sunnudagur, 5. ágúst 2007

Sjö ár eru liðin...



Í dag er merkilegur dagur í lífi okkar Ásu. Í dag eru nefnilega sjö ár frá því við voru á leið til Akureyrar að fara á Ein með öllu. Komum við á Skagaströnd þar sem við áttum eftir að brjóta blað í lífi okkar beggja. Sjö ár erum liðin frá því ég dróg hana Ásu mína upp á Spákonufellshöfða fyrir ofan Skagaströnd, fallegur staður sem snýr með þrjár hliðar að sjó. Við löbbuðum upp á hann en Ásu var ekki farið að lítast á blikuna. Sjö ár eru í dag frá því við náðum að labba uppá Höfðann og setja niður og horfa á hafið en man einmitt að það var grámyglulegt veður og vont í sjóinn.Ég kraup fyrir framan Ásu og bað hana um að trúlofast mér. Man þetta svo vel tárin streymdu niður kinnar okkar beggja en það var aðallega vegna þess að við vorum komin með svo svakalegt ofnæmi. ( erum bæði með frjókornaofnæmi )Við sátum dágóða stund faðm í faðm, og horfðum á hafið berjast um eins og það væri að reyna að ná okkur, hamingjusama parinu. Reyna að ná okkur og draga okkur niður í hafsins djúp kæfa alla þess ást og hamingju.....nei nei það var bara mikill vindur og svakalega mikið ofnæmi í loftinu, það mikið að hamingjustundin var rofin með því að, við gátum hvorugt verið þarna lengur og vorum sammála um það að hlaupa aftur niður í tjald og reyna að fá einhverja lækningu. Þetta var hamingjusamur dagur og allir dagar upp frá því hafa verið hamingjudagar.
Vill þakka Ásu minni fyrir að afbera mig í allan þennan tíma
Einar InLove Eiríksson

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju skötuhjú :) Einar hvenær á svo að fara alla leið með henni Ásu þinni :)??? kveðja í bæinn ykkar frá Heiðu og fjölsk

Nafnlaus sagði...

Til hamingju bæði tvö. Þið eruð magnaðir leikmenn