mánudagur, 31. desember 2007

Árspitillinn 2007

Þá er komið að fyrsta pistli þessa árs.

Þetta er árið sem allir urðu ein ári eldri en þeir voru árið á undan. Hér er komið að einu ársuppgjörinu í viðbót,þetta er svona til að gefa ykkur innsýn inní það helst sem hefur drifið á daga okkar þetta árið og byrjum við núna, einn, tveir og nú.....

Janúar: árið byrjaði eiginlega á því að farið var með Ester Unu á bráðamóttökuna með gat á hausnum,og reyndist þetta ekki verða síðasta ferðina þangað á þessu ári. Ennig var það í jan að Elvar fékk svakalegt ofnæmi eftir að hundur stökk uppí anditið á honum og sleikti á honum augað ofl. Upp úr því fékk hann svakalegt ófnæmi svo ekki sé nú meira sagt.



Febrúar. Öskudagurinn var í feb með tilheyrandi undirbúningi, mikið var um búningaprófanir eins og sjá má. Einnig var farið í extreme room make over, á barnaherbergjunum. Þetta er eitthvað sem átti að gerast um leið og við vorum flutt inn á sínum tíma, en var það eitthvað farið að dragast. Voru herbergin máluð og eitthvað af nýjum hirzlum keyptar inn. Heimilismóðirin varð einnig ári eldri en hún var áður, en það var nú ekki að sjá á henni að hún væri neitt að eldast, alltaf jafn ungleg og sæt. Fórum í fyrstu sumarbústaðaferðina í febrúar með guðrúnu og ómari í vaðnes á gamlar slóðir notalegt og gaman

Mars: Mikil og stór Árshátíð á vegum Árdegis á Örkinni í Hveragerði þar sem hálandaleikar voru haldnir og fór lið okkar með sigur af hólmi, í flokki bestu búninganna, en ekki hvað. Annað man ég nú eftir að standi mikið upp úr í þessum mánuði



April: Mikill og stór mánuður. Elvari Máni varð sex ára, hvorki meira né minna, hvað þetta er nú fljótt að líða, svo ég segi nú ekki annað. Haldin var svakaleg veisla og konu tvær ömmur hans utan af landi, Una amma hans og Rósa langa amma hans. Einnig var mikið um gaurana af leikskólanum hans. Ester Una fór að nota kopp í þessum mánuði, það er nú nokkuð merkilegt og svo fórum við norður. Það var rosalega skemmtileg ferð þar sem það var fullt fullt af snjór og lékum við okkur öll börnin í honum. Alltaf jafn gaman og gott að fara norður til fjölskyldunnar.

Mai: í byrjun mai var ákveðið að snúa svalamálinu hræðileg við. Fyrir mai áttum við nefnilega ljótustu svalirnar á blokkinni, en við ákváðum að snúa þessu kvæði í kross eða nánst í heilann hring og taka svalirnar í extreme makeover, og gera þær að flottustu svölunum á blokkinni eða hreinlega flottustu í hafnarfirði takk fyrir takk. Og ég held að það hafi tekist með ágætum. Risessan nam land með sínum drukknu stjórnendum, nema hvað farið var að sjá hana eins og flest allir höfuðborgarbúar. Tignarleg græja þessi risessa. Haldinn var hér í mai árlegur viðburður sem er eurovision teitið,sem er orðinn hjá sumum fastur puntur í lífinu, orðið eins sjálfsagt hjá þeim eins og að eiga afmæli á hverju ári oþh. Elvar fór á slysó um miðjan mánuðinn þar sem nöglin var tekin af einu putta á honum eftir slys í leikskólanum.










Júní Farið var í fyrstu útileguna í júní og var haldið í Húsafell með hrikalega skemmtilegu fólki. Mikið var um glaum og gleði, borðað af góðum mat og ég veit ekki hvað og hvað, Andri og Lólí, takk fyrir lúllið.
Svakalegt partý var í leikskólanum hjá Elvari þar sem það sumarhátið þar sem grillaðar voru pylsur og hoppikastalar, söngur og endalaus gleði. Víkingahátíðin var haldin hátíðleg í Hafnarfirði í júní með öllu tilheyrandi og auðvitað létum við okkur ekki vanta. Við fórum með Erlu og Benedikt og Gabríel. Elvar og Benedikt fengu sverð og voru að skylmst og berjast eins og fornfeður okkar gerðu. Þjóðhátíðardagur Íslendinga er einmitt líka í þessum mánuði, nánar tiltekið þann sautjánda ef það hefur farið fram hjá eihverjum. Við fórum ekkert til reykjavíkur, enda skilur maður ekki í dag hvað fólk er að sækja þangað í mannmergð og vitleysu, þegar maður getur verið í fallegum og rólegum bæ eins og Hafnarfirði þar sem allir taka lífinu með jafnaðargeði, fyrir utan nokkra sem komu úr reykjavík...nei nei ég segji svona þetta var allavega mjög skemmtilegt og fóru krakkarnir í nokkur tæki og fengu nammi. Um kvöldið fórum við Elvar niður á Thorsplan þar sem skemmtidagskrá var og meðal annars hann Jógvan vinur hans Elvars.Hann fékk hjá honum áritað mynd og gat sýnt honum á þeir væru með eins klippingu. Í lok júní var farið í sumarbústaðferð með skemmtilegast fólki á íslandi. Erlu og Villa. Farið var á saman stað og árið áður en það er fyrir ykkur sem ekki lásuð síðasta árspistil, í Munaðarnesi. Eyddum við með þeim einni helgi í frábæru yfirlæti og rosalegum veitingum. Ekki leit þetta vel út á tímabili þar sem Ásu og Erlu var falið að kveikja upp í splúnku nýju kolagrilli, en það vildi nú ekki betur en svo að þær stöllur náðu ekki bara að kveikja uppí grillinu, þeim tókst að kveikja í grillinu og geri aðrir betur, frábær helgi verður lengi í minnum höfð.

Júlí: Þá fórum við erlendis til Svíveldis, í heimsókn til Adda, Rögnu og krakkana. Þetta var svakalega skemmtileg ferð og mikið skemmtilegt gert svo sem, tívoli, gögnuferð, menningarferð, sólbað, borðað, drukkið, hlegið, flogið, hoppað, myndað, fagnað, spilað, baðað, unnið og verslað. Þetta var mjög skemmtileg ferð og þökkum við fyrir okkur.

Ágúst. Byrjaði á því að Ester Una fékk gat á höfuðið, en var gert að sárum hennar heima fyrir enda foreldrar komnir í ultra æfingu á þessu sviði. Fjórum dögum seinna varð svo annað slys, þegar Elvar og Daníel voru að leika sér í ganni slag og Elvar kýli Daníel svo hann fékk blóðnasir. Ester Una hætti hjá dagmömmunni og byrjaði í leikskóla, byrjaði hún í sama leikskóla og Elvar var í. 18 ágúst afrekaði Elvar Máni töluvert og var það þegar hann fór og tók þátt í Latabæjarhlaupinu, og var hann svo ákveðinn í því að vinna þetta, hljóp hann og hljóp og tók fram úr fullt af fólk þangað til, á ákveðnum tímapunti var hugur hans farinn að bera hann töluvert langra en fæturnir þannig að hann steyptist á andlitið, sem betur fer á gras. En við það missti hann alla þá sem hann var búinn að taka, fram úr sér og gott betur en það. Hann fékk medalíu og var voðalega stolltur af sér þegar þessu var lokið. Í lok ágúst var farið uppá Skaga til vinafólks okkar, Elíasar og Ásthildar fórum við að sjá Hálandaleika sem voru með einhverjum heljarmennum að þykjast vera eitthvað, sem þeir voru að vísu.

September: Farið var til frænda okkar í Færeyjum á árshátíð á vegum Hátækni yfir heila helgi. Þar var meðal annars Hátæknileikar og var ein greinin sem keppt var í, búningakeppni og var allt lagt í sölunar og upp úr krafsinu voru fyrstu verðlaunum komið í hús. Þessi ferð verður ógleymanlega. Elvar byrjaði í skólanum, í fyrsta bekk í Hvaleyrarskóla, og hefur honum gengið mjög vel það sem af er þessu skólaári.
Heimilisfaðirinn byrjaði í nýju starfi innan fyrirtækisins og hætti að stjórna vöruhúsinu og tók við starfi sem deildarstjóri RMA deildar Árdegis.
Október: ekkert var svosum gert í þessum mánuði sem stendur upp úr.
Nóvember: Heimilisfaðirinn fór til Danaveldis á vegum vinnunnar og var aðallega verslað og verslað fyrir familyuna. Elvar kom í þessum mánuði heim úr skólanum með sitt fyrst glóðurauga eftir gannislagsmál í skólanum við vin sinn. Ása byrjaði í nýrri vinnu hjá Norvik, og er hún að vinna á fjármáladeildinni hjá þeim.

Desember: Mánuður ljóss og friðar, byrjaði á því að heimilisfaðirinn fór á fertugsaldurinn og var haldið á holtinu mikið teiti, þar sem fjölskyldu, vinum og vandamönnum var boðið til gleðskaps. Þakka ég öllum þeim sem heiðruðu mig á þessum tímamótum. Farið var frekar snemma í það að skreyta jólatréið aðallega vegna þess að það var að fjúka af svölunum í einu af þeim ofsaveðrum sem herjað hafa á skerið. Við áttum yndislega jól, með ótrúlega mikið af pökkum sem krakkarnir fengu og stórir. Elvar sá um að lesa á alla pakkana meðan Ester Una varð æstari og æstari yfir því að fá ekki að opna alla pakkana sem voru undir tréinu. Og eins og venjulega var farið á annan í jólum í hádeginu í Garðabæ og svo í Grafarvoginn um kvöldið. Nú er síðasti dagur ársins 2007 að renna sitt skeið og viljum við þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur að gera þetta ár eins skemmtilegt og það varð. Óskum fjölskyldum okkar og vinum gleðilegs árs og friðar og sjáumst sem flest á komandi ári.
Þökkum fyrir allt á senn líðandi ári
Einar, Ása, Elvar Máni og Ester Una


1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ elsku fjölskylda, gaman að lesa svona skemmtilegann pistill um skemmtilegt fólk..en eg meina hvernig mannstu allt þetta hvenær hver datt og svona?? hehhe mér finnst þetta voða sniðugt mig langar að gera svona lika. allavega gaman að fylgjast með ykkur elskurnar og gaman að fá ykkur i heimsókn i dag. ástarknúsímús frá okkur, hlíðargengið