mánudagur, 14. júlí 2008

Sunnudagsóvissuferð

Við fórum í óvissuferð sem endaði ekki eins vel og búist hafði verið við. Þannig var að Kristján Atli gisti hjá okkur og ákváðum við Ása að fara með krakkana í óvissuferð á sunnudeginum. Vorum allir pakkaðir vel inn í fatnað þar sem rigning hafi verið um morguninn. Smurt var nesti og svo var farið í nýja skó. Við ákváðum að fara í fjöruferð nema hvað við vorum ekki alveg vissum hvaða fjöru við ætluðum í, Gróttan er alltaf classic en það er fjaran sem allir fara alltaf í, þannig að við vildum fara í einhverja aðra. Þá minnist Ása þess úr æsku að hún hafi farið í fjöruferð fyrir neðan Garðakirkju, var keyrst þangað en ekki reyndist það vænlega fjara. Við enduðum í Gróttu, stigum út úr bílnum í hávaða roki og mígandi rigningu. Hlaupið var niður í fjöru nokkrir krabbar týndir í poka og svo var hlaupið aftur uppí bíl, þar sem nánast allir vorum við það að fá kal. Bíllinn settur í gang, miðstöðin á fullan hita og nestið borðað í bílnum. En eins og Kristján Atli kom svo skemmtilega að orðið " Mjög skemmtileg óvissuferð en fékk blauta og snöggan endi" 

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ha ha ha það hefði nú verið gaman að sjá ykkur þarna :) og góður punktur hjá Kristjáni Atla :) biðjum að heilsa í bæinn kær kveðja , Heiða og fjölsk