Það hafa eflaust flestir tekið eftir að það er komið nýtt útlit á síðuna okkar.
Okkur langaði aðeins til að komið ferskari blæ á hana þar sem sumarið er loksins komið.
kv Holtsgengið
þriðjudagur, 29. maí 2007
mánudagur, 28. maí 2007
Hvítasunnuhelgin
Nokkkuð mikið er búið að vera að gera hjá okkur um þessa helgina. Og við erum einnig búin að innbyrgða sjúklega mikið af grillkjöti. Heyrði einhvern tíman að grillkjöt væri krabbameinsvaldandi þ.e.a.s svertan utaná, ef svo er þá erum við kominn í áhættuhóp. Elvar Máni var í fríi á föstudaginn og Ester Una fór í 18 mánaðarskoðun um morguninn. Hún kom gríðarlega vel út úr því og ekkert út á hana að setja. Eina sem hægt var að setja út á, var að ég setti út á hjúkrunnarfræðinginn. Sagan er þannig. Þegar við erum að fara inn á stofuna til hennar þá er einhvern mamma að fara út af stofunni sem barnið sitt. Hjúkkan segir við mig að hátta stelpuna en hafa hana í bleyjunni. ok ég geri það og ekkert mál, og svo förum við inn. Ester Una er bara eitthvað að labba um og skoða þetta nýja umhverfi á meðan ég er að tala við hjúkkuna og Elvar situr við hliðina á mér. Svo er ég ekkert að spá í stelpunni þar sem þetta á nú að vera mjög öruggt umhverfi, eða það myndi maður halda. Veit ekki fyrr en ég heyri hljóð sem minnir helst á þegar verið er að smella lófanum í vökva sem er á sléttum fleti. Í því lít ég á Ester Unu og sé hana vera á lemja flötum lófunum í bleytu sem er á einum barnastólnum sem þarna er. Ég lít á gólfið og sé að það er allt rennandi blautt og sé að stólinn er einnig á floti. Og einmitt á þeirri sekúndu sem ég stend upp rífur hún sig uppá stólinn og beint í bleytuna. Ok frábært krakkinn orðinn rennandi blautur, og ekkert að gera nema að þurrka hana, en þá komst ég að einu.....þetta var hland...já þetta var hland, af hverju er ekki búið að þrífa hland sem liggur þarna yfir öllu eins og lítið stöðuvatn, af hverju. Var alveg 100% viss á að þetta væri ekki út mínu barni þar sem hún var ennþá í bleyjunni. en allavega kom h
ún mjög vel út úr þessasri skoðun og ekkert út á hana að setja. Svo fór hún til dagmömmunnar og Elvar fór með mér í vinnuna. Um kvödlið grilluðum við svinakótilettur og lambaspjót, vona að þið fáið vatn í munninn. Einnig gerðist dálítið, Ester Una kúkaði í kopp og fannst henni það mjög merkilegt Það merkilegt að hún vildi taka kúkinn upp og skoða hann nánar. Um kvöldið kíkti ég aðeins út þar sem það var Tæknivals reunion á Players. Get nú ekki sagt að ég hafi skemmt mér neitt svakalega vel þar sem ég var ekki að þekkja neitt of marga. Náði nú samt að drekka tvo bjóra á fimm klukkutímum og geri aðrir betur.Laugardagurinn var bissí dagur. Við byrjuðum á því að fara og gefa öndunum á tjörninni í Reykjavík, sjá myndir af því í albúminu. Svo rétt kíktum við á nýja skemmtiferðaskipið sem er við landfestar í Reykjavík.
miðvikudagur, 23. maí 2007
Útskriftaferð hjá Elvari
kv Einar Eir
laugardagur, 19. maí 2007
Leikskólaslys
"eigendum sínum" og voru að reyna fá að fara inn og láta gera að sárum sínum. Ása fór inn með gutta putta og hittu lækninn sem tók og sprautaði með nál í puttann á honum og tók svo og reif nöglina af hendinni... Það eina sem Elvari fannst vont var þegar hann sprautaði með nálinni í puttann, það var hrikalega vont. Svo var allt klætt í umbúðir og bros kall teiknaður á umbúðirnar sem Elvar segir að sé vinur sinn.
Svo í gærkvöldi var hann eitthvað að brasa inni á baði og endaði á því að umbúðirnar voru rennandi blautar. Þá þurftu mamma og pabbi að fara í læknisleik. Það var mjög gott að gaman að græja þetta á puttann á honum þar sem doctorinn hafði fyllt töskuna hennar Ásu af alls konar umbúðum og límbandi og smyrslum og ég veit ekki hvað og hverju. Þannig að við vorum með allt til alls. Svo á endanum var teiknaður nýr vinur á umbúðirnar.
fimmtudagur, 10. maí 2007
Austur evrópskur múrveggur...

jáhá það er það eina sem ég get sagt eins og staðan er. Þetta er austur evrópskur múrveggur sem ekkert fær haggað. Þetta er algerlega glatað fyrirkomulega á þessari keppni eins það er í dag. Það þarf að skipta þessu í kjördæmi, austur og vestur. Þetta er glatað...Meðan þessar helv. tjallaþjóðir eru með í undankeppninni þá eiga engir aðrir neinn möguleika. Sum 41/Blink 182 vona bí, Andorra, afhverju komust þeir ekki áfram. Ég var 100% viss á því að þeir kæmust upp, með ágætt grípandi lag, sem allra unglingsstúlkur í evrópu myndu kjósa. Ísrael...push the bottom, hva voru þeir of flippaðir. Drama Queen, var hún of mikil drama. OG EIRÍKUR....HALLÓ...
hvað er í gangi, afhverju komst hann ekki áfram, með eitt af betri lögunum í þessari undankeppni flottur rokkslagari og flottur söngvari með flotta rödd og með unga og hæfilega fáklædda töffara í kringum sig, Nei ég bara spyr....ég hefði viljað skipta út svona sjö lögum af þessu tíu út fyrir önnur lög sem ekki fengu séns. Svo verður sama sagan á næsta ári þegar 7-10 lög frá austur evrópu komast áfram, og já auðvitað kjósa þau hvert annað líkt og öll hin árin. Ég legg til að við íslendingar sameinumst og látum Pál Magnússon skrifa bréf til samtaka evrópskra sjónvarpsstöðva þess efnis að við hættum að taka þátt og hættum að horfa á eurovision ef þessu verður ekki breytt. Þetta er ekkert mál að halda bara keppni í austur og vestur þar sem 10-15 lög komast áfram og svona þegar búið er að finna þau lög þá er sameinuð keppni þar sem fulltrúar frá hverju landi velja hverjir eru bestir. Allavega eins og þetta er þá er þetta ekki að virka, sárt að heyra það en þannig er það.Elsku Eiki okkar þú stóðst þig vel varst landi og þjóð til sóma, og fékkst allan stuðning sem hægt var að fá frá okkar heimili.
yfir og út
Þunglyndissjúklingurinn
Einar Eir
miðvikudagur, 9. maí 2007
Nýjar myndir komnar af smíði "svalanna"
Njótið myndanna með því að smella á slóðina hér að neðan..
http://picasaweb.google.com/einareir/NJuSvalirnar/photo#s5062705093140953266
http://picasaweb.google.com/einareir/NJuSvalirnar/photo#s5062705093140953266
þriðjudagur, 8. maí 2007
Jæja jæja nú er komið að því að skrifa
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)