mánudagur, 31. desember 2007

Árspitillinn 2007

Þá er komið að fyrsta pistli þessa árs.

Þetta er árið sem allir urðu ein ári eldri en þeir voru árið á undan. Hér er komið að einu ársuppgjörinu í viðbót,þetta er svona til að gefa ykkur innsýn inní það helst sem hefur drifið á daga okkar þetta árið og byrjum við núna, einn, tveir og nú.....

Janúar: árið byrjaði eiginlega á því að farið var með Ester Unu á bráðamóttökuna með gat á hausnum,og reyndist þetta ekki verða síðasta ferðina þangað á þessu ári. Ennig var það í jan að Elvar fékk svakalegt ofnæmi eftir að hundur stökk uppí anditið á honum og sleikti á honum augað ofl. Upp úr því fékk hann svakalegt ófnæmi svo ekki sé nú meira sagt.



Febrúar. Öskudagurinn var í feb með tilheyrandi undirbúningi, mikið var um búningaprófanir eins og sjá má. Einnig var farið í extreme room make over, á barnaherbergjunum. Þetta er eitthvað sem átti að gerast um leið og við vorum flutt inn á sínum tíma, en var það eitthvað farið að dragast. Voru herbergin máluð og eitthvað af nýjum hirzlum keyptar inn. Heimilismóðirin varð einnig ári eldri en hún var áður, en það var nú ekki að sjá á henni að hún væri neitt að eldast, alltaf jafn ungleg og sæt. Fórum í fyrstu sumarbústaðaferðina í febrúar með guðrúnu og ómari í vaðnes á gamlar slóðir notalegt og gaman

Mars: Mikil og stór Árshátíð á vegum Árdegis á Örkinni í Hveragerði þar sem hálandaleikar voru haldnir og fór lið okkar með sigur af hólmi, í flokki bestu búninganna, en ekki hvað. Annað man ég nú eftir að standi mikið upp úr í þessum mánuði



April: Mikill og stór mánuður. Elvari Máni varð sex ára, hvorki meira né minna, hvað þetta er nú fljótt að líða, svo ég segi nú ekki annað. Haldin var svakaleg veisla og konu tvær ömmur hans utan af landi, Una amma hans og Rósa langa amma hans. Einnig var mikið um gaurana af leikskólanum hans. Ester Una fór að nota kopp í þessum mánuði, það er nú nokkuð merkilegt og svo fórum við norður. Það var rosalega skemmtileg ferð þar sem það var fullt fullt af snjór og lékum við okkur öll börnin í honum. Alltaf jafn gaman og gott að fara norður til fjölskyldunnar.

Mai: í byrjun mai var ákveðið að snúa svalamálinu hræðileg við. Fyrir mai áttum við nefnilega ljótustu svalirnar á blokkinni, en við ákváðum að snúa þessu kvæði í kross eða nánst í heilann hring og taka svalirnar í extreme makeover, og gera þær að flottustu svölunum á blokkinni eða hreinlega flottustu í hafnarfirði takk fyrir takk. Og ég held að það hafi tekist með ágætum. Risessan nam land með sínum drukknu stjórnendum, nema hvað farið var að sjá hana eins og flest allir höfuðborgarbúar. Tignarleg græja þessi risessa. Haldinn var hér í mai árlegur viðburður sem er eurovision teitið,sem er orðinn hjá sumum fastur puntur í lífinu, orðið eins sjálfsagt hjá þeim eins og að eiga afmæli á hverju ári oþh. Elvar fór á slysó um miðjan mánuðinn þar sem nöglin var tekin af einu putta á honum eftir slys í leikskólanum.










Júní Farið var í fyrstu útileguna í júní og var haldið í Húsafell með hrikalega skemmtilegu fólki. Mikið var um glaum og gleði, borðað af góðum mat og ég veit ekki hvað og hvað, Andri og Lólí, takk fyrir lúllið.
Svakalegt partý var í leikskólanum hjá Elvari þar sem það sumarhátið þar sem grillaðar voru pylsur og hoppikastalar, söngur og endalaus gleði. Víkingahátíðin var haldin hátíðleg í Hafnarfirði í júní með öllu tilheyrandi og auðvitað létum við okkur ekki vanta. Við fórum með Erlu og Benedikt og Gabríel. Elvar og Benedikt fengu sverð og voru að skylmst og berjast eins og fornfeður okkar gerðu. Þjóðhátíðardagur Íslendinga er einmitt líka í þessum mánuði, nánar tiltekið þann sautjánda ef það hefur farið fram hjá eihverjum. Við fórum ekkert til reykjavíkur, enda skilur maður ekki í dag hvað fólk er að sækja þangað í mannmergð og vitleysu, þegar maður getur verið í fallegum og rólegum bæ eins og Hafnarfirði þar sem allir taka lífinu með jafnaðargeði, fyrir utan nokkra sem komu úr reykjavík...nei nei ég segji svona þetta var allavega mjög skemmtilegt og fóru krakkarnir í nokkur tæki og fengu nammi. Um kvöldið fórum við Elvar niður á Thorsplan þar sem skemmtidagskrá var og meðal annars hann Jógvan vinur hans Elvars.Hann fékk hjá honum áritað mynd og gat sýnt honum á þeir væru með eins klippingu. Í lok júní var farið í sumarbústaðferð með skemmtilegast fólki á íslandi. Erlu og Villa. Farið var á saman stað og árið áður en það er fyrir ykkur sem ekki lásuð síðasta árspistil, í Munaðarnesi. Eyddum við með þeim einni helgi í frábæru yfirlæti og rosalegum veitingum. Ekki leit þetta vel út á tímabili þar sem Ásu og Erlu var falið að kveikja upp í splúnku nýju kolagrilli, en það vildi nú ekki betur en svo að þær stöllur náðu ekki bara að kveikja uppí grillinu, þeim tókst að kveikja í grillinu og geri aðrir betur, frábær helgi verður lengi í minnum höfð.

Júlí: Þá fórum við erlendis til Svíveldis, í heimsókn til Adda, Rögnu og krakkana. Þetta var svakalega skemmtileg ferð og mikið skemmtilegt gert svo sem, tívoli, gögnuferð, menningarferð, sólbað, borðað, drukkið, hlegið, flogið, hoppað, myndað, fagnað, spilað, baðað, unnið og verslað. Þetta var mjög skemmtileg ferð og þökkum við fyrir okkur.

Ágúst. Byrjaði á því að Ester Una fékk gat á höfuðið, en var gert að sárum hennar heima fyrir enda foreldrar komnir í ultra æfingu á þessu sviði. Fjórum dögum seinna varð svo annað slys, þegar Elvar og Daníel voru að leika sér í ganni slag og Elvar kýli Daníel svo hann fékk blóðnasir. Ester Una hætti hjá dagmömmunni og byrjaði í leikskóla, byrjaði hún í sama leikskóla og Elvar var í. 18 ágúst afrekaði Elvar Máni töluvert og var það þegar hann fór og tók þátt í Latabæjarhlaupinu, og var hann svo ákveðinn í því að vinna þetta, hljóp hann og hljóp og tók fram úr fullt af fólk þangað til, á ákveðnum tímapunti var hugur hans farinn að bera hann töluvert langra en fæturnir þannig að hann steyptist á andlitið, sem betur fer á gras. En við það missti hann alla þá sem hann var búinn að taka, fram úr sér og gott betur en það. Hann fékk medalíu og var voðalega stolltur af sér þegar þessu var lokið. Í lok ágúst var farið uppá Skaga til vinafólks okkar, Elíasar og Ásthildar fórum við að sjá Hálandaleika sem voru með einhverjum heljarmennum að þykjast vera eitthvað, sem þeir voru að vísu.

September: Farið var til frænda okkar í Færeyjum á árshátíð á vegum Hátækni yfir heila helgi. Þar var meðal annars Hátæknileikar og var ein greinin sem keppt var í, búningakeppni og var allt lagt í sölunar og upp úr krafsinu voru fyrstu verðlaunum komið í hús. Þessi ferð verður ógleymanlega. Elvar byrjaði í skólanum, í fyrsta bekk í Hvaleyrarskóla, og hefur honum gengið mjög vel það sem af er þessu skólaári.
Heimilisfaðirinn byrjaði í nýju starfi innan fyrirtækisins og hætti að stjórna vöruhúsinu og tók við starfi sem deildarstjóri RMA deildar Árdegis.
Október: ekkert var svosum gert í þessum mánuði sem stendur upp úr.
Nóvember: Heimilisfaðirinn fór til Danaveldis á vegum vinnunnar og var aðallega verslað og verslað fyrir familyuna. Elvar kom í þessum mánuði heim úr skólanum með sitt fyrst glóðurauga eftir gannislagsmál í skólanum við vin sinn. Ása byrjaði í nýrri vinnu hjá Norvik, og er hún að vinna á fjármáladeildinni hjá þeim.

Desember: Mánuður ljóss og friðar, byrjaði á því að heimilisfaðirinn fór á fertugsaldurinn og var haldið á holtinu mikið teiti, þar sem fjölskyldu, vinum og vandamönnum var boðið til gleðskaps. Þakka ég öllum þeim sem heiðruðu mig á þessum tímamótum. Farið var frekar snemma í það að skreyta jólatréið aðallega vegna þess að það var að fjúka af svölunum í einu af þeim ofsaveðrum sem herjað hafa á skerið. Við áttum yndislega jól, með ótrúlega mikið af pökkum sem krakkarnir fengu og stórir. Elvar sá um að lesa á alla pakkana meðan Ester Una varð æstari og æstari yfir því að fá ekki að opna alla pakkana sem voru undir tréinu. Og eins og venjulega var farið á annan í jólum í hádeginu í Garðabæ og svo í Grafarvoginn um kvöldið. Nú er síðasti dagur ársins 2007 að renna sitt skeið og viljum við þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur að gera þetta ár eins skemmtilegt og það varð. Óskum fjölskyldum okkar og vinum gleðilegs árs og friðar og sjáumst sem flest á komandi ári.
Þökkum fyrir allt á senn líðandi ári
Einar, Ása, Elvar Máni og Ester Una


sunnudagur, 23. desember 2007

Ekki fyrir þá sem trúa á jólasveina

Ég var eitthvað að vafra um á netinu og rakst á pistilinn sem ég mun láta fylgja hér að neðan.

Skyndilegt Andlát Jólasveinsins

Það eru um það bil 2 milljarðar barna (undir 18 ára aldri) í heiminum. Hinsvegar, þar sem Jólasveinninn heimsækir ekki múslima, hindúa, gyðinga eða búdda, þá minnkar vinnan fyrir jólasveininn niður í 15% af börnum heimsins, eða 378 milljónir. (skv. Population Reference Bureau). Að meðaltali eru 3,5 börn í hverju húsi sem gerir 108 milljón hús sem jólasveinnin þarf að heimsækja. Hér gerum við ráð fyrir að a.m.k. eitt gott barn sé í hverju húsi.
Jólasveinninn hefur 31 klukkustund á aðfaranótt jóla til að koma pökkunum til skila, þökk sé mismunandi tímabeltum og snúningi jarðar, ef hann ferðast frá austri til vestur (sem virðist rökrétt). Samkvæmt þessu þarf hann því að heimsækja 967,7 hús á hverri sekúndu. Þ.e. jólasveinninn hefur 1 ms til að leggja sleðanum, hoppa út, fara niður reykháfinn, koma pakkanum í skóinn, borða það sem honum er gefið, fara aftur upp reykháfinn, hoppa í sleðann og fara í næsta hús. Gerum ráð fyrir að hvert af þessum 108 milljón húsum eru jafndreifð um jörðina (sem er að sjálfsögðu mjög vafasöm nálgun en við samþykkjum til að nálga okkar reikninga). Við erum því að tala um 1255 metra á milli húsa eða samtals 121 milljón kílómetra og þá erum við ekki að taka með í reikninginn pissustopp og löggildar samningsbundnar kaffipásur. Þetta þýðir að sleði jólasveinsins ferðast á um 1046km/sek — 3.000 sinnum hraðar en hljóð. Til að sýna fram á hverju fjarstæðar þessar tölur eru þá fer formúlubíll u.þ.b. 0.01km/sek og hreindýr komast ekki nema upp í u.þ.b. 24km/klst. Einnig er mjög áhugavert að skoða þyngd sleðans. Gerum ráð fyrir því að hvert barn fái ekki meira en lítið lego (1000 gr) þá er sleðinn að bera tæplega 500.000 tonn, og þér er jólasveinninn sjálfur ekki reiknaður með. Hreindýr getur hinsvegar ekki togað meira en 150 kg og jafnvel þó við gerum ráð fyrir að í “flugi” þá geti hreindýr togað 10 sinnum meira þá er ekki séns að 8-10 hreindýr geti togað þennan sleða. Jólasveinninn þyrfti um það bil 360.000 hreindýr! Það eykur því þyngdina um önnur 54.000 tonn eða um það bil þyngd á stóru skemmtiferðaskipi. 600 þúsund tonn að ferðast á 1046km/sek í lofti býr til þónokkra loftmótsöðu — þetta myndi hita upp hreindýrin á svipaðan hátt og þegar geimskip flýgur inn í gufuhvolf jarðar. Fremstu hreindýrin myndi taka við 14,3 milljón milljónir milljóna júla af orku á hverri sekúndu. Þ.e. þau myndu brenna og næstum samstundis gera næsta par berskjaldað og brjóta hljóðmúrinn svona til gamans. Öll 360.000 hreindýrin myndu gufa upp á 4,26 ms eða rétt áður en jólasveinnin kæmi að húsi nr. 5 í röðinni. Ekki má gleyma því að hröðunin sem jólasveinninn fær þegar hann stoppar úr 1046km/sek á segjum 1 ms yrði um það bil 17.500G. 120 kílóa jólasveinn myndi límast aftast í sleðann með tæplega 90 milljón N krafti, samstundis brjóta öll bein í líkama hans og kremja öll líffæri. Því er rökrétt að álykta að ef jólasveinnin hafi einhverntíman verið til þá er hann núna dáinn vegna fólksfjölgunar.

laugardagur, 22. desember 2007

Bráðum koma blessuð jólin...


...börnin fara að hlakka til. Og það má með sanni segja að það sé nokkuð rétt. Jólastemmingin í bæjarholtinu er í hámarki. Þetta er samt sem áður búið að vera dálítið öfugsnúið miðað við jólin okkar áður. Til að mynda hefur jólatréið allt af verið sett upp á þollák, en jólatréið var eiginlega það fyrst sem var sett upp af skrautmunum. Ástæðan fyrir því var einfaldlega sú að við urðum að bjarga jólunum. Tréið okkar var úti á svölum á meðan veðurofsinn gekk yfir suður og vesturland, og var tréinu kippt inn svo við myndum ekki tapa því for good. Talandi um jólatréið, við erum með stærsta jólatré sem við höfum nokkurn tíman verið með, og gott ef þetta er ekki eitt stærsta jólatré sem hefur verið sett upp í bæjarholti 1-5. Það er meira að segja það stórt að við þurftum að klippa ofan af því til að toppurinn passaði ofaná það. Þetta er eitthvað tveir fimmtíu og eitthvað....sæll eigum við að ræða það eitthvað....nei hélt ekki....Elvar er svakalega spenntur yfir þessum öllu saman, sérstaklega þar sem hann er farinn að kunna að lesa sitthvað....Til Elvars...Frá Afa og ömmu....Mamma pabbi þessi stóri pakki er til mín, og svo er haldið áfram lestri. Mesta vandamálið héldum við að væri að halda Ester Unu frá tréinu og pökkunum en þar virðist ekki vera neitt stórmál, þó að hún komi annars slagið og nánast hendi sér í hrúguna. Margt annað er skemmtilegt og nýtt á þessum jólum, svo sem....fyrsta skiptið sem heimilisfaðirinn er í smá jólafríi fyrir jólin,það hefur ekki gerst í sjö síðustu jól. Nánast í fyrst skiptið sem heimilisfaðirinn er búinn að kaupa jólagjöfina fyrir heimilismóðurina fyrir aðfangadag. Fyrsta skiptið sem við erum svakalega afslöppuð fyrir þetta allt saman og erum ekkert að míga í okkur út af öllum sem á eftir að gera, sem by the way er eiginlega ekki neitt. Já og þá í fyrsta skiptið sem við erum eiginlega búin að gera allt sem við þurfum að gera fyrir þorláksmessu, takk fyrir takk. Þannig er það nú.....talandi um jakkaföt..humm ok. Ég fór með jakkafötin mín í hreinsun síðastliðinn þriðjudag klukkan átta um morguninn og hafi með jólakjólinn hennar Ester Unu. Nema hvað það er ekki nema frá sögum færandi að ég vippa mér inn læt afgreiðslukonuna hafa allt klabbið og fæ miðan sem segir til um það hvenær ég má ná í fötin. Ég þakka fyrir mig, sný mér undan og labba af stað í átt að hurðinni, tek miðann á loft og tékka á því hvort þau verði tilbúin á morgun eða hinn......en shit....á miðanum stóð "Eftir klukkan 16 - 24.12.07." Ég stoppaði og hugsaði og reyndi að rífja upp hvort mér væri nokkuð að misminna, hvort aðfangadagur væri ekki alveg örugglega 24.12. Sný mér við á puntinum og spyr konuna hvenær það sé lokað á aðfangadag ? Og hún svarar með sinni rámu rödd. " Það er annað hvort klukkan tólf eða eitt. Já ok en það stendur á miðanum mínum að ég eigi að koma og ná í þetta eftir klukkan sextán ? Já ok, komdu bara fyrir klukkan eitt þá. Loki þið klukkan eitt ? Jaa eða klukkan tólf. Hvort lokið þið klukkan tólf eða eitt ? Ég ætla ekki að koma klukkan eitt og þá hafi þið lokað klukkan tólf, er ekki í lagi að ég komi fyrir klukkan tólf ? jújú komdu þá fyrir klukkan tólf. sagði hún að lokum og var að verða fannst mér á henni að verða frekar pirrý pú. En ok....vá hvað það er að taka langan tíma að hreinsa ein jakkaföt og með því. Sex dagar, mér finnst það frekar mikið. Venjulega hef ég verið að fara með fötin, meira að segja aðeins seinna en þetta og verið að fá þau yfirleitt daginn eftir eða eftir tvo daga. En ekki sex daga. Og plús það að þetta er ein stærsta hreinsun í borginni. Þetta er allavega í síðasta skiptið sem ég fer með fötin mín í Fönn, bara svo ég komi því að hvaða fyrirtæki þetta er. Allavega jólahátíðin handan við hornið, allt klappað og klárt sem á að vera klappað og klárt. Var að enda við að sjóða hangikjötið þannig að þá er ekki eftir nema taka á móti jólum með drottinn sér við hlið, já og familyuna.

Óska öllum sem hafa haft þolinmæði í að lesa þau fáu blogg sem koma hingað inn, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Annars kemur inn jólapistill strax eftir jól þar sem farið verður yfir gjafalistann....right

Gleðileg jól þið fallega fólk sem lesið um okkur

Einar, Ása, Elvar Máni og Ester Una

þriðjudagur, 11. desember 2007

Margt að gerast

Jæja..það helsta sem gerst hefur hjá okkur undanfarna daga er það að Ása er byrjuð í nýju vinnunni, líkar svakalega vel í henni. Byrjað er að skreyta Holtið með seríum og fínerýi. Elvar kom heim í dag með glóðurauga eftir fyrstu slagsmálin, sem var að vísu gannislagur sem endaði á þann veg að félaginn gaf Elvari einn gú moren....fjólublátt auga og voða fínn. Ester Una kom einnig heim hálf krambúleruð, batt aftur fyrr sig og fékk svakalega kúlu á hausinn. Kúlu á stærð við Hafnarfjörð. Heimilisfaðirinn ennþá að reyna að ná áttum eftir það að vera kominn á fimmtugs.....nei ég meina fertugsaldurinn. Þangað til næst

Einsó Fertugi bráðum.....
yfir og út

þriðjudagur, 4. desember 2007

Ungur fallegur drengur fæddist


Það var fyrr nákvæmlega 262802 klukkustundum sem þennan heim leit undurfagur drengur dagsins ljós. Þessum dreng var gefið nafnið Einar Guðmundur, og er það ég sjálfur. Fyrir ykkur sem nennið ekki að reikna út klukkustundirnar þá skal ég létt ykkur það verk og segja ykkur að þetta gera 360 mánuðir, vá að ég sé búinn að lifa í 360 mánuði, það er nú töluvert að mér finnst. 360 mánuðir deilt í 12 mánuði gera 30 ár....já nákvæmlega ég er 30 ára í dag...shit hvað mér finnst það mikið. Ég man þegar mamma var 30 ára og mér finnst það eitthvað svo stutt síðan, þannig að innan tíðar verð ég orðinn jafn gamall mömmu....ekki það að ég sé að segja að mamma sé eitthvað gömul síður en svo, mamma mín er ung og falleg kona. Ég er búinn að halda upp á afmælið og vill ég þakka öllum þeim sem lögðu leið sína til mín, og hjálpa mér að sjá einhvern fögnuð í þessum ófögnuði. Ég hélt afmælispartý síðast liðinn laugardag þar sem ég fékk mína nánustu vini og einnig Rósu systir, Karen systir og svo kom mamma. Haldið var feiknar teiti og mikil gleði var við völd. Svo í kvöld bauð ég þeim sem ekki komust á laugardaginn, pabba og Sollu, tengdó og svo koma Inga Fjóla amma hennar Ásu. Ég vill enn og aftur þakka öllum þeim sem glöddust með mér á þessum tímamótum. Þakka enn og aftur
Einar Gamli Eir