Jæja þá er komið að því einu sinni enn að lofa öllum sem lesa þetta að ég fari að taka mig saman í andlitinu og byrja að skrifa markvisst. Töluvert er búið að vera að gera hjá the family undanfarið. Ég og Ester Una erum í sumarfríi þessa dagana og Elvar Máni á kafi í leikjanámskeiðum, hann er einnig ný búinn að vera á golfnámskeiði þar sem honum gekk alveg glymrandi vel, Ása er að vinna. Ekki gaman að vera að vinna þegar restin af The Family er í fríi. En þetta er einmitt það sem við höfum upp úr því þegar bæjarfélög ákveða að hafa leiksskóla lokaða hluta úr ári. Ég er á móti þessu, en hverju fæ ég breytt...engum sköpuðum hlut. Við fórum til Akureyrar fyrir stuttu síðan áttum þar yndislega heldi eins og venjulega hjá afa og ömmu, nema hvað. Við komum heim "nýjum" bíl. Við fórum á rúntinn á bílasölur og sáum draumabílinn á ákváðum að gera allt sem við gætum til að kaupa hann. Og hvað haldi þið, við þurftum nú ekki að gera mikið til að eignast hann. Fimm tímum eftir að við sáum hann, áttum við hann takk fyrir takk. Toyota Corolla Verso sjö manna eðalvagn. Elvar er þessa stundina í Nauthólsvik að baða sig með krökkunum úr leikjanámskeiðinu og í morgun var hann í keilu með þeim. Ég og Ester Una byrjuðum í sumarfríi á mánudaginn og strax í gær þriðjudag var hún farin að væla um það að fara á leiksskólan og hitta krakkana. "Pabbi leigóla leiga grakka" þannig að því var redda og er hún búin að fara í gær og í dag á róló og leika við krakka og er ekkert smá ánægð með lífið þar. Við erum einnig búin að fara í tvær útilegur það sem af er júní. Fórum með pabba og Sollu í Langbrók í Fljótshlíð og svo fórum við í Húsafell síðustu helgi með stórum hóp af fólki. Hvoru tveggja mjög skemmtilegar ferðir þó að verðrið í Húsafelli hafi nú nánast toppað allt. jæja þá fer þetta að vera gott í bili. Nýjar myndir verð komnar inn á myndsíðuna okkar innan tíðar
Med venlig hilsen
Einar og co.
1 ummæli:
Já tími til kominn að fara að setja inn á síðuna einhverjar fréttir hehe, aldeilis búið að ferðast og gott að allt hafi tekist vel . Til hamingju með nýja bílinn og vonandi reynist hann ykkur vel . Kannast við þetta að börnin manns verða leið á manni eftir skamma stund ef ekki er verið með stíft prógramm á þau hehe , þá er um að gera að nota rólóinn og leyfa þeim að fá útrás þar :) , biðjum voðalega vel að heisa öllum , hafið það sem best , kv Heiða og fjölsk
Skrifa ummæli