Jæja..það helsta sem gerst hefur hjá okkur undanfarna daga er það að Ása er byrjuð í nýju vinnunni, líkar svakalega vel í henni. Byrjað er að skreyta Holtið með seríum og fínerýi. Elvar kom heim í dag með glóðurauga eftir fyrstu slagsmálin, sem var að vísu gannislagur sem endaði á þann veg að félaginn gaf Elvari einn gú moren....fjólublátt auga og voða fínn. Ester Una kom einnig heim hálf krambúleruð, batt aftur fyrr sig og fékk svakalega kúlu á hausinn. Kúlu á stærð við Hafnarfjörð. Heimilisfaðirinn ennþá að reyna að ná áttum eftir það að vera kominn á fimmtugs.....nei ég meina fertugsaldurinn. Þangað til næst
Einsó Fertugi bráðum.....
yfir og út
1 ummæli:
Hæ hæ fjölsk , það er aldeilis sem gengur á , eins gott að koma sér vel við þessa mafíu hehe , við sendum ykkur kærar kveðju og vonum nú að sárin grói vel :) gangi ykkur vel í lýsa upp holtið kv Heiða og fjölsk
ps: nýr fjölskyldu meðlimur ung stúlka leit dagsins ljós þann 6/12 faðir : Bjarni Þór :)
Skrifa ummæli