jæja þá fer að líða að því að Eurovision fari í loftið, nánar tiltekið þann 12 mai. Framlag Íslendinga frumflutt á Engilsaxnesku í gær. Verð aðeins að tjá mig um það. Mjög fínt að það sé aðeins búið að hraða laginu og einnig að það sé orðið aðeins þyngra. En ég er 100% sammála Dr. Gunna að þetta sé óskiljanlegur texti og mér finnst of flókinn. Chorusinn á að vera grípandi og auðveldur að ná, en það var mér ekki að finnas með þetta viðlag, engan veginn. Eins var þetta mjög svo drungalegt myndband, svart hvítt var ekki að heilla mig. Mjög dramatíst að sýna svona mikið af íslenskri náttúru, allt gott með það, auðvitað smá landkynning. gæti orðið til þess að einhverjir austantjallar kæmu til landsins. jæja nóg um það.Annað smá vandamál sem komið er upp og það er að júróvíson er 12 mai og það sem kemur upp á sama dag eru alþingiskosningarnar. Hvernig ætlar Ríkissjónvarpið að redda því, það verður gaman að sjá. Persónulega er ég meira til í að horfa á Eurovision heldur en kosningarnar. Reddið þessu bara hverning sem það verður gert.
Ég hef verðið undanfarið að krúsa á netinu í leit að Eurovisionlögum sem önnur lönd eru að senda í keppnina, og hef fundið nokkur sem við eigum nú að getað jarðað með Rauða Hauknum. Og svo eru önnur sem eiga eftir að jarða okkur. Ég mun á næstu dögum henda einu og einu inná síðuna ykkur til yndisauka og skemmtunnar. Fyrsta lagið sem ég set inn er framlag Swiss.
Og er það enginn annar en DJ Bobo. Hver man ekki eftir DJ Bobo. Hann var til dæmis með lagið Everybody , sem var mjög vinsælt nítjánhundruð nítíu og eitthvað. Sjá lagið og myndbandið hér http://youtube.com/watch?v=mZkmk8oR7OgAnnars er Boboinn orðinn aðeins eldri og með minna hár en hann var með á tímum, Everybody. Lagið sem hann er með í keppninni heitir Vampires are alive og er svosum ágætis lag, ber þess merki að hann sé orðinn eldri og reyndari....jájá. Ekki alveg þessi evróvision stíll á laginu, sem er að vísu hverfandi í þessari keppni. Við mikinn söknuð sumra. En allavega hér er linkurinn á Vampires are alivehttp://youtube.com/watch?v=9-dDxp8Cez0, njótið þess og dæmið hver fyrir sig. Mér finnst þetta ágætis lag eftir því sem ég hlusta á það oftar. En það er einungis mín skoðun. commentið endilega á hvernig ykkur finnst þetta lag og hvernig þið haldið að DJ Bobo muni ganga.
Bið að heilsa í bili
Einar Eir
2 ummæli:
lagið er sticker og vitiði af hverju.. ef þið takið hljómasamsetninguna þá er hún algjör copy-a af "i will survive" sem er náttúrulega snilld þar sem helstu aðdáendur Eurovision er Diskó dívurnar.. upp með gítarinn Einar og ... teldí
http://video.google.com/videoplay?docid=-2566269671806009973
sé fyrir mér Eric Hawk .. í þessu myndbandi
Skrifa ummæli