Ég var eitthvað að vafra um á netinu og rakst á pistilinn sem ég mun láta fylgja hér að neðan.
Skyndilegt Andlát Jólasveinsins
Það eru um það bil 2 milljarðar barna (undir 18 ára aldri) í heiminum. Hinsvegar, þar sem Jólasveinninn heimsækir ekki múslima, hindúa, gyðinga eða búdda, þá minnkar vinnan fyrir jólasveininn niður í 15% af börnum heimsins, eða 378 milljónir. (skv. Population Reference Bureau). Að meðaltali eru 3,5 börn í hverju húsi sem gerir 108 milljón hús sem jólasveinnin þarf að heimsækja. Hér gerum við ráð fyrir að a.m.k. eitt gott barn sé í hverju húsi.
Jólasveinninn hefur 31 klukkustund á aðfaranótt jóla til að koma pökkunum til skila, þökk sé mismunandi tímabeltum og snúningi jarðar, ef hann ferðast frá austri til vestur (sem virðist rökrétt). Samkvæmt þessu þarf hann því að heimsækja 967,7 hús á hverri sekúndu. Þ.e. jólasveinninn hefur 1 ms til að leggja sleðanum, hoppa út, fara niður reykháfinn, koma pakkanum í skóinn, borða það sem honum er gefið, fara aftur upp reykháfinn, hoppa í sleðann og fara í næsta hús. Gerum ráð fyrir að hvert af þessum 108 milljón húsum eru jafndreifð um jörðina (sem er að sjálfsögðu mjög vafasöm nálgun en við samþykkjum til að nálga okkar reikninga). Við erum því að tala um 1255 metra á milli húsa eða samtals 121 milljón kílómetra og þá erum við ekki að taka með í reikninginn pissustopp og löggildar samningsbundnar kaffipásur. Þetta þýðir að sleði jólasveinsins ferðast á um 1046km/sek — 3.000 sinnum hraðar en hljóð. Til að sýna fram á hverju fjarstæðar þessar tölur eru þá fer formúlubíll u.þ.b. 0.01km/sek og hreindýr komast ekki nema upp í u.þ.b. 24km/klst. Einnig er mjög áhugavert að skoða þyngd sleðans. Gerum ráð fyrir því að hvert barn fái ekki meira en lítið lego (1000 gr) þá er sleðinn að bera tæplega 500.000 tonn, og þér er jólasveinninn sjálfur ekki reiknaður með. Hreindýr getur hinsvegar ekki togað meira en 150 kg og jafnvel þó við gerum ráð fyrir að í “flugi” þá geti hreindýr togað 10 sinnum meira þá er ekki séns að 8-10 hreindýr geti togað þennan sleða. Jólasveinninn þyrfti um það bil 360.000 hreindýr! Það eykur því þyngdina um önnur 54.000 tonn eða um það bil þyngd á stóru skemmtiferðaskipi. 600 þúsund tonn að ferðast á 1046km/sek í lofti býr til þónokkra loftmótsöðu — þetta myndi hita upp hreindýrin á svipaðan hátt og þegar geimskip flýgur inn í gufuhvolf jarðar. Fremstu hreindýrin myndi taka við 14,3 milljón milljónir milljóna júla af orku á hverri sekúndu. Þ.e. þau myndu brenna og næstum samstundis gera næsta par berskjaldað og brjóta hljóðmúrinn svona til gamans. Öll 360.000 hreindýrin myndu gufa upp á 4,26 ms eða rétt áður en jólasveinnin kæmi að húsi nr. 5 í röðinni. Ekki má gleyma því að hröðunin sem jólasveinninn fær þegar hann stoppar úr 1046km/sek á segjum 1 ms yrði um það bil 17.500G. 120 kílóa jólasveinn myndi límast aftast í sleðann með tæplega 90 milljón N krafti, samstundis brjóta öll bein í líkama hans og kremja öll líffæri. Því er rökrétt að álykta að ef jólasveinnin hafi einhverntíman verið til þá er hann núna dáinn vegna fólksfjölgunar.
2 ummæli:
Hæ hæ og hó engar fréttir frá Bæjarholts-mafíunni ??? alla vegana Gleðilegt ár fjölsk og hafið það bara gott á nýju ári :) kv Heiða og co
Enn og aftur hæ og hó kannski hó hó , maður er nú farinn að kunna þetta blogg utanbóka , síðasta blogg var í fyrra, kommon :) koma svo fréttir , kær kveðja til ykkar allra , kv Heiða og co
Skrifa ummæli