Sæl verið gott fólk
Komið er að nýrri færslu til að upplýsa fólk hve mikið hefur drifið á daga okkar síðan síðast.
Elvari gengur svakalega vel í skólanum og finnst voðalega gaman. Hann er líka byrjaður að æfa handbolta með FH og æfir hann með áttunda flokki. Hann er tvo daga í viku og er það toppurinn.
Ester Unu gengur vel í leikskólanum og hefur tekið ástfóstri við asísku fóstruna sem þar er.
Ása er byrjuð að þjálfa handbolta og er það sjöundi flokkur telpna sem hún þjálfar þrjá daga í viku. Heimilisfaðirinn hefur tekið við nýju starfi innan fyrirtækisins, og er nú orðinn deildarstjóri RMA deildar fyrirtækisins. Er það mikil áskorun sem því fylgir, og er það gott mál. Það sem er að fara gerast hjá okkur er það að ég og Ása eru að fara til Færeyja á árshátíð hjá Hátækni í lokk mánaðarins og hlökkum mikið til að heimssækja frændur okkar í færeyjum. Þetta er svona það sem mest hefur verið undanfarið. Lofa ég að herða mig í upplýsingum til ykkar í gegnum veraldarvefinn, um það sem drífur á daga okkar.
kv Einar Eir
Engin ummæli:
Skrifa ummæli