til Rósu systur fyrir skömmu síðan, og klippti hún hann eins og Jógvan, færeyska sjarmatröllið. Og hefur Elvar verið mjög upptekinn af hárinu á sér eftir það. Það verður að vera í lagi hárið, það verður að vera eins og á Jógvan. Svo fórum við á tónleikana í gær og búið náttúrulega að laga á honum hárið. svo kom sjarmatröllið á sviðið og byrjaði að syngja eins og englinn væri staddur á sviðinu. right.... Þá sgir Elvar við mig "pabbi kallaðu í hann að ég sé eins og hann" og ég sagði honum að hann gæti gert það sjálfur, en hann var ekki að þora því, frekar en faðir hans. Svo hvarf hann af sviðinu eftir örfá lög, Nema hvað, Elvar segir við mig "Pabbi ég ætla aðeins að fara og tala við hann" og ég vissi ekkert hvað hann var að tala um. En þá sá ég að Jógvan stóð og var að árita fyrir um það bil 50 stelpur á aldrinum 10-14 ára, alveg frábær frægð og frami. Nema hvað að Elvar vildi endilega tala við hann. Svo stöndum við í þvörunni og eru að reyna að ná fremst en eru samt ekki með neinn troðning. Og ég varð svo hissa og hálf partinn reiður inní mér. Þarna voru mömmur og ömmur með litlar stelpur og voru hreinlega að troðast og troðst bæði fram fyrir okkur og eins fram fyrir lilar stelpur sem stóðu með stjörnur í augunum og tóku ekki eftir neinu sem var að gerast í kring um þær. Skemmtilegt nok. Allavega við náðum loksins sambandi við hann og þegar hann er að rétta Elvari mynd af sér áritað þá segir Elvar við hann. "þú ert eins og ég, og ég er eins og þú" Hann var ekkert að skilja drenginn strax þrátt fyrir að vera mjög skýrt, og sagði bara "HA" og þá sagði Elvar "Þú veist með hárið" og þá skildi blessaður færeyingurinn hann loksins og sagði við hann " Við erum flottastir" Elvar kom heim sem fyrstu eiginhandaráritunina sem alveg í skýjunum yfir að hafa talað við hann. Þrátt fyrir að hann hafi verið í X-Factor þá er hann Idolið hans eins og er

Nýjar myndir og myndbönd eru að finna á myndasíðunni okkar

Svona var dagurinn í hnotskurn hjá Holtsgenginu
yfir og út

föstudagur, 15. júní 2007

Útskrift hjá Elvari Mána



Jæja þá er Elvar búinn að útskrifast úr leiksskólanum Vesturkoti. Í dag var útskrift og útskriftarveisla í skólanum. Mikið var um söng, gleði og grín. Hópurinn söng lög sem búið er að æfa og æfa af kappi fyrir þennan dag. Og stóðu þessi stubbar sig með stakri príði. Hoppikastalar voru og svo kom Hunda-Óli sem er í Abbabab, einn strákur sem er að vinna á leiksskólanum spilaði og spilaði á gítar eins og honum væri borgað fyrir það ( að vísu var hann eflaust á launum í dag ) svo voru grillaðar mörg hundruð pylsur. Þetta var svakalega gaman og skemmti Elvar sér rosalega vel. Hann fer að vísu í leikskólann aftur eftir helgi en byrjar ekki í Hvaleyrarskóla fyrr en í haust. En allavega góður dagur að kveldi kominn. Myndir eru komnar inná síðuna og einnig tvö myndbönd sem við tókum upp í dag. Njótið þess að horfa og skemta ykkur yfir því

kv Holtsgengið