sunnudagur, 19. ágúst 2007

Latabæjar-menningarlegur dagur



Jæja Menningarnótt er liðin með öllu tilheyrandi. Bankarnir eru svo sannarlega búnir að spreða þjónustugjöldunum sem íslendingar hafa þurft að greiða það sem af er þessu ári, svo sannarlega. Ég verð nú að segja frá því að mér fannst dálítið fyndið að horfa á tónleikana sem voru í kassanum á föstudagskvöldið. Það var í boði Kaupþings, haldið á Laugardagsvelli. Þegar uppi var staðið átti að hafa verið komið þarna yfir 40.000 manns saman komin...glætan og enginn séns að það sé mögulegt. Í fyrsta lagi tekur stúkan ekki nema 7500 manns, þannig að það hafi verið 33.000 og yfir á blettinum fyrir framan svðið. Right. Það er eins og allir Akureyringar myndu klóna sig og fara á blettinn, plús það að sviðið var þvert á völlinn en ekki langsum, þannig að það er ennþá minni séns að þetta hafi verið eins og það átti að hljóma og vera. Allavega á laugardaginn fór ég og Elvar að hlaupa maraþon, Latabæjarmaraþon. ( sem var í boði Glitnis og viljum við þakka viðskiptavinum Glitnis fyrir að gera okkur þetta kleyft takk takk ) Þetta var mjög gaman, að vísu hrikalega mikið af fólki saman komið á þessu bletti ( skítið að fólk er alltaf að koma saman á einhverjum blettum humm ) Við hlupum 1.000.m og var það bara frekar mikið fyrir Elvar og reyndar reyndi það töluvert á mig líka. Við vorum frekar aftarlega þegar ræst var afstað en Elvar var svo ákveðinn í að vinna og vera með sprengju í rass að hann byrjaði á því að hlaupa alveg eins og hann gat, en fljótlega varð allur vindur úr honum. Hann hægði á sér og smá saman byrjuðu þeir sem hann var búinn að taka fram úr, að skríða fram úr okkur. En hann má eiga það kúturinn minn að hann hljóp allan tíman fyrir utan tvö skipti þegar hann flaug á hausinn, held ég vegna þess að hausinn var kominn töluvert á undan fótunum, þannig að hann flaug á magann. Svo á endanum fékk á meldalíu og var voðalega stoltur yfir þessu, og má hann vera það. Ég veit samt ekki hvort þetta var að reyna meira á mig eða hann, ég var alveg búinn sem sýnir manni að þolið er kannski alveg eins gott og það ætti að vera. Ég sit hér og skrifa tuttugu klukkutímum síðan hlaupið var, og er að drepast úr strengjum í fótunum.áiiii. Við fórum í grillveislu í Garðabæ og svo um kvöldið fórum við að sjá flugeldasýningunum sem var í boði Orkuveitunnar, lengi lifi Orkuveitan. Við fórum niðurá Laugarnestangann og horfðum á hana frá alveg hreint frábærum stað. Ég tók nokkrar myndir sem komu bara ágætlega út. Þetta var fínn dagur allir skemmtu sér vel.
Myndir eru komnar inná myndasíðuna
Eigið góðan dag
Við.

Mynd sem ég tók á sýningunni í gær

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Aldeilis dugnaður í ykkur feðgum :) flott hjá ykkur .
Ása , 11 júní er svarið sem þú varst að spyrja eftir , kveðja Heiða og fjölsk

Nafnlaus sagði...

hæ elskurnar ! sé að það er rosa mikið og skemmtilegt alltaf að gerast hjá ykkur stórfjölskyldnni. Voða gaman að skoða myndirnar og Einar þú góður að nenna að skrifa svona , annars væri nú gaman að fara að sjá ykkur. það verður afmæli bráðum hjá Gabriel þannig ég læt vita... knús í bæjinn. ps. yrði ekki hissa ef Máni litli eigi eftir að verða frægur óperusöngvari efnilegur drengurinn.

Nafnlaus sagði...

það er sko ekki spurning að ég mun snúa honum frá því að verða óperusöngvari, beina honum frekar á önnur söngsvið. Það er alveg á hreinu