þriðjudagur, 4. desember 2007

Ungur fallegur drengur fæddist


Það var fyrr nákvæmlega 262802 klukkustundum sem þennan heim leit undurfagur drengur dagsins ljós. Þessum dreng var gefið nafnið Einar Guðmundur, og er það ég sjálfur. Fyrir ykkur sem nennið ekki að reikna út klukkustundirnar þá skal ég létt ykkur það verk og segja ykkur að þetta gera 360 mánuðir, vá að ég sé búinn að lifa í 360 mánuði, það er nú töluvert að mér finnst. 360 mánuðir deilt í 12 mánuði gera 30 ár....já nákvæmlega ég er 30 ára í dag...shit hvað mér finnst það mikið. Ég man þegar mamma var 30 ára og mér finnst það eitthvað svo stutt síðan, þannig að innan tíðar verð ég orðinn jafn gamall mömmu....ekki það að ég sé að segja að mamma sé eitthvað gömul síður en svo, mamma mín er ung og falleg kona. Ég er búinn að halda upp á afmælið og vill ég þakka öllum þeim sem lögðu leið sína til mín, og hjálpa mér að sjá einhvern fögnuð í þessum ófögnuði. Ég hélt afmælispartý síðast liðinn laugardag þar sem ég fékk mína nánustu vini og einnig Rósu systir, Karen systir og svo kom mamma. Haldið var feiknar teiti og mikil gleði var við völd. Svo í kvöld bauð ég þeim sem ekki komust á laugardaginn, pabba og Sollu, tengdó og svo koma Inga Fjóla amma hennar Ásu. Ég vill enn og aftur þakka öllum þeim sem glöddust með mér á þessum tímamótum. Þakka enn og aftur
Einar Gamli Eir

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já þetta er orðinn ansi hár aldur hjá þér Einar minn , svo koma gráu hárin ef þau er ekki þegar farin að láta sjá sig hehe , En við viljum óska þér til hamingju með daginn , já alla þessa 262802 daga :) Vonandi hefur hún Ása mín dekrað svoldið við þig í tilefni dagsins:) biðjum að heilsa öllum kær kveðja Heiða og fjölsk kefl

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.