miðvikudagur, 25. júlí 2007

1400 myndaferðin til Svíaveldis



Jæja þá erum við komin heim frá yndislegri ferð okkar til Svíþjóðar. Hér kemur ferðasagan í stuttu máli.
Dagur eitt. Við áttum flug til Svíþjóðar klukkan 07:50 og þurfum náttúrulega að vakna mjög snemma til að fara út á völl. Og var ákveðið að vakna ekki seinna en 04:30 og koma sér í gírinn. Ása fór að vísu aðeins fyrr á fætur og vaknaði um klukkan 03:48 með ælupest, frábær byrjun á ferðalagi. Elvar vaknaði rúmlega fjögur og byrjaði að æla líka.....þetta gat ekki byrjað betur eða þannig. jæja það var ekki hægt að láta deigan síga þannig að öllum var komið út í bíl í misjafnlega góðu ástandi. Annað hvort með æluna í hálsinum eða hrikalega þreyttir. Hittum við afa og ömmu ( Kristján og Ester en við fórum einmitt með þeim )Flugferðin gekk svona upp og ofan. Elvar ældi, Ása á mörkunum og Ester Una grét töluvert og svaf ekki neitt að öllum líkindum vegna þrýstings í höfðinu. Nema hvað um leið og vélin lenti þá hætti hún að gráta og augun láku niður og hún sofnaði á einni sekúndu. Þegar við komum til Adda og Rögnu Þá brutust út mikil fagnaðarlæti hjá Kristjáni Atla og Berglindi þar sem þau vissu ekki að við værum að koma. Og kom Kristjáni að tala við mig stuttu eftir að við komum og sagði mér að hann hafi ekki trúað þvi að við værum komin og hann hafi haldið að honum væri að dreyma. Krakkarnir fóru starx til að byrja með í pottinn og sundlaugina en það er einmitt hvoru tveggja á staðnum, og skemmtu þau sér konunglega.Ása fór í "bakaríið" með Rögnu og mömmu sinni en "bakaríið" var þegar ég vissi seinna meir yfirhalming yfir H&M fataverslunina. Gott move. Og það sem ég byrjaði á að gera var að fá mér bjór. En Addi er með andsk. skemmtilega bjórdælu í eldhúsinu sem kom sér mjög vel í þessari ferð, og þakka ég þér kærlega fyrir Addi minn. Ég á eftir að fá mér svona einhvern tíman en held að ég verið að hafa falda í geymslunni. Grillað var um kvöldið dýrindis grillpinna, og svo var drukkinn aðeins meiri bjór og léttvín af eðal tegundum.
Dagur tvö. Nutum dagsins í botn í garðinum allan daginn með bjór í annarri og sól í hinni. En það var klikkað gott veður. Farið í pottinn, farið á trampolín, farið í sólbað og svo aftur í pottinn og svo drukkinn aðeins meiri bjór. Dagur eins og hann gerist bestur. Um kvöldið kom amerísk hellidemba og var engu líkara en himarnir opnuðust og það rigndi álíka mikið á 15 mín eins og á einu góðu rigningartímabili á höfuðborgarsvæðinu. Og auðvitað varð ég að hlaupa út og hljóp einn hring í kringum húsið. Þegar ég kom svo inn var ég svo blautur að ég þurfti meira að segja að fara úr nærbuxunum.
Dagur þrjú. Fórum inn í Stokkholm og eyddum deginum í að skoða gamla bæinn og tók ég nokkrar myndir þar, allnokkrar. Skoðuðum og skoðuðum. versluðum og versluðum, löbbuðum og löbbuðum þangað til við ákváðum að fá okkur að borða. Og fyrir valinu varð T.G.I Fridays. Við fengum borð fljótlega og pöntuðum okkur. Níu réttir voru pantaðir og þegar þeir loksins komu eftir langan tíma þá voru sjö af níu réttum ískaldir...framleiðsludaman var kölluð til og látin taka þetta allt til baka. Við urðm náttúrulega frekar svekt og sumir aðeins svektari en aðrir. Í sárabætur fengum við Nachos sem náði rétt svo að seðja mesta hungrið því allavega ég var rétt í því að fara að ganga berseksgang vegna hungurs. Á endanum fengum við matinn heitann. En allavega mun ég ekki mæla með þessum stað. Fáið ykkur frekar sænska pylsu.
Dagur fjögur. Tívolí Grönelund ( sorry Addi ef þetta er ekki rétt skrifað ) svakalega gaman í þessu tívolíi og mæli ég með því að ef þið farið til Svíaveldis þá verði þið að fara í það. Allt og mikið að segja frá öllum sem var gert þar. En Elvar tók ástfóstri við eitt tæki og hefði verið ef hann hefði fengið að ráða í því allan daginn. Ester Una fór einnig í eitt tæki og var það lítið parísarhjól og átti ég í erfiðleikum með að halda henni kjurri þar sem hún var ekki á því að sitja á rassinum og horfa út. Ég og Ása fórum einnig saman í einn rússibana og var það mjög gaman enrosalega var ég með miklar hellur eftir ferðina vegna mikilla öskra í Ásu...nei nei ég er að grínast með það. Mjög skemmtileg 90 sec ferð. Síðan var farið í femmkamp ( veit ekki hvort þetta sé skrifað svona, ekki alveg nógu góður í sænskunni ) en þetta byggist upp á fimm þrautum eða keppnum sem eru í svona básum eins og eru allt í tívolíum. Sigurvegarinn í þessu var hún Ása mín rétt marði þetta. Svo endaði dagurinn á því að Elvar tók smá kast þegar var komið að því að fara heim. Ekki alveg á því að fara. Grillað um kvöldið,drukkið bjór og farið í pottinn að slaka á eftir erfiðann tívolí dag.
Dagur fimm. Kristján Atli átti afmæli þennan dag og byrjaði dagurinn á því að hann opnaði pakkana sína. Ég og Ása fórum í Mall-ið í Taby ( Tebý ) og versluðum töluvert. Atli og Kristín mamma og pabbi Rögnu komu og einnig Elma systir hennar. Svo þegar við komum heim var byrjað að undirbúa afmælisgrillveislu. Svo var afmæliskaffi. Svo var farið í pottinn og svo var drukkið aðeins meiri bjór. Enginn endir á allri sólinni og blíðunni.
Dagur sex. Skírnardagurinn mikli. Allir voru að hjálpa Adda og Rögnu að græja þennan dag. Presturinn var íslenskur, búandi í Gautaborg, og kom með lestinni. Skírnin fór fram í garðinum í brjálaðislega góðu veðri og var ég hálf hissa á því að blessaður presturinn myndi ekki leka niður í hitanum. Svo var barnið skírt Fanney Birta. Svakaleg veisla byrjaði upp frá því. Byrjaði á kökuveislu með dýrindis kræsingum og meira að segja íslensku heimagerðu og heimareyktu hangikjöti.mmmhhhhh. Svo var farið í riddaraspil með prestinum( en það er mjög skemmtilegt útispil sem allir hafa gaman af og mæli ég eindregið með að allir reyni að verða sér úti um eitt stykki. Töluvert var drukkið af bjór, hvítu og rauðu fram eftir kvöldi.
Dagur sjö. Heimferð. Farið á völlinn um klukkan 11:30 áttum flug klukkan 14:30. Eins og í ferðinni út var Ester Una ekki alveg mógu góð og átti frekar erfitt. Svaf ekki neitt og grét töluvert. Nema hvað þegar vélin lenti heima þá láku augun niður og hún sofnaði á 2 sec. Og svaf hún allan tíman meðan við fórum út úr vélinni og geng um fríhöfnina og tollinn út í bíl en vakaði svo þegar við vorum komin heim.
Allavega, Frábær ferð þar sem myndavélinni var haldið töluvert á lofti allavega eitthvað hlýtur það að vera þar sem ég tók um 1400 myndir og geri aðrir betur. Set eitthvað að myndunum inná myndasíðuna mjög fljótlega.
Viljum þakka Adda og Rögnu innilega fyrir gestrisnina, og allan bjórinn...þetta var mjög gaman og gott að koma á ykkar heimili og eyða með ykkur og krökkunum.
Þökkum innilega fyrir allt og allt

Yfir og út BæjarholtsMafían

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Velkomin heim kæra fjölsk , það hefur verið aldeilis fjör í svíaríki , og ekki efa ég gestrisnina hjá Adda og Rögnu , miða við myndirnar hjá Adda þá hefur verið sprellað, góðar hlátur myndir að sjá hehe það væri nú gaman að heyra brandarann sem fékk systu til að hlæja svona svakalega :) hlakka til að skoða myndirnar ykkar , best að gefa sér góðan tíma í það miða við fjöldann hehe, Ása mín fékkstu nokkuð æði í HM , eða var það eins og á Spáni bara sumarföt :) jæja kærar kveðjur til ykkar , frá Heiðu og fjölsk