jæja nú verður maður að fara að verða mun duglegri við þá yðju að blogga ( veit einhver hvað er íslenska orðið yfir að "blogga" ) Jæja síðustu helgi fórum við í kaupstaðferð til Akranes. Sem er voðaega vingjarnlegur bær handan hafsins. Við fórum þangað á laugardeginum að hitta vinafólk okkar, Elías Ásthildi og þeirra börn og buru. Áttum með þeim yndislegan dag og fórum meðal annars á horfa á hálandaleika. Sem er nú ekki frá sögum færandi, nema hvað að þar var "Monster-truck" bíll ( eða við skulum leyfa þessum köppum að segja það ) þetta var Nissan Patrol á 49" dekkjum, sem eru nú alveg það mesta sem hægt er að hafa undir svona dollum. Nema hvað hann átti að keyra yfir einhverjar bíldruslur sem búið var að stilla upp fyrir framan hann. Hvílíkur bíll sem maður myndi halda að hann tæki þessa druslur og myndi borða svona í morgunmat. En nei...hann var í mesta basli að komast upp á þá. Einhverjir kraftajötnar þurftu að koma og lyfta orðum þeirra upp svo hann gæti m0gulega komist upp, en allt kom fyrir ekki. Bíllinn ýttist alltaf frá þegar hann reyndi að láta vaða yfir hann. ( ég myndi að vísu líka reyna að koma mér í burtu ef ég væri einhver daihastu dolla ) en svo gekk þetta hjá honum með miklum látum og braki og brestum og glerbrotum og ég veit ekki hvað og hvað. Svo fórum við heim til Ella og Ásthildar og áttum þar dýrindis kvöld með æðislega góðum mat. Ég reyndi að taka einhverjar myndir af þessu "Monster-trukka-yfirkeyrslu" njótið þangað til næstÝtið á slóðina hér að neðan til að skoða myndirnar
http://picasaweb.google.com/einareir/HLandaleikarAkranesiGSt/photo#s5104624685037785746
2 ummæli:
Einsi, þó að þú sért kominn í nýtt job þá er ekki þar með sagt að þú verðir að hætta að blogga!!
Nei ekki alveg mínir kæru bloggáhangendur, þetta fer allt að gerast. Ég er alveg að komast í gírinn sem kemur mér afstað
Skrifa ummæli