sunnudagur, 16. nóvember 2008

Tími til kominn

Margir hugsa eflaust núna sé tími til kominn að fjarðargengið láti í sér heyra. Alltof mikið hefur drífið á daga okkar undanfarið. Hápunktur dagsins í dag ef afmælisveislan sem var hjá okkur. Litla Ester okkar átti afmæli á miðvikudaginn var og haldin var veisla henni til heiðurs í dag. Þetta var frekar lítil veisla, enda kreppa er það ekki ? Annað sem staðið hefur upp úr undanfarið er að heimilisfaðirinn missti vinnuna sína, þegar BT fór í þrot. Undirbúningur jólanna er að hefjast og ég veit ekki hvað og hvað. Elvar er búinn að missa allar framtennurnar og er orðinn mjög gúffalegur að sjá. En ég lofa núna að fara herða mig í því að skrifa á síðuna okkar.
Þangað til næst, og lofa að það verði ekki eins langt og síðast
Einar og co.

miðvikudagur, 6. ágúst 2008

Að láta taka mynd af sér

Sumir ættu ekki að láta taka mynd af sér, allavega ekki án fata. Fann þess skemmtilegu mynd á veraldarvefnum ( ekki það að ég sé eitthvað mikið að leitast eftir svona myndum ) og fékk vægt sjokk yfir henni.
Allavega það sem ég myndi vilja segja við þessa konum....EKKI LÁTA TAKA FLEIRI MYNDIR AF ÞÉR ÁN FATA

þriðjudagur, 22. júlí 2008

Sumargleði UMF Brennza

Óvissuólympíuleikar Sumargleði UMFB var haldin síðastliðna helgi.
Hér eru myndbrot af þeim.

föstudagur, 18. júlí 2008

Ljósmyndamyndbönd af krökkunum

Ég var að búa til ljósmyndamyndbönd af krökkunum, ljósmyndir af þeim í gegnum tíðina. Því miður eru ekki margar myndir af Elvari frá því hann var pínu lítill því þær fóru þegar gamla talvan hrundi um árið. Allavega vonandi að þið sem horfið njótið 

kv Einar Eir

mánudagur, 14. júlí 2008

Sunnudagsóvissuferð

Við fórum í óvissuferð sem endaði ekki eins vel og búist hafði verið við. Þannig var að Kristján Atli gisti hjá okkur og ákváðum við Ása að fara með krakkana í óvissuferð á sunnudeginum. Vorum allir pakkaðir vel inn í fatnað þar sem rigning hafi verið um morguninn. Smurt var nesti og svo var farið í nýja skó. Við ákváðum að fara í fjöruferð nema hvað við vorum ekki alveg vissum hvaða fjöru við ætluðum í, Gróttan er alltaf classic en það er fjaran sem allir fara alltaf í, þannig að við vildum fara í einhverja aðra. Þá minnist Ása þess úr æsku að hún hafi farið í fjöruferð fyrir neðan Garðakirkju, var keyrst þangað en ekki reyndist það vænlega fjara. Við enduðum í Gróttu, stigum út úr bílnum í hávaða roki og mígandi rigningu. Hlaupið var niður í fjöru nokkrir krabbar týndir í poka og svo var hlaupið aftur uppí bíl, þar sem nánast allir vorum við það að fá kal. Bíllinn settur í gang, miðstöðin á fullan hita og nestið borðað í bílnum. En eins og Kristján Atli kom svo skemmtilega að orðið " Mjög skemmtileg óvissuferð en fékk blauta og snöggan endi" 

fimmtudagur, 10. júlí 2008

Fyrsta tönnin farin


þá er litli kúturinn okkar búinn að missa sína fyrstu tönn. Önnur framtönnin að neðan er búin að vera dálítið laus undanfarna daga og brá faðir drengsins á það ráð í kvöld að klára þetta, rífa úr honum þessa lausu tönn. Það var vont í smá stund og svo var þetta búið, guttinn kominn í rúmið skömmu seinna og tönnin út í glugga. Já hann vildi setja hana út í glugga vegna þess að hann sagði okkur að, ef hann myndi setja hana undir koddann þá myndi hann bara fá eina krónu en ef hann myndi setja hana út í glugga þá fengi hann 10.krónur eða hundrað kall. Svo er bara að bíða og sjá hvað verður í glugganum hjá honum á morgun 

kv Einar og Ása

miðvikudagur, 9. júlí 2008

Komin úr vordvala...

Jæja þá er komið að því einu sinni enn að lofa öllum sem lesa þetta að ég fari að taka mig saman í andlitinu og byrja að skrifa markvisst. Töluvert er búið að vera að gera hjá the family undanfarið. Ég og Ester Una erum í sumarfríi þessa dagana og Elvar Máni á kafi í leikjanámskeiðum, hann er einnig ný búinn að vera á golfnámskeiði þar sem honum gekk alveg glymrandi vel, Ása er að vinna. Ekki gaman að vera að vinna þegar restin af The Family er í fríi. En þetta er einmitt það sem við höfum upp úr því þegar bæjarfélög ákveða að hafa leiksskóla lokaða hluta úr ári. Ég er á móti þessu, en hverju fæ ég breytt...engum sköpuðum hlut. Við fórum til Akureyrar fyrir stuttu síðan áttum þar yndislega heldi eins og venjulega hjá afa og ömmu, nema hvað. Við komum heim "nýjum" bíl. Við fórum á rúntinn á bílasölur og sáum draumabílinn á ákváðum að gera allt sem við gætum til að kaupa hann. Og hvað haldi þið, við þurftum nú ekki að gera mikið til að eignast hann. Fimm tímum eftir að við sáum hann, áttum við hann takk fyrir takk. Toyota Corolla Verso sjö manna eðalvagn. Elvar er þessa stundina í Nauthólsvik að baða sig með krökkunum úr leikjanámskeiðinu og í morgun var hann í keilu með þeim. Ég og Ester Una byrjuðum í sumarfríi á mánudaginn og strax í gær þriðjudag var hún farin að væla um það að fara á leiksskólan og hitta krakkana. "Pabbi leigóla leiga grakka" þannig að því var redda og er hún búin að fara í gær og í dag á róló og leika við krakka og er ekkert smá ánægð með lífið þar. Við erum einnig búin að fara í tvær útilegur það sem af er júní. Fórum með pabba og Sollu í Langbrók í Fljótshlíð og svo fórum við í Húsafell síðustu helgi með stórum hóp af fólki. Hvoru tveggja mjög skemmtilegar ferðir þó að verðrið í Húsafelli hafi nú nánast toppað allt. jæja þá fer þetta að vera gott í bili. Nýjar myndir verð komnar inn á myndsíðuna okkar innan tíðar

Med venlig hilsen 
Einar og co. 

mánudagur, 12. maí 2008

Allt að gerast

Nú er allt að fara að gerast hjá okkur, Florida eftir örfáa daga. Elvar Máni er gjörsamlega að missa sig yfir þessu öllu saman. Honum hlakkar svakalega mikið til. Ester Una talar alltaf um að hún ætli að sjá mikka mús og mínu mús, og prinsessur. Okkur foreldrunum hlakkar einnig til en erum samt sem áður ekkert að átta okkur á því að við séum að fara eftir þrjá daga. En þetta kemur allt á föstudaginn, en þá förum við út. Við vorum á árshátíð um helgina sem heimilisfaðirinn var meðal annars á sjá um, þetta var á hótel Selfossi frábær hátíð í alla staði mikið drukkið mikið dansað og mikil gleði allt eins og það á að vera. Jæja þá verða þetta lokaorðin í bili

tjá
Einar Eir

sunnudagur, 30. mars 2008

Páskar ofl.

Jæja þá er komið að einni færslu til að uppfylla þörfum bloggþystra netverja. Um páskana vorum við fyrir norðan hjá öllum öfunum og ömmunum. Mikið skemmtilegt var gert á Akureyri til dæmis farið í sundlaugina hennar Unu ömmu og svo borðað og borðað og einn daginn fórum við Elvar uppí Hlíðarfjall með eitt stykki Stiga sleða, og renndum okkur niður fjallið meðfram veginum, á tímabili var föðurnum hætt að lítast á blikuna vegna ofsafengins hraða sem við vorum komnir á, en við sluppum við teljandi meiðsl. Á laugardeginum urðum við vitni af því að Subaru Legacy bíll brann til kaldra kola beint fyrir utan húsið hjá afa og ömmu, ótrúlega sjón, getið séð fullt af myndum á myndasíðunni okkar. Við þökkum fjölskyldunni fyrir norðan kærlega fyrir getrisnina og allt.
Kveðja Bæjarholtið.

föstudagur, 14. mars 2008

Nýr Mafíubíll

Jæja þá er búið að kaupa nýjan bíl fyrir stórfjölskylduna. Fyrir valinu varð svakalegur kaggi, eða nánar tiltekið Toyota Corolla H/B árgerð 2005. Þetta er lítill gæjabíll með fullt af aukahlutum og ég veit ekki hvað og hvað. Það er einungis ein gömul kona búin að eiga hann frá því hann var nýr, kona í Borgarnesi og er hann keyrður 24.þús sem þykir nú ekki mikið nú til dags. Ekki er nú mikill söknuður frá Gamla Ford, enda var hann að við teljum að fara syngja sinn síðasta hljóm. En allavega nýr bíll kominn og myndir af vanginum koma inn innan tíðar

Lifið heil
kveðja Við á nýja bílnum

sunnudagur, 17. febrúar 2008

Ekkert Eurovision party í ár.


Því miður verðum við að tilkynna að í ár mun sá árlegi viðburður Eurovision partýið sem við höfum haldið í mörg ár mun ekki verða árið 2008. Svo óheppilega vill til að við verðum í USA þegar keppnin á sér stað. Biðjum við þá sem hafa átt húsaskjól hjá okkur á þessum dögum að leita annað því miður. En þetta verður þá miklu miklu stærra eftir það. Árið 2009 verður stærsta Europartý aldarinnar.

Þetta tekur okkur sárt, mjög...
Einar og Ása

mánudagur, 4. febrúar 2008

Heimasíðan hjá bekknum hans Elvars

Eitt sem ég vildi koma á framfæri og er það heimasíðan sem bekkurinn hans Elvars er kominn með. Það munu þau setja inn það sem þau eru að gera hverju sinni.
Hægt er að skoða myndir og ýmislegt, það er á stikunni hægra megin á skjánum
Slóðin er eftirfarandi.
http://www.123.is/1.bekkirhvaleyrarskola.

Njótið vel

Mamma og pabbinn

Smá fréttir

jæja þá er komið að smá fréttum af Holtinu. Ester Una og búinn að vera með hlaupabólur og það ekkert smá. Barnið var alveg þakið í bólum, hún var eiginlega ein bóla en er það nú búið, sem betur fer. Heimilisfaðirinn fór að hitta kennarann hans Elvar í foreldraviðtali og var verið að fara yfir hvernig hann hefur verið að standa sig í skólanum. Og viti menn....hann ætlar greinilega ekki að feta í fótspor föðursins hvað það varðar. Hann er að standa sig mjög vel í lestri og lesskilningi, og svo í reikningi...herre guð. Hann fór í reikningspróf og lögð voru fyrr hann 28 dæmi og var hann með 28 rétt af þeim. Sem sagt hann fékk 10 í einkunn. Og er það meira en faðir hans fékk samanlagt í stæðfræði alla sína skólagöngu, eða svona hér um bil. Annars er allt gott að frétta af okkur. vildi bara láta vita.
Set inn nýjar myndir fljótlega af okkur hér af Holtinu

kv Við