komið að einni færslu. Margt er búið að gerast frá síðustu færslu. Við erum búin að fara í sumarbústað með Erlu perlu og villa..grilla, áttum æðislega helgi með þeim í munaðarnesi. Það er munaður að vera í munaðarnesi..haha myndir komnar á síðuna frá þeirri ferð. Svo er Elvar búinn að fara norður og vera í sex daga var að koma heim í gær, með flugi í fyrsta skiptið einn í flugvél. Hann skemmti sér víst voðalega vel fyrir norðan, brasaði eitt og annað með afa sínum. Svo núna erum við að fara að pakka niður í töskur því við erum að fara til útlanda á mánudagsmorguninn. Það verður rosa gaman, upplýsi nánar síðar hvert verður farið.
Við Ása erum bæði komin í sumarfrí frá og mð deginum í gær. Það er ótrúlega næs að við getum verið saman í fríi. Ester Una er hætt hjá Kristínu og var víst töluverður söknuður, enda er Kristín búin að vera með hana frá því hún vera fimm eða sex mánaða. Elvar er líka kominn í frí í leikskólanum en ekki alveg hættur hann á eftir að fara í nokkra daga áður en hann fer í alvöru skólann. Jæja nóg í bili
kv Fjölsk. Holtinu
1 ummæli:
Gaman að heyra frá ykkur , skemmtið ykkur vel í útlandinu , gruna nú hvert sé verið að halda en segi ekki neitt , bíð bara eftir ferðasögunni :) kær kveðja til ykkar, Heiða og fjölsk
Skrifa ummæli