Skólahópur fór á Akranes

Í gær fórum við í skólahóp í heimsókn upp á Akranes. Við fórum með strætó og þurftum við að taka fjóra vagna aðra leiðina. Í frábæru veðri fórum við fyrst að skoða Byggðasafnið að Görðum og í hádeginu snæddum við pizzu og fengum gos með!! Eftir það tókum við smá hvíld áður en gengið var á Langasand. Þar lékum við okkur í hvítum sandinum ásamt því að vaða í sjóinn og gerði það mikla lukku. Svo var haldið heim á leið með strætó og lentum við fyrir utan Vesturkot kl:18:00. Þið getið skoðað fleiri myndir á fjölskyldusíðunni.
(27. 6. 2007)
2 ummæli:
Er nú alveg hætt að blogga ? kærar kveðjur til ykkar , Heiða og fjölsk
nei nei sorry þetta fer allt að koma
Skrifa ummæli