"eigendum sínum" og voru að reyna fá að fara inn og láta gera að sárum sínum. Ása fór inn með gutta putta og hittu lækninn sem tók og sprautaði með nál í puttann á honum og tók svo og reif nöglina af hendinni... Það eina sem Elvari fannst vont var þegar hann sprautaði með nálinni í puttann, það var hrikalega vont. Svo var allt klætt í umbúðir og bros kall teiknaður á umbúðirnar sem Elvar segir að sé vinur sinn.
Svo í gærkvöldi var hann eitthvað að brasa inni á baði og endaði á því að umbúðirnar voru rennandi blautar. Þá þurftu mamma og pabbi að fara í læknisleik. Það var mjög gott að gaman að græja þetta á puttann á honum þar sem doctorinn hafði fyllt töskuna hennar Ásu af alls konar umbúðum og límbandi og smyrslum og ég veit ekki hvað og hverju. Þannig að við vorum með allt til alls. Svo á endanum var teiknaður nýr vinur á umbúðirnar.
2 ummæli:
Æ það var nú leitt að þú skildir slasa puttann þinn Elvar , vonandi grær hann fljótt . kveðja í bæinn ykkar kv Gísli ,Björgvin og Árni
æji krúttikallin að meiða sig svona. en því fyljgir svo mikil upplifelsi að fara á slysó og allt það ....þannig kannski það sé bara þess virði að meiða sig stundum ;-) knús erla og the boys
Skrifa ummæli