mánudagur, 28. maí 2007

Hvítasunnuhelgin


Nokkkuð mikið er búið að vera að gera hjá okkur um þessa helgina. Og við erum einnig búin að innbyrgða sjúklega mikið af grillkjöti. Heyrði einhvern tíman að grillkjöt væri krabbameinsvaldandi þ.e.a.s svertan utaná, ef svo er þá erum við kominn í áhættuhóp. Elvar Máni var í fríi á föstudaginn og Ester Una fór í 18 mánaðarskoðun um morguninn. Hún kom gríðarlega vel út úr því og ekkert út á hana að setja. Eina sem hægt var að setja út á, var að ég setti út á hjúkrunnarfræðinginn. Sagan er þannig. Þegar við erum að fara inn á stofuna til hennar þá er einhvern mamma að fara út af stofunni sem barnið sitt. Hjúkkan segir við mig að hátta stelpuna en hafa hana í bleyjunni. ok ég geri það og ekkert mál, og svo förum við inn. Ester Una er bara eitthvað að labba um og skoða þetta nýja umhverfi á meðan ég er að tala við hjúkkuna og Elvar situr við hliðina á mér. Svo er ég ekkert að spá í stelpunni þar sem þetta á nú að vera mjög öruggt umhverfi, eða það myndi maður halda. Veit ekki fyrr en ég heyri hljóð sem minnir helst á þegar verið er að smella lófanum í vökva sem er á sléttum fleti. Í því lít ég á Ester Unu og sé hana vera á lemja flötum lófunum í bleytu sem er á einum barnastólnum sem þarna er. Ég lít á gólfið og sé að það er allt rennandi blautt og sé að stólinn er einnig á floti. Og einmitt á þeirri sekúndu sem ég stend upp rífur hún sig uppá stólinn og beint í bleytuna. Ok frábært krakkinn orðinn rennandi blautur, og ekkert að gera nema að þurrka hana, en þá komst ég að einu.....þetta var hland...já þetta var hland, af hverju er ekki búið að þrífa hland sem liggur þarna yfir öllu eins og lítið stöðuvatn, af hverju. Var alveg 100% viss á að þetta væri ekki út mínu barni þar sem hún var ennþá í bleyjunni. en allavega kom h
ún mjög vel út úr þessasri skoðun og ekkert út á hana að setja. Svo fór hún til dagmömmunnar og Elvar fór með mér í vinnuna. Um kvödlið grilluðum við svinakótilettur og lambaspjót, vona að þið fáið vatn í munninn. Einnig gerðist dálítið, Ester Una kúkaði í kopp og fannst henni það mjög merkilegt Það merkilegt að hún vildi taka kúkinn upp og skoða hann nánar. Um kvöldið kíkti ég aðeins út þar sem það var Tæknivals reunion á Players. Get nú ekki sagt að ég hafi skemmt mér neitt svakalega vel þar sem ég var ekki að þekkja neitt of marga. Náði nú samt að drekka tvo bjóra á fimm klukkutímum og geri aðrir betur.Laugardagurinn var bissí dagur. Við byrjuðum á því að fara og gefa öndunum á tjörninni í Reykjavík, sjá myndir af því í albúminu. Svo rétt kíktum við á nýja skemmtiferðaskipið sem er við landfestar í Reykjavík.Svo fórum við að fá okkur að borða og það á Nings, ákváðum að gefa þeim séns einu sinni enn því við höfum venjulega orðið fyrir vonbrigðum. En þetta var svakalega gott eða þá við orðin svakalega svöng. Held samt að þetta hafi verið mjög gott. Svo keyrðum við í Hlíðarnar og kíktum í kaffi til Möggu og Sigga í Drápuhlíð eitt. Fyrir þá sem ekki muna þá bjuggum við áður í Drápuhlíð. Þetta var ótrúlega notalegt og gott að koma í svona umhverfi sem manni sem svona vel tekið, armar opnast uppá gátt og við okkur er tekið eins og fyrr. Allt var eins og áður var. Magga að stússast í garðinum og Siggi að skera út trékalla og fígúrur. Svo var boðið uppá kaffi og kökur. Yndisleg hjón sem eiga stað í okkar hjarta. grill grill grill og við grilluðum um kvöldið og í þetta skiptið var það kjúklingalæri og það stærri týpan. Á sunnudeginum fór ég í golf var að taka síðasta tímann minn í golfkennslunni. Og fór það fram á golfvelli Kjalar í Mosfellsbæ. Eftir um það bil fimm klukkutíma bauð Þorgeir minn yfirmaður sem var með í þessu programmi til útskriftarveislu fyrir hópinn heima hjá sér, og var boðið upp á heimagerðar pitsur ala´Toggi. Sem eru bestu pitsur í heimi. Þegar heim var komið fórum við með Elvar út að reyna að halda áfram að kenna honum að hjóla án hjálparadekkja. Það gekk mjög vel en hann samt náði þessu ekki alveg, en næstum því. Svo var farið heim að grilla og í þetta skiptið var það lambabógur gómsætur og vona að þið séuð með vatn í munninum. Jæja svona er það sem af er þessari helgi hjá okkur. Hilsen

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er aldeilis búið að vera nóg að gera hjá ykkur , ég ætla rétt að vona að þú hafir látið í þér heyra við hjúkkuna , þetta er ekki gott mál , þau eru glæsileg börnin ykkar , kveðja til ykkar , Heiða og fjölsk
ps: Ef við værum ekki búinn að lifa á grilli síðustu daga´, þá værum við slefandi við lesturinn hehe , en girnilegt engu að síður :)