
Þá er komið að því að hefja skrif á ný. Biðst velvirðingar á því hve langt er liðið frá því síðasta færsla var send frá Bæjarholtinu. Nokkuð margt er búið að gerast frá því síðast. Ester Una stækkar og stækkar og Elvar verður meiri gaur með hverjum deginum sem líður, hann er kominn með hálfa unglingaveiki. Nei nei alls ekki það eru bara komnir smá svona stælar annað slagið þar sem hann er ekki alveg að frá eftir lögum og reglum heimilisins.

Ester Una er búin að fá inná leikskólann sem Elvar er í, það er að segja inná Vesturkot. En því miður munu þau systkynin eflaust lítið vera saman þar, því Elvar er að byrja í skólanum í haust, og Ester kemst ekki inn fyrr en í sumar eða síðastalagið í haust. Elvar er byrjaður í skólahóp í leikskólanum þar sem það er verið að undirbúa þau fyrir komandi vetur, og finnst honum það rosalega gaman. Foreldrunum tók loksins áætlunnarverk sem búið er að vera í hugsun frá því húsgögnunum var komið fyrir í þessari íbúð, það er að segja í tæp tvo ár.

Við erum búin að gera svalirnar fínar. Það var farið í Byggingavöruverslun Kópavogs ( BYKO ) og fjárfest í pallatimbri á svalagólfið. Aðeins þurfti að saga og laga en kemur þetta líka svona glæsilega vel út, þó svo við segjum sjálf frá. Einnig var keypt tré til að setja í stóra blómapottinn okkar. En það verður einmitt gaman að sjá hvort það standist veðravítið sem skapast annað slagið hér á holtinu. Gaman að segja frá því að hér hfur eitt og annað fokið, til dæmis vorum við eitt kvöld í mestu makindum að horfa á einhverja rómantík í immbanum með kertaljós og kósí. Á meðan barðist vindur á rúðum svo við héldum á tímabili að þriðja hæðin væri nánast að rifna af. En viti menn...allt í einu varð allt svart í sjónvarpinu, ekkert gekk,

reyndi að skipta um stöðvar en ekkert gekk. Er mér þá lítið út á svalir og sé að loftnetið og horfið....já það var horfið. Ég út í garð að reyna að leita að því, en endaði með þá niðurstöðu að það væri eflaust staðsett nálægt álverinu. Hitt var núna í vetur þegar grillið okkar tókst á loft og var bara heppni að það hélst inni á svölunum...þar hafi þið það. En ef þetta tré okkar er að standast ofsann þá má það búa hjá okkur. Svo er náttúrulega alveg að koma að júróvision en nánar um það síðar. Ég er svo spenntur yfir því að ég vill ekki tala um það því...nú ætla ég að nota setningu sem Svala Björgvins notaði í lagi, sem mér finnst alltaf svo skemmtilegt. En tíminn hann er svo lengi að líða. En ef þið munið ekki eftir þessum lagi, þá er það eitthvað á þessa leið. ...já fuglarnir og sólin, en nú er þetta breytt, það bara gerist ekki neitt, og tíminn rótast ekkert og aldrei kemur júró....hahaha nánar um þetta allt síðar Biðjum að heilsa í bili þangað til næst EE
3 ummæli:
Kallinn bara farinn að vitna í jólalögin, þetta líst mér vel á. En varðandi svalirnar,þá ertu vonandi búinn að verða þér út um massívan öskubakka, það hefur alltaf vantað á þessar annars ágætu svalir. Segðu svo Ásu að bjóða e-um skvísum í partýið á lau..
þar sem maður er svona mikið jólabarn þá eru jólalögin mjög grunnt í höfðinu. Varðandi öskubakkann þá verður stórum bakka reddað gott ef það verður ekki stór blómapottur. Þú veist Guðjón minn að það voru alltaf nokkur hundruð kíló af stelpum í kringum Ásu ( þá er ég að tala um margar stelpur en ekki feitar stelpur, bara svo enginn móðgist ) en þar sem við erum flutt í annan landsfjórðung þá virðist farið að vera erfiðara að fá fólk í svo langar dagsferðir. En það er verið að vinna í þessu fyrir þig......hahaha...að vísu fylgir flestum stelpum sem eru í kringum ásu nú orðið nokkrir krakkar og oft á tíðum kallar líka. En ég hélt að þegar við tveir værum saman komnir þá þyrftum við enga aðra
kv Einar Eir
úffff e-ð finnst mér þið vera komnir á hálan ís, hundruðir kílóa, feitar stelpur....sjæse. en ég er ekkert smá spennt að mæta á laugard. Aðallega að sjá svalirnar, Eiki beibí og kosningarnar.....algert aukaatriði :)
Skrifa ummæli