þriðjudagur, 26. júní 2007

Að drepa eða ekki drepa


Mávar og umtal um þá er búið að vera allnokkuð í umræðunni undanfarna daga, hvort og hvernig eigi að losna við þá af höfuðborgarsvæðinu. Verið er að prufa í "tilraunaskyni" þá mannúðlegu aðferð að svæfa þá. En samt sem áður eru dýraverndunnarsinnar alveg hoppandi yfir þeirri aðferð. Ég verð nú að segja mína skoðun og reynslu af þessu máli. Við hjúin fórum með börnin í gær niður að tjörn í heimabæ okkar til að "gefa öndunum" Þegar við vorum að keyra í áttina að tjörninni var engu líkara en það væri hvít iðandi slikja yfir allra tjörninni. En þegar við keyrðum nær sáum við að þetta að hvílíkur haugur að mávum. Þegar við komum nær og ætluðum að henda brauði til litlu andanna komu þær syndandi í áttina til okkar vitandi það að þarna væru fæðarar á ferð.Brauð var tekið úr pokanum og hent í loftið og þá...var engu líkara en allir mávar væru með staðsetningartæki á sér og gps púnturinn var brauðið. Því það varð allt vitlaust. Tugir máva steyptu sér niður í hyldýpi tjarnarinnar til að ná þessu litla bita sem aumingja litlu endurnar áttu að fá. Og eina sem endurnar gátu gert var að fara í kaf. Elvari fannst þetta að vísu svakalega gaman og henti heilli brauðsneið og ó mí god.... það var eins gott að það voru engir nálægt því það varð algerlega allt kreysí. Maður má teljast heppinn að vera ekki hreinlega étinn í misgripum fyrir brauðsneið. Manni stóð heldur ekki á sama haldandi á pokanum með öllum andamatnum. Allavega hvað þessa ferð varðar þá voru einhverjar 15 sneiðar kláraðar og endurnar fengu ekki neitt. Þá er komið að minni skoðun. Mér finnst þetta ólíðandi að það sé ekki hægt að fara með börnin sín að gefa öndunum brauð nema eiga á hættu að þau séu hreinlega étin. Það á að fá meindýraeyða til að staðsetja sig vð bakka tjarnanna og skjóta á þessi kvikindi með loftriflum. Það á að eyða þessu úr byggð. Ég skil ekki sjónarmið dýraverndunnarsinna því miður er ég ekki að skilja það. Þetta eru nú samt í lagi fyrir mennska tvífætlinga sem þekkja ekki mun á máv, svan eða einni aumingjans önd. Þau hafa jafn gaman af.
En ég vona að einhvern geti komið mér í skilning með það mál allt saman.
En þetta er allavega mín skoðun.

vona að einhverjir geti rifist með þetta mál

óverndarsinninn Einar Eir

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég verð eiginlega að vera sammála þessu , þeas að það verði að gera e-rn fjandann. Sá myndbrot um daginn frá Finnlandi að mig minnir þar sem mávur reif samloku úr höndunum á konu sem var á gangi inní miðjum bæ. Þetta eru óargardýr sem má mín vegna alveg farga. Annars endar þetta bara með því að maður geti ekki fengið sér pulsu niðri bæ án þess að þessi kvikindi ráðist á mann

Nafnlaus sagði...

Nei nákvæmlega..nú erum við vinirnir sammála. Man einmitt eftir skemmtilegu atviki úr Mývatnssveitinni þegar útlendingar voru að grilla pylsur á tjaldsvæðinu ( vorum að fylgjast með þeim ) og mávarnir komu alltaf og steyptu sér niður á grillið og átu pylsurnar. En bottom line þetta eru óargadýr sem eiga ekki heima hvorki í borg né bæ.

Nafnlaus sagði...

Ég er nú algjörlega sammála þér með þessa máva , það á bara að fara í heiðina og fækka þeim verulega , þá er síður að þeir fari í byggðina , hér er sama sagan um tjörnina , þú mátt þakka fyrir að halda höndum ef þeir sjá brauðsneið í henni og endurnar verða bara undir í baráttunni , Svo þegar maður fer út til að grilla , þá er nú betra að vera með regnhlíf (ý) :) svo þeir sjái ekki steikina hehe , en eins og þú segir þá er eins og þeir séu með staðsettnigartæki því þeir raða sér hér upp á bílskúrsþak og mæna á mann, svo er allt í skít eftir þá bíllinn, pallurinn og garðhúsg arg arg ,. Kveðja til ykkar allra frá Heiðu og fjölsk