laugardagur, 24. febrúar 2007

Sumarbústaðaferð

Við fórum í stutta sumarbústaðaferð í gær. Vinafólk okkar þau Guðrún og Ómar buðu okkur að koma í gær í bústað til þeirra. En fjölskylda þeirra á bústað í Vaðnesi. Það kom yfir mann notaleg tilfinning að fara í Vaðnes á nýtt. Ekki frá því að maður sakni örlítið bústaðarins sem Ester og Kristján áttu. En þetta var mjög notaleg að koma til þeirra. Við vorum að vísu alveg í seinna laginu í gær, við vorum ekki komin fyrr en klukkan að ganga níu að mig minnir. við fórum nefnilega í heimsókn í garðabæinn áður en við fórum út úr bænum og enduðum þar í smá afmælismat. En Ester átti afmæli í gær, og einnig solla. Til hamingju báðar með daginn. Þegar við komum í bústaðinn voru krakkarnir náttúrulega ekkert á því að fara að sofa. En það gekk nú á endanum eitthvað um miðnætti. Við borðuðum grillmat um miðnætti, og var það frábært að borða grillmat í miðnæturnasl. Svo var tekið spil, eitthvað spil sem ég og Ása höfum ekki spilað áður Leonardo og co. mjög skemmtilegt spil. Svo var auðvitað farið í pottinn og drukkinn smá öl og smá hvítvín. Í dag var léttur fótboltaleikur á meðal unga fólksins. Þetta var allavega rosalega gaman og gott að komast aðeins út úr borgarys og þys. Þökkum við Ómari, Guðrúnu og Róberti Skúla fyrir notalega stund í bústaðnum. Sjá myndir úr ferðinni á með því að stiðja á slóðina hér að neðan kv Einar og Ása
http://picasaweb.google.com/einareir/BStaAferVaNes23FebrRar2007/photo#5035174251944160498

Engin ummæli: