
jáhá það er það eina sem ég get sagt eins og staðan er. Þetta er austur evrópskur múrveggur sem ekkert fær haggað. Þetta er algerlega glatað fyrirkomulega á þessari keppni eins það er í dag. Það þarf að skipta þessu í kjördæmi, austur og vestur. Þetta er glatað...Meðan þessar helv. tjallaþjóðir eru með í undankeppninni þá eiga engir aðrir neinn möguleika. Sum 41/Blink 182 vona bí, Andorra, afhverju komust þeir ekki áfram. Ég var 100% viss á því að þeir kæmust upp, með ágætt grípandi lag, sem allra unglingsstúlkur í evrópu myndu kjósa. Ísrael...push the bottom, hva voru þeir of flippaðir. Drama Queen, var hún of mikil drama. OG EIRÍKUR....HALLÓ...
hvað er í gangi, afhverju komst hann ekki áfram, með eitt af betri lögunum í þessari undankeppni flottur rokkslagari og flottur söngvari með flotta rödd og með unga og hæfilega fáklædda töffara í kringum sig, Nei ég bara spyr....ég hefði viljað skipta út svona sjö lögum af þessu tíu út fyrir önnur lög sem ekki fengu séns. Svo verður sama sagan á næsta ári þegar 7-10 lög frá austur evrópu komast áfram, og já auðvitað kjósa þau hvert annað líkt og öll hin árin. Ég legg til að við íslendingar sameinumst og látum Pál Magnússon skrifa bréf til samtaka evrópskra sjónvarpsstöðva þess efnis að við hættum að taka þátt og hættum að horfa á eurovision ef þessu verður ekki breytt. Þetta er ekkert mál að halda bara keppni í austur og vestur þar sem 10-15 lög komast áfram og svona þegar búið er að finna þau lög þá er sameinuð keppni þar sem fulltrúar frá hverju landi velja hverjir eru bestir. Allavega eins og þetta er þá er þetta ekki að virka, sárt að heyra það en þannig er það.Elsku Eiki okkar þú stóðst þig vel varst landi og þjóð til sóma, og fékkst allan stuðning sem hægt var að fá frá okkar heimili.
yfir og út
Þunglyndissjúklingurinn
Einar Eir
Engin ummæli:
Skrifa ummæli