þriðjudagur, 22. júlí 2008

Sumargleði UMF Brennza

Óvissuólympíuleikar Sumargleði UMFB var haldin síðastliðna helgi.
Hér eru myndbrot af þeim.

föstudagur, 18. júlí 2008

Ljósmyndamyndbönd af krökkunum

Ég var að búa til ljósmyndamyndbönd af krökkunum, ljósmyndir af þeim í gegnum tíðina. Því miður eru ekki margar myndir af Elvari frá því hann var pínu lítill því þær fóru þegar gamla talvan hrundi um árið. Allavega vonandi að þið sem horfið njótið 

kv Einar Eir

mánudagur, 14. júlí 2008

Sunnudagsóvissuferð

Við fórum í óvissuferð sem endaði ekki eins vel og búist hafði verið við. Þannig var að Kristján Atli gisti hjá okkur og ákváðum við Ása að fara með krakkana í óvissuferð á sunnudeginum. Vorum allir pakkaðir vel inn í fatnað þar sem rigning hafi verið um morguninn. Smurt var nesti og svo var farið í nýja skó. Við ákváðum að fara í fjöruferð nema hvað við vorum ekki alveg vissum hvaða fjöru við ætluðum í, Gróttan er alltaf classic en það er fjaran sem allir fara alltaf í, þannig að við vildum fara í einhverja aðra. Þá minnist Ása þess úr æsku að hún hafi farið í fjöruferð fyrir neðan Garðakirkju, var keyrst þangað en ekki reyndist það vænlega fjara. Við enduðum í Gróttu, stigum út úr bílnum í hávaða roki og mígandi rigningu. Hlaupið var niður í fjöru nokkrir krabbar týndir í poka og svo var hlaupið aftur uppí bíl, þar sem nánast allir vorum við það að fá kal. Bíllinn settur í gang, miðstöðin á fullan hita og nestið borðað í bílnum. En eins og Kristján Atli kom svo skemmtilega að orðið " Mjög skemmtileg óvissuferð en fékk blauta og snöggan endi" 

fimmtudagur, 10. júlí 2008

Fyrsta tönnin farin


þá er litli kúturinn okkar búinn að missa sína fyrstu tönn. Önnur framtönnin að neðan er búin að vera dálítið laus undanfarna daga og brá faðir drengsins á það ráð í kvöld að klára þetta, rífa úr honum þessa lausu tönn. Það var vont í smá stund og svo var þetta búið, guttinn kominn í rúmið skömmu seinna og tönnin út í glugga. Já hann vildi setja hana út í glugga vegna þess að hann sagði okkur að, ef hann myndi setja hana undir koddann þá myndi hann bara fá eina krónu en ef hann myndi setja hana út í glugga þá fengi hann 10.krónur eða hundrað kall. Svo er bara að bíða og sjá hvað verður í glugganum hjá honum á morgun 

kv Einar og Ása

miðvikudagur, 9. júlí 2008

Komin úr vordvala...

Jæja þá er komið að því einu sinni enn að lofa öllum sem lesa þetta að ég fari að taka mig saman í andlitinu og byrja að skrifa markvisst. Töluvert er búið að vera að gera hjá the family undanfarið. Ég og Ester Una erum í sumarfríi þessa dagana og Elvar Máni á kafi í leikjanámskeiðum, hann er einnig ný búinn að vera á golfnámskeiði þar sem honum gekk alveg glymrandi vel, Ása er að vinna. Ekki gaman að vera að vinna þegar restin af The Family er í fríi. En þetta er einmitt það sem við höfum upp úr því þegar bæjarfélög ákveða að hafa leiksskóla lokaða hluta úr ári. Ég er á móti þessu, en hverju fæ ég breytt...engum sköpuðum hlut. Við fórum til Akureyrar fyrir stuttu síðan áttum þar yndislega heldi eins og venjulega hjá afa og ömmu, nema hvað. Við komum heim "nýjum" bíl. Við fórum á rúntinn á bílasölur og sáum draumabílinn á ákváðum að gera allt sem við gætum til að kaupa hann. Og hvað haldi þið, við þurftum nú ekki að gera mikið til að eignast hann. Fimm tímum eftir að við sáum hann, áttum við hann takk fyrir takk. Toyota Corolla Verso sjö manna eðalvagn. Elvar er þessa stundina í Nauthólsvik að baða sig með krökkunum úr leikjanámskeiðinu og í morgun var hann í keilu með þeim. Ég og Ester Una byrjuðum í sumarfríi á mánudaginn og strax í gær þriðjudag var hún farin að væla um það að fara á leiksskólan og hitta krakkana. "Pabbi leigóla leiga grakka" þannig að því var redda og er hún búin að fara í gær og í dag á róló og leika við krakka og er ekkert smá ánægð með lífið þar. Við erum einnig búin að fara í tvær útilegur það sem af er júní. Fórum með pabba og Sollu í Langbrók í Fljótshlíð og svo fórum við í Húsafell síðustu helgi með stórum hóp af fólki. Hvoru tveggja mjög skemmtilegar ferðir þó að verðrið í Húsafelli hafi nú nánast toppað allt. jæja þá fer þetta að vera gott í bili. Nýjar myndir verð komnar inn á myndsíðuna okkar innan tíðar

Med venlig hilsen 
Einar og co.