...börnin fara að hlakka til. Og það má með sanni segja að það sé nokkuð rétt. Jólastemmingin í bæjarholtinu er í hámarki. Þetta er samt sem áður búið að vera dálítið öfugsnúið miðað við jólin okkar áður. Til að mynda hefur jólatréið allt af verið sett upp á þollák, en jólatréið var eiginlega það fyrst sem var sett upp af skrautmunum. Ástæðan fyrir því var einfaldlega sú að við urðum að bjarga jólunum. Tréið okkar var úti á svölum á meðan veðurofsinn gekk yfir suður og vesturland, og var tréinu kippt inn svo við myndum ekki tapa því for good. Talandi um jólatréið, við erum með stærsta jólatré sem við höfum nokkurn tíman verið með, og gott ef þetta er ekki eitt stærsta jólatré sem hefur verið sett upp í bæjarholti 1-5. Það er meira að segja það stórt að við þurftum að klippa ofan af því til að toppurinn passaði ofaná það. Þetta er eitthvað tveir fimmtíu og eitthvað....sæll eigum við að ræða það eitthvað....nei hélt ekki....Elvar er svakalega spenntur yfir þessum öllu saman, sérstaklega þar sem hann er farinn að kunna að lesa sitthvað....Til Elvars...Frá Afa og ömmu....Mamma pabbi þessi stóri pakki er til mín, og svo er haldið áfram lestri. Mesta vandamálið héldum við að væri að halda Ester Unu frá tréinu og pökkunum en þar virðist ekki vera neitt stórmál, þó að hún komi annars slagið og nánast hendi sér í hrúguna. Margt annað er skemmtilegt og nýtt á þessum jólum, svo sem....fyrsta skiptið sem heimilisfaðirinn er í smá jólafríi fyrir jólin,
það hefur ekki gerst í sjö síðustu jól. Nánast í fyrst skiptið sem heimilisfaðirinn er búinn að kaupa jólagjöfina fyrir heimilismóðurina fyrir aðfangadag. Fyrsta skiptið sem við erum svakalega afslöppuð fyrir þetta allt saman og erum ekkert að míga í okkur út af öllum sem á eftir að gera, sem by the way er eiginlega ekki neitt. Já og þá í fyrsta skiptið sem við erum eiginlega búin að gera allt sem við þurfum að gera fyrir þorláksmessu, takk fyrir takk. Þannig er það nú.....talandi um jakkaföt..humm ok. Ég fór með jakkafötin mín í hreinsun síðastliðinn þriðjudag klukkan átta um morguninn og hafi með jólakjólinn hennar Ester Unu. Nema hvað það er ekki nema frá sögum færandi að ég vippa mér inn læt afgreiðslukonuna hafa allt klabbið og fæ miðan sem segir til um það hvenær ég má ná í fötin. Ég þakka fyrir mig, sný mér undan og labba af stað í átt að hurðinni, tek miðann á loft og tékka á því hvort þau verði tilbúin á morgun eða hinn......en shit....á miðanum stóð "Eftir klukkan 16 - 24.12.07." Ég stoppaði og hugsaði og reyndi að rífja upp hvort mér væri nokkuð að misminna, hvort aðfangadagur væri ekki alveg örugglega 24.12. Sný mér við á puntinum og spyr konuna hvenær það sé lokað á aðfangadag ? Og hún svarar með sinni rámu rödd. " Það er annað hvort klukkan tólf eða eitt. Já ok en það stendur á miðanum mínum að ég eigi að koma og ná í þetta eftir klukkan sextán ? Já ok, komdu bara fyrir klukkan eitt þá. Loki þið klukkan eitt ? Jaa eða klukkan tólf. Hvort lokið þið klukkan tólf eða eitt ? Ég ætla ekki að koma klukkan eitt og þá hafi þið lokað klukkan tólf, er ekki í lagi að ég komi fyrir klukkan tólf ? jújú komdu þá fyrir klukkan tólf. sagði hún að lokum og var að verða fannst mér á henni að verða frekar pirrý pú. En ok....vá hvað það er að taka langan tíma að hreinsa ein jakkaföt og með því. Sex dagar, mér finnst það frekar mikið. Venjulega hef ég verið að fara með fötin, meira að segja aðeins seinna en þetta og verið að fá þau yfirleitt daginn eftir eða eftir tvo daga. En ekki sex daga. Og plús það að þetta er ein stærsta hreinsun í borginni. Þetta er allavega í síðasta skiptið sem ég fer með fötin mín í Fönn, bara svo ég komi því að hvaða fyrirtæki þetta er. Allavega jólahátíðin handan við hornið, allt klappað og klárt sem á að vera klappað og klárt. Var að enda við að sjóða hangikjötið þannig að þá er ekki eftir nema taka á móti jólum með drottinn sér við hlið, já og familyuna.
það hefur ekki gerst í sjö síðustu jól. Nánast í fyrst skiptið sem heimilisfaðirinn er búinn að kaupa jólagjöfina fyrir heimilismóðurina fyrir aðfangadag. Fyrsta skiptið sem við erum svakalega afslöppuð fyrir þetta allt saman og erum ekkert að míga í okkur út af öllum sem á eftir að gera, sem by the way er eiginlega ekki neitt. Já og þá í fyrsta skiptið sem við erum eiginlega búin að gera allt sem við þurfum að gera fyrir þorláksmessu, takk fyrir takk. Þannig er það nú.....talandi um jakkaföt..humm ok. Ég fór með jakkafötin mín í hreinsun síðastliðinn þriðjudag klukkan átta um morguninn og hafi með jólakjólinn hennar Ester Unu. Nema hvað það er ekki nema frá sögum færandi að ég vippa mér inn læt afgreiðslukonuna hafa allt klabbið og fæ miðan sem segir til um það hvenær ég má ná í fötin. Ég þakka fyrir mig, sný mér undan og labba af stað í átt að hurðinni, tek miðann á loft og tékka á því hvort þau verði tilbúin á morgun eða hinn......en shit....á miðanum stóð "Eftir klukkan 16 - 24.12.07." Ég stoppaði og hugsaði og reyndi að rífja upp hvort mér væri nokkuð að misminna, hvort aðfangadagur væri ekki alveg örugglega 24.12. Sný mér við á puntinum og spyr konuna hvenær það sé lokað á aðfangadag ? Og hún svarar með sinni rámu rödd. " Það er annað hvort klukkan tólf eða eitt. Já ok en það stendur á miðanum mínum að ég eigi að koma og ná í þetta eftir klukkan sextán ? Já ok, komdu bara fyrir klukkan eitt þá. Loki þið klukkan eitt ? Jaa eða klukkan tólf. Hvort lokið þið klukkan tólf eða eitt ? Ég ætla ekki að koma klukkan eitt og þá hafi þið lokað klukkan tólf, er ekki í lagi að ég komi fyrir klukkan tólf ? jújú komdu þá fyrir klukkan tólf. sagði hún að lokum og var að verða fannst mér á henni að verða frekar pirrý pú. En ok....vá hvað það er að taka langan tíma að hreinsa ein jakkaföt og með því. Sex dagar, mér finnst það frekar mikið. Venjulega hef ég verið að fara með fötin, meira að segja aðeins seinna en þetta og verið að fá þau yfirleitt daginn eftir eða eftir tvo daga. En ekki sex daga. Og plús það að þetta er ein stærsta hreinsun í borginni. Þetta er allavega í síðasta skiptið sem ég fer með fötin mín í Fönn, bara svo ég komi því að hvaða fyrirtæki þetta er. Allavega jólahátíðin handan við hornið, allt klappað og klárt sem á að vera klappað og klárt. Var að enda við að sjóða hangikjötið þannig að þá er ekki eftir nema taka á móti jólum með drottinn sér við hlið, já og familyuna.Óska öllum sem hafa haft þolinmæði í að lesa þau fáu blogg sem koma hingað inn, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Annars kemur inn jólapistill strax eftir jól þar sem farið verður yfir gjafalistann....right
Gleðileg jól þið fallega fólk sem lesið um okkur
Einar, Ása, Elvar Máni og Ester Una
Engin ummæli:
Skrifa ummæli