
jæja fyrsti vísir að skólagöngu drengsins var í dag þegar farið var að versla skólatösku og skóladót. Elvar var alveg að farast úr spenningi yfir þessu öllu saman, sem er nú bara hið besta mál. Varð þessi fína taska fyrir valinu sem er hér til hliðar og var hann alveg hæst ánægður með hana, þó svo hún hafi ekki verið til í þeim lit sem hann vildi. En svört átti hún að vera. En drengurinn tók þessa fínu tösku í sátt. Einnig var keypt fullt af bókum, litum, strokleður og allt sem þarf að versla fyrir skólagöngu ungans.

Maður er ekkert að átta sig á því hvað hann er orðinn gamall, og í framhaldi að þeirri hugsun leiðir maður hugann að því hvað maður er að verða sjálfur gamall...ppúúúfffff þetta líf...er gott. En eins og maðurinn sagði hér um árið, allt er þrítugum fært. Og sem betur fer er nú langt í að maður nái þeim aldri sem betur fer.
góðar kveðjur til lesenda nær og fjær
EGE, ÁSK, EME, EUE
1 ummæli:
Jam þá er það skólagangan , mikið búið að spá í skólatöskum og fylgihlutum og ansi erfitt að velja , svo birtist amma með tvær skólatöskur og þá var hrópað húrra og allir ánægðir , ég hefði geta sleppt þessum skoðunarferðum í bókabúðirnar hehe , biðjum að heilsa í bili kv Heiða og fjölsk http://www.123.is/Freyr3/
Skrifa ummæli