miðvikudagur, 11. apríl 2007

2190 dagar frá fæðingu frumburðarins


Komi þið sæl og blessuð. Í dag eru 2190 dagar frá því við parið stóðum í ströngu, en þó aðallega hún Ása mín. Sem sagt það eru 2190 dagar frá því við urðum foreldrar í fyrsta sinn. 2190 dagar frá því unginn okkar dróg andann í fyrsta sinn. 2190 dagar frá því hann kom í heiminn. Með öðrum orðum Elvar Máni er sex ára í dag. Þetta var var mjög svo notalegur dagur hjá kallinum litla, eða stóra. Dagurinn byrjaði á því að Elvar var vakinn upp með afmælissöng og opnaði hann augun með svo miklu brosi að hann lýsti upp allt herbergið. Því næst labbaði hann inní stofu og sá afmælisgjöfina sem var.....splúnku nýtt hjól fyrir stóra stráka, og ekki með neinum hjálparadekkjum, sem honum fannst vera mest spennandi. Síðan fór hann í leikskólann og þar var boðskortunum dreift á þá sem eiga að koma í afmælið sem á að vera á laugardaginn. Eins og tíðkast í Vesturkoti þá fá allir þeir sem eiga afmæli að velja sér köku og valdi hann sér súkkulaði köku. Þegar við komum heim var farið að undirbúa klöldmatinn, en hann var búinn að velja hann. Og vildi hann fá grillaða hamborgara. Afi amma og Guðjón Ingi komu og snæddu með okkur. Held að þetta hafi verið dýrindis dagur fyrir guttann okkar. Eitt gullkorn sem kom frá honum í gær. Ég spurði hann að því hvað honum langaði í, í afmælisgjöf. Og þá sagðist hann vilja eitthvað sm væri fyrir sex til tíu ára, eða pabbi eitthvað dót sem er fyrir sex til sextán ára.
Elsku hjartans Elvar til hamingju með daginn
pabbi og mamma
Nokkrar myndir eru komnar inná myndasíðuna okkar

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ flotti strákur og til hamingju með afmælið í gær :) það er nú aldeilis flott að fá svona magnað hjól með engum hjálpadekkjum , svo er það bara skólinn í haust , kv Heiða og fjölsk

Nafnlaus sagði...

Ása og fjölsk til hamingju með litlu frænku ,kv Heiða

Nafnlaus sagði...

til hamingju með daginn elsku Elvar Máni og til hamingju þið frábæru foreldrar með stóra strákinn ykkar. sjáumst á laugardaginn knús erla og strákarnir.