fimmtudagur, 30. ágúst 2007

Akranesferð

jæja nú verður maður að fara að verða mun duglegri við þá yðju að blogga ( veit einhver hvað er íslenska orðið yfir að "blogga" ) Jæja síðustu helgi fórum við í kaupstaðferð til Akranes. Sem er voðaega vingjarnlegur bær handan hafsins. Við fórum þangað á laugardeginum að hitta vinafólk okkar, Elías Ásthildi og þeirra börn og buru. Áttum með þeim yndislegan dag og fórum meðal annars á horfa á hálandaleika. Sem er nú ekki frá sögum færandi, nema hvað að þar var "Monster-truck" bíll ( eða við skulum leyfa þessum köppum að segja það ) þetta var Nissan Patrol á 49" dekkjum, sem eru nú alveg það mesta sem hægt er að hafa undir svona dollum. Nema hvað hann átti að keyra yfir einhverjar bíldruslur sem búið var að stilla upp fyrir framan hann. Hvílíkur bíll sem maður myndi halda að hann tæki þessa druslur og myndi borða svona í morgunmat. En nei...hann var í mesta basli að komast upp á þá. Einhverjir kraftajötnar þurftu að koma og lyfta orðum þeirra upp svo hann gæti m0gulega komist upp, en allt kom fyrir ekki. Bíllinn ýttist alltaf frá þegar hann reyndi að láta vaða yfir hann. ( ég myndi að vísu líka reyna að koma mér í burtu ef ég væri einhver daihastu dolla ) en svo gekk þetta hjá honum með miklum látum og braki og brestum og glerbrotum og ég veit ekki hvað og hvað. Svo fórum við heim til Ella og Ásthildar og áttum þar dýrindis kvöld með æðislega góðum mat. Ég reyndi að taka einhverjar myndir af þessu "Monster-trukka-yfirkeyrslu" njótið þangað til næst

Ýtið á slóðina hér að neðan til að skoða myndirnar
http://picasaweb.google.com/einareir/HLandaleikarAkranesiGSt/photo#s5104624685037785746

þriðjudagur, 28. ágúst 2007

Allt komið á full swing

Elvar er kominn á fullt í skólann. Allt gengur mjög vel. Skólinn er búinn á milli eitt og tvö á daginn og þá fer hann í Holtasel, sem er frístundaheimili. Sem er mannað, annað en frístundavistunin í RVK. Allt betra í Hafnarfirði, fyrir ykkur sem vita það ekki. Ég fór og náði í Elvar frekar snemma í dag, eða um hálf þrjú, og sá hvers lags heraga er beitt á þessari vistun. Þarna eru þrjár eldri konur sem þurfa og reyna að hafa einhvern hemil á 30 rollingum. Ég er nú ekki að segja að ein þarna hafi verið að öskra á börnin, en hún notaði allavega ekki inniröddina, eins og börnunum er kennt að nota í leikskólanum. Þeim er kennt í leikskólanum að nota inniröddina alla leikskólavistunina. Í einhver fjögur til fimm ár. Svo koma þau í skóla og inná svona frístundaheimili þar sem þreyttar eldri konur vinna á lágmarkslaunum. Hugsandi um allan daginn afhverju þær séu í þessari vinnu, afhverju þær séu ekki í einhverju rólegu skrifstofu starfi, löngu búnar að fá nóg af rollingum sem vilja bara leika sér, og vera börn. Ný komnar úr svakalega löngu sumarfríi og gleymdu í þrjá mánuði hvað þetta er erfitt og vilja bara komast í frí sem allra fyrst aftur. Allir krakkarnir að tala ofan í aðra og heyra ekki utan að komandi hljóð frá meira en tveggja metra radíus. Þá nota þær ( hún ) það sem ég vill segja að sé útiröddina, eða landshornaröddina ( rödd sem fólk getur notað til að kalla á milli landshluta ) Leiðir maður þá hugann að því að í fyrsta bekk þá er verið að eyðileggja fjögra til fimm ára starf leikskólakennara. Já ég segi eyðileggja, því eitt er það sem maður hefur lært af því að vera foreldri og barn sjálfur.....
"Börnin læra það sem fyrir þeim er haft"

sunnudagur, 19. ágúst 2007

Latabæjar-menningarlegur dagur



Jæja Menningarnótt er liðin með öllu tilheyrandi. Bankarnir eru svo sannarlega búnir að spreða þjónustugjöldunum sem íslendingar hafa þurft að greiða það sem af er þessu ári, svo sannarlega. Ég verð nú að segja frá því að mér fannst dálítið fyndið að horfa á tónleikana sem voru í kassanum á föstudagskvöldið. Það var í boði Kaupþings, haldið á Laugardagsvelli. Þegar uppi var staðið átti að hafa verið komið þarna yfir 40.000 manns saman komin...glætan og enginn séns að það sé mögulegt. Í fyrsta lagi tekur stúkan ekki nema 7500 manns, þannig að það hafi verið 33.000 og yfir á blettinum fyrir framan svðið. Right. Það er eins og allir Akureyringar myndu klóna sig og fara á blettinn, plús það að sviðið var þvert á völlinn en ekki langsum, þannig að það er ennþá minni séns að þetta hafi verið eins og það átti að hljóma og vera. Allavega á laugardaginn fór ég og Elvar að hlaupa maraþon, Latabæjarmaraþon. ( sem var í boði Glitnis og viljum við þakka viðskiptavinum Glitnis fyrir að gera okkur þetta kleyft takk takk ) Þetta var mjög gaman, að vísu hrikalega mikið af fólki saman komið á þessu bletti ( skítið að fólk er alltaf að koma saman á einhverjum blettum humm ) Við hlupum 1.000.m og var það bara frekar mikið fyrir Elvar og reyndar reyndi það töluvert á mig líka. Við vorum frekar aftarlega þegar ræst var afstað en Elvar var svo ákveðinn í að vinna og vera með sprengju í rass að hann byrjaði á því að hlaupa alveg eins og hann gat, en fljótlega varð allur vindur úr honum. Hann hægði á sér og smá saman byrjuðu þeir sem hann var búinn að taka fram úr, að skríða fram úr okkur. En hann má eiga það kúturinn minn að hann hljóp allan tíman fyrir utan tvö skipti þegar hann flaug á hausinn, held ég vegna þess að hausinn var kominn töluvert á undan fótunum, þannig að hann flaug á magann. Svo á endanum fékk á meldalíu og var voðalega stoltur yfir þessu, og má hann vera það. Ég veit samt ekki hvort þetta var að reyna meira á mig eða hann, ég var alveg búinn sem sýnir manni að þolið er kannski alveg eins gott og það ætti að vera. Ég sit hér og skrifa tuttugu klukkutímum síðan hlaupið var, og er að drepast úr strengjum í fótunum.áiiii. Við fórum í grillveislu í Garðabæ og svo um kvöldið fórum við að sjá flugeldasýningunum sem var í boði Orkuveitunnar, lengi lifi Orkuveitan. Við fórum niðurá Laugarnestangann og horfðum á hana frá alveg hreint frábærum stað. Ég tók nokkrar myndir sem komu bara ágætlega út. Þetta var fínn dagur allir skemmtu sér vel.
Myndir eru komnar inná myndasíðuna
Eigið góðan dag
Við.

Mynd sem ég tók á sýningunni í gær

föstudagur, 17. ágúst 2007

Upprennandi óperusöngvari...NOT

Ég og Elvar voru að horfa að tónleikana í sjónvarpinu sem voru í boði Kaupþings þá allt í einu hóf Elvar upp raust sína og tók lagið. Sem betur fer var ég með myndvélina mjög nærri mér svo ég greip hana og hóf að taka upp án þess að hann gerði sér grein fyrir því. Mér finnst drengurinn taka sig vel út sem Tenor söngvari og held að hann ætti að leggja það fyrr sig í framtíðinni....ja það er annað hvort það eða box, hann er ágætur í því líka

Njótið
Einar Eir



miðvikudagur, 15. ágúst 2007

Rússibanaferðin mikla frá Svíaveldi

Leikskólinn byrjaður hjá Ester Unu


jæja þá er Ester Una byrjuð í leikskólanum Vesturkoti sem er sami leikskóli og Elvar hefur verið í. Ég byrjaði með hana í aðlögun í gær og gekk það ljómandi vel. Var með hana í um það bil eina klukkustund. Svo fórum við klukkan átta í morgun og vorum til klukkan hálf tólf, og gekk þetta betur en ég var búinn að vona. Hún er náttúrulega svo veraldarvön þessi dama og tekur öllu með bros á vör. Deildarstjórinn sem hetir Hulda kom að orði við mig og sagði að hún væri greinilega mjög opin fyrir þessu og væri örugglega sú fyrsta sem myndi ná að sleppa alveg foreldrum sínum. Svo fórum við út að leika en hvað hún var orðinn eitthvað syfjuð og lagðist niður hingað og þangað. hún lagðist niður meðal annars í rennibrautinni þegar hún var búinn að renna sér niður og stóð hún á stéttinni og var eitthvað að góna út í loftið og svo allt í einu lagðist hún í jörðina þetta er svona meðal þeirra staða sem hún var að leggja sig á. en svo þegar við komum inn þá var öll þreyta búinn að ærslagangurinn hófst á ný. Það best við þetta var það að hún var alveg hætt að taka eftir mér þarna inni og hætt nánast að koma til mín. Sem er að ég tel góðs viti varðandi aðlögun. Ok þetta er allt að ganga sem sagt vel og svo ég Elvar að byrja í Hvaleyrarskóla strax eftir helgi þannig að það er mikið að gert að stóru heimili þessa dagana. Hægt er að sjá myndir frá fyrsta deginum hennar með því að ýta á slóðina hér að neðan

Lifið heil.

http://picasaweb.google.com/einareir/LeikskLinnAByrjaHjEsterUnu/photo#s5098923993572719010

föstudagur, 10. ágúst 2007

Stilling í Skeifunni....


Ég vill beina öllum þeim sem þurfa að versla eitthvað í bílana sína frá því að versla hjá Stillingu í Skeifunni. Ekki það að ég vilji ekki að fólk versli við þetta fyrirtæki, síður en svo. Stilling er til dæmis með útibú í Kópavogi sem frábært og einnig í Hafnarfirði sem er auðvitað frábært og svo á Bíldshöfða. Til að gera grein fyrir máli mínu og þessari yfirlýsingu kemur hér smá dæmisaga. Nú er svo komið að það þarf að skipta um tímareim í bílnum okkar og var mér sagt að fara í Stillingu til að kaupa tímareimasett og pakkdósir. Ok við hjúin lögðum leið okkar til höfuðborgarinnar í verslunnarleiðangur. Komum við í umrædda verslun þar sem við fengum tímareim, en pakkdósir var starfsmaðurinn ekki að finna í bókunum hjá sér. "Ha hvað segir þú ?" Ég er ekki að finna þetta í bókum hjá mér." ( ef fólk veit það ekki þá eru í svona varahlutaverslunum bækur sem innihalda öll númer á öllum varahlutum í alla bíla, þannig að það var mjög einkennilegt að þetta væri ekki í hans bókum ) Nema hvað hann segir okkur að fara í Kistufell og tala við þá "Þeir eiga þetta alveg örugglega " Við leggjum leið okkar í Kistufell, komum þangað í hádeginuog þar er u.þ.b 80 ára gamall maður og u.þ.b 150.kg að afgreiða. Hann blaðar í sínum bókum og ekki að finna neitt. Ég segi við hann. "Ertu ekki að finna þetta ?" "Nei ég er það nú ekki, ég vinn nú bara í bókahaldinu, sá sem á að vera hér er ekki við"
Já ok....15-20 mín fóru í það að finna ekki neitt.Og á endanum sagði hann okkur að fara í Vélaland, þeir ættu þetta alveg örugglega til. Við fórum út pínu vonsvikin yfir því að hann ætti þetta ekki til, en jafnframt full af bjartsýni að þetta væri til hjá Vélalandi. Uppá Höfða var haldið. Hjá þeim var sama sagan. Starfsmaðurinn fór eitthvað á bakvið og kom til baka "Nei þetta er ekki til. Hefur þú prófað að fara í Bílanaust ( sem heitir Enn Einn, N1 í dag ). Jæja nú vorum við orðin frekar pirruð, en eins og áður full af bjartsýni.Í Bílanaust var haldið. Inn farið og náð tali á starfsmanni þar. "Einar: Mig vantar pakkdósir í Ford Focus ? Starfsm: Hvernig pakkadósir ? Einar: Ég er að fara skipta um tímareim. Starfsmaður: Nei það á ég ekki til. Einar: Veistu hvar ég get fengið þær ? Starfsm: já það er spurning með Stillingu eða Kistufell. Einar: Nei ég er búinn að fara á báða staði og það ekki til. Starfsm: ok, en ertu búinn að prufa Fálkann, þeir ættu að eiga þetta til hjá sér. Einar: Ok takk fyrir þetta. Starfsm: NÆSTI.... Ok ef við höfum einhvern tíman verið frekar pirruð þá var það akkurat á þessu tímapunkti. Rætt var í bílnum á leiðinni niður á Suðurlandsbraut að þetta væri síðasti staðurinn. Ef þetta væri ekki til þá færum við heim og myndum versla þetta á morgun hjá umboðinu.Nokkrum mín seinna vorum við komin í Fálkann, með bjartsýnina uppmálaða....Ég stökk inn...en vitið hvað. ÞETTA VAR EKKI TIL........ Nú var bara eitt í stöðunni og það var að gefast upp og láta í minni pokann fyrir varahlutaverslunum á höfuðborgarsvæðinu....Haldið var heim á leið. Ég ákvað samt fyrst við vorum á leiðinni heim að koma við í Stillingu í Kópavogi. Það labbaði heimilisfaðirinn inn þungum skrefum, og sá ekkert nema svart. Þegar ég sá starfsmanninn þar inni vissi ég að þarna væri maðurinn. Hann fór í tölvukerfið og sá að hann átti til tvo af þeim þrem hringjum sem til þyrfti. Þá kom hann með setningu dagsins.Starfsmaðurinn:Heyrðu það á að vera til eitt svona stykki í Hafnarfirði og eitt uppi á höfða. Ef þið viljið bíða þá skal ég hringja og athuga hvort þetta sé til, vilji þið það ? Einar og Ása í kór: JÁ TAKK.... Ok Hafnarfjörður svaraði og þetta var ekki til, en svo hringdi hann upp á Höfða og JESSS þetta var til þar. Við þökkuðum að okkar mati starfsmanni mánaðarins kærlega fyrir góða þjónustu. Hlaupið var út í bíl með mikla hamingju hjarta yfir því að við værum að sjá fyrir endan á þessu. Brunað uppá höfða og þetta var til, til allrar hamingju. Jæja nú er þessari dæmi sögu loks lokið, eftir u.þ.b þriggja klukkustunda þeyting fram og til baka. Ok það sem við pirruðum okkar yfir þegar þessu var lokið var. Ef starfsmaðurinn í Stillingu í Skeifunni hefði nú kunnað að leita í bókunum sínum og í tölvukerfinu eins og starfsmaður mánaðarins gerði í Kópavogi þá hefði hann séð að þetta væri til í Kópavogi og Bíldshöfða og við sloppið við nánast endalaust kjaftæði. Starfsmaður mánaðarins í Stillingu heitir Kristinn Óskar Marteinsson og á allan okkar heiður skilið fyrir framúrskarandi þjónustu, reyndi að finna mynd af kappanum en hann virðist ekki vera á veraldarvefnum. En þetta endaði allavega vel og tímareim sett í bílinn í fyrramálið. Þakka öllum sem nenntu að lesa og beini fólki frá því að fara í Stillingu í Skeifunni
Lifið heil
Einar Eir

Skólaganga að hefjast


jæja fyrsti vísir að skólagöngu drengsins var í dag þegar farið var að versla skólatösku og skóladót. Elvar var alveg að farast úr spenningi yfir þessu öllu saman, sem er nú bara hið besta mál. Varð þessi fína taska fyrir valinu sem er hér til hliðar og var hann alveg hæst ánægður með hana, þó svo hún hafi ekki verið til í þeim lit sem hann vildi. En svört átti hún að vera. En drengurinn tók þessa fínu tösku í sátt. Einnig var keypt fullt af bókum, litum, strokleður og allt sem þarf að versla fyrir skólagöngu ungans.Maður er ekkert að átta sig á því hvað hann er orðinn gamall, og í framhaldi að þeirri hugsun leiðir maður hugann að því hvað maður er að verða sjálfur gamall...ppúúúfffff þetta líf...er gott. En eins og maðurinn sagði hér um árið, allt er þrítugum fært. Og sem betur fer er nú langt í að maður nái þeim aldri sem betur fer.



góðar kveðjur til lesenda nær og fjær
EGE, ÁSK, EME, EUE

miðvikudagur, 8. ágúst 2007

Elvar Tyson Einarsson



Jæja ég vona að þetta verði ekki sú atvinnugrein sem sonur okkar mun leggja fyrir sig í framtíðinni. Elvar og Daníel vinur hans voru að leika sér í herberginu sem oft áður nema hvað. Allt í einu kemur Daníel fram með svaka blóðnasir. Höfðu þeir félagar verið eitthvað að leika sér boxhanskana hans Elvars en það er ekki frá sögum færandi nema hvað....Elvar gaf honum bilmings högg í andlitið, svo að Daníel fékk blóðnasir. Það ætla ég að vona að drengurinn leggi eins og ég kom að orði hér að ofan, þessa atvinnugrein ekki fyrir sig. En maður verður að líta á þetta bjartsýnis augum að segja "Hann getur þá varið sig í framtíðinni"

Með boxkveðju úr Firðinum

sunnudagur, 5. ágúst 2007

Sjö ár eru liðin...



Í dag er merkilegur dagur í lífi okkar Ásu. Í dag eru nefnilega sjö ár frá því við voru á leið til Akureyrar að fara á Ein með öllu. Komum við á Skagaströnd þar sem við áttum eftir að brjóta blað í lífi okkar beggja. Sjö ár erum liðin frá því ég dróg hana Ásu mína upp á Spákonufellshöfða fyrir ofan Skagaströnd, fallegur staður sem snýr með þrjár hliðar að sjó. Við löbbuðum upp á hann en Ásu var ekki farið að lítast á blikuna. Sjö ár eru í dag frá því við náðum að labba uppá Höfðann og setja niður og horfa á hafið en man einmitt að það var grámyglulegt veður og vont í sjóinn.Ég kraup fyrir framan Ásu og bað hana um að trúlofast mér. Man þetta svo vel tárin streymdu niður kinnar okkar beggja en það var aðallega vegna þess að við vorum komin með svo svakalegt ofnæmi. ( erum bæði með frjókornaofnæmi )Við sátum dágóða stund faðm í faðm, og horfðum á hafið berjast um eins og það væri að reyna að ná okkur, hamingjusama parinu. Reyna að ná okkur og draga okkur niður í hafsins djúp kæfa alla þess ást og hamingju.....nei nei það var bara mikill vindur og svakalega mikið ofnæmi í loftinu, það mikið að hamingjustundin var rofin með því að, við gátum hvorugt verið þarna lengur og vorum sammála um það að hlaupa aftur niður í tjald og reyna að fá einhverja lækningu. Þetta var hamingjusamur dagur og allir dagar upp frá því hafa verið hamingjudagar.
Vill þakka Ásu minni fyrir að afbera mig í allan þennan tíma
Einar InLove Eiríksson

föstudagur, 3. ágúst 2007

Ester Una gatahaus



Mér finnst sem ég hafði séð þessa mynd af Ester Unu áður ???

Já það er rétt við höfum séð svona svipað mynd áður. Litla krifurdýrið var eitthvað að príla í herberginu sínu í gær og hefur dottið á kommóðuna sína, eða það er það sem foreldrarnir halda.

Engin slysó í þetta skiptið, við erum orðin svo sjóuð í þessu að það er búið að koma upp hér á heimilinu, fyrstu hjálpar kassa og svo er heimilisfaðirinn búinn með fyrstu hjálp, þannig að við erum farin að redda okkur.

Hér er myndin af henni frá því við fórum síðast með hana á slysó
biðjum ykkur vel að lifa í bili

Einar og Ása