miðvikudagur, 8. ágúst 2007

Elvar Tyson Einarsson



Jæja ég vona að þetta verði ekki sú atvinnugrein sem sonur okkar mun leggja fyrir sig í framtíðinni. Elvar og Daníel vinur hans voru að leika sér í herberginu sem oft áður nema hvað. Allt í einu kemur Daníel fram með svaka blóðnasir. Höfðu þeir félagar verið eitthvað að leika sér boxhanskana hans Elvars en það er ekki frá sögum færandi nema hvað....Elvar gaf honum bilmings högg í andlitið, svo að Daníel fékk blóðnasir. Það ætla ég að vona að drengurinn leggi eins og ég kom að orði hér að ofan, þessa atvinnugrein ekki fyrir sig. En maður verður að líta á þetta bjartsýnis augum að segja "Hann getur þá varið sig í framtíðinni"

Með boxkveðju úr Firðinum

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hva bara Bubbi í fjölsk hehe , svar óskast við fyrra kommenti Einar ! kveðja Heiða

Nafnlaus sagði...

No comment....nei nei grín, jú jú okkar tími mun koma, það er bara ekki komin dagsetning á það