laugardagur, 20. október 2007

Sex dagar í Færeyjar


Jæja getum nú ekki neitað því að það er tilhlökkun fyrir því að fara til Færeyja. Aðeins eru sex dagar í það. Eins og fram hefur komið áður hér þá er þetta árshátíð hjá Hátækni, og verður flogið frá þreykjavíkurflugvelli næstkomandi föstudag og komið heim á sunnudag. Gaman verður að hitta og sjá frændur okkar Færeyinga, vona að þeir séu ekki eins og Þingeyingar..nei nei grín. Eitt er það sem ég og við munum smakka og er það skerpukjöt og verður það mjög spennandi. Annars verður nánar sagt frá þessu seinnna. Heimilislífið gengur sinna vandagang fyrir utan að Ester Una er búinn að vera frekar mikið veik undanfarna daga frá fimmtudegi til miðvikudags en það er nú allt komið, og hún orðin eins og hún á að sér að vera.
Nánar um Föreyjar seinna

yfir og út

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Komið þið sæl og blessuð öll sömul , hvar er þessi flugvöllur þreykjavíkurflugvelli ? :) biðjum að heilsa kær kv frá Heiðu og fjölsk

Nafnlaus sagði...

Ok þetta er bara að skella á , skemmtið þið ykkur rosalega vel á árshátíðinni , og vonandi smakkast skerpuketið vel , fyrir minn smekk er það ó..ð hehe en það er bara minn smekkur :) góða skemmtun , kv .Heiða og co