"Hæ hó jibbí jei og jíbbí jei það er kominn sautjándi júní" Þetta er það sem hljómaði í eyrum landsmanna allan gær dag þegar þjóðhátíðardagurinn var haldinn hátíðlegur um mest allt land. Hátíðarhöld voru sérstaklega skemmtilega en hvar annars staðar en í heimabænum Hafnarfirði.

Auglýst dagskrá hófst snemma morguns og enduðu ekki fyrr en seint um kvöldið, og hjá eflaust einhverjum hafa hátíðarhöld haldið áfram, fram eftir nóttu, en ekki hjá okkur. Við tókum daginn snemma og ákváðum að drífa okkur um leið og dagskráin byrjaði á Víðistaðatúninu, þar sem búið var að auglýsa tívolí fyrir börnin þar sem allt var frítt.
Við héldum að við kæmum það tímanlega að fólk væri svona við það að tínast á svæðið. En raunin varð önnur. Þegar við komum tíu mínútur yfir auglýsta dagskrá þá var allt orðið kjaftfullt af fólki. Allir hafa eflaust hugsað eins og ætlað að ná fram fyrir alla. Nema þá að hafnfirðingar séu bara alltaf svona tímanlega í öllu.

Þetta var allavega skemmtilegt og fóru börnin í tæki þrátt fyrir langar biðraðir. Svo tókum við smá rúnt í nágrannabæjarfélagsins Reykjavíkur, en ákváðum að vera ekkert að fara út úr bílnum. Það er búið að vera svo mikið um ofbeldi þar að við hættum okkur ekkert út. Svo komu Ester Kristján og Guðjón í mat til okkar um kvöldið, og ég og Elvar fórum á tónleika í miðbæinn um kvöldið. Og þá er ég auðvitað að tala um miðbæ Hafnarfjarðar en ekki hvað. Þar voru hinir og þessir að syngja og gleðja Hafnfirðingar. Hara eða Hera systur, man ekki alveg hvort það var, komu sáu og sigr...nei þær voru ekki að sigra neitt.

Svo komu homminn og kerlingin, nei nei nei ég ætla ekki að vera með nein leiðindi en Friðrik Ómar og Guðrún Gunnars og svo kom aðalnúmerið, eða það fannst Elvari allavega. Til að byrja á réttum stað með söguna þá fór ég með Elvar í klippingu til Rósu systur fyrir skömmu síðan, og klippti hún hann eins og Jógvan, færeyska sjarmatröllið. Og hefur Elvar verið mjög upptekinn af hárinu á sér eftir það. Það verður að vera í lagi hárið, það verður að vera eins og á Jógvan. Svo fórum við á tónleikana í gær og búið náttúrulega að laga á honum hárið. svo kom sjarmatröllið á sviðið og byrjaði að syngja eins og englinn væri staddur á sviðinu. right.... Þá sgir Elvar við mig
"pabbi kallaðu í hann að ég sé eins og hann" og ég sagði honum að hann gæti gert það sjálfur, en hann var ekki að þora því, frekar en faðir hans. Svo hvarf hann af sviðinu eftir örfá lög, Nema hvað, Elvar segir við mig "Pabbi ég ætla aðeins að fara og tala við hann" og ég vissi ekkert hvað hann var að tala um. En þá sá ég að Jógvan stóð og var að árita fyrir um það bil 50 stelpur á aldrinum 10-14 ára, alveg frábær frægð og frami. Nema hvað að Elvar vildi endilega tala við hann. Svo stöndum við í þvörunni og eru að reyna að ná fremst en eru samt ekki með neinn troðning. Og ég varð svo hissa og hálf partinn reiður inní mér.

Þarna voru mömmur og ömmur með litlar stelpur og voru hreinlega að troðast og troðst bæði fram fyrir okkur og eins fram fyrir lilar stelpur sem stóðu með stjörnur í augunum og tóku ekki eftir neinu sem var að gerast í kring um þær. Skemmtilegt nok. Allavega við náðum loksins sambandi við hann og þegar hann er að rétta Elvari mynd af sér áritað þá segir Elvar við hann.
"þú ert eins og ég, og ég er eins og þú" Hann var ekkert að skilja drenginn strax þrátt fyrir að vera mjög skýrt, og sagði bara
"HA" og þá sagði Elvar
"Þú veist með hárið" og þá skildi blessaður færeyingurinn hann loksins og sagði við hann
" Við erum flottastir" Elvar kom heim sem fyrstu eiginhandaráritunina sem alveg í skýjunum yfir að hafa talað við hann. Þrátt fyrir að hann hafi verið í X-Factor þá er hann Idolið hans eins og er
Nýjar myndir og myndbönd eru að finna á myndasíðunni okkar
Svona var dagurinn í hnotskurn hjá Holtsgenginu
yfir og út
1 ummæli:
Það hefur verið aldeilis flott að fá eiginhandaráritun frá goðinu :) en við erum nú viss um að hann Elvar er langflottastur . biðjum voðalega vel að heilsa ykkur , við eyddum okkar degi á Spáni í 36° hita , :) kær kveðja Heiða og fjölsk
Skrifa ummæli