

þá er litli kúturinn okkar búinn að missa sína fyrstu tönn. Önnur framtönnin að neðan er búin að vera dálítið laus undanfarna daga og brá faðir drengsins á það ráð í kvöld að klára þetta, rífa úr honum þessa lausu tönn. Það var vont í smá stund og svo var þetta búið, guttinn kominn í rúmið skömmu seinna og tönnin út í glugga. Já hann vildi setja hana út í glugga vegna þess að hann sagði okkur að, ef hann myndi setja hana undir koddann þá myndi hann bara fá eina krónu en ef hann myndi setja hana út í glugga þá fengi hann 10.krónur eða hundrað kall. Svo er bara að bíða og sjá hvað verður í glugganum hjá honum á morgun
kv Einar og Ása
2 ummæli:
Hæ hæ Elvar , til hamingju með að missa fyrstu tönnina , æ það hefur nú verið vont að láta pabba fikta í henni , tala nú ekki um að láta kippa henni úr , það er svo gaman að leika sér að tönninni með tungunni þegar þær eru svona lausar :) hlökkum til að vita hvort þú fékkst 10, kall eða 100 kall , endilega láttu okkur vita ,svo við getum reynt þetta líka :) kveðja Gísli Freyr , Björgvin Freyr , og Árni Freyr
Hann fékk 100 kall frá Álfinum, voðalega lukkulegur með að hafa sett hann útí glugga
kv Einar Eir
Skrifa ummæli