http://picasaweb.google.com/einareir/BStaAferVaNes23FebrRar2007/photo#5035174251944160498
laugardagur, 24. febrúar 2007
Sumarbústaðaferð
http://picasaweb.google.com/einareir/BStaAferVaNes23FebrRar2007/photo#5035174251944160498
miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Afmæli, öskudagur og veikindi
laugardagur, 17. febrúar 2007
Komin mynd á herbergin
kv Einar og Ása
http://picasaweb.google.com/einareir/NJuHerberginBJarholtinu/photo#5032631635599894978
Eurovison úrslit jahúúú..!!!
Jæja gott fólk þetta fór eins og ég var búinn að spá, auðvitað fer Eiríkur "Accept" Rauði Hauksson út fyrir okkar hönd og enginn annar. Var samt voðalega skemmtilega til þess að hugsa að 77,7% þeirra sem voru í efstu þrem sætunum voru hommar. Hefði verið magnað ef Jónsi hefði líka verið á meðal þriggja efstu þá hefðum við verið með 100% hommaúrslit. Nei nei ég er bara að grínast smá Jónsi er ekki hommi þetta er fínn strákur og leiðinlegt fyrir hann að komast ekki áfram með sitt framlag. En ég er bara ánægður að þetta fór sem það fór, og líka gaman að heyra aðeins af laginu á Engilsaxnesku. Til hamingju, þá er það bara næsta skref að komast upp úr forkeppninni en ég held að það verið ekki vandamál fyrir Rauða LjóniðSæl að sinni EE
Það er að færast mynd..
föstudagur, 16. febrúar 2007
Klár strákur.
Kveðjur af Holtinu.
fimmtudagur, 15. febrúar 2007
Fréttastofa stöðvar 2 ( NFS ) að missa sig

Þetta er eitthvað sem ég fékk ábendingu um, var ekki búinn að sjá þetta. En þetta er frekar fyndið og vandræðalegt. Ýtið á slóðina hér..njótið vel. http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/section?Category=VEFMIDLAR&Template=VefTV&ChannelID=10&ProgID=29829&ProgType=1002&ItemID=26450&progCItems=1
Álver eða ekki Álver ??
Ein heitasta umræðan í Hafnarfirði þessa dagana er hvort stækka eigi álverið eða ekki. Og fáum við sem eigum heima í firðinum að kjósa um það. Ég er ekki búinn að gera upp hug minn varðandi þetta, því svo mörgum af mínum spurningum er enn ósvarað og ekki veit ég hvort ég fái einhvern tímann svör við þeim öllum. Eitt er það sem ég hef velt einna mest fyrir mér, og eru rannsóknir sem ég sá á netinu sem Heilbrigðisnefnd eða stofnun Hafnarfjarðar og kópavogs hafa verið að gera. Mig minnir frá árinu 2000 og rannsóknarstaður er einmitt Holtið í Hafnarfirði, og svo skemmtilega vill til að það er einmitt þar sem við búum. Koma fram, ef það er rétt, ógnvænlegar niðurstöður. Það sem er mælt í þessum rannsóknum er til dæmis, megnun af völdum koltvíoxið, flúors og svifryks. Árið 2001 fórum mælingar á þessu fimm mánuði í röð yfir hættumörk, og einnig hefur þetta verið að gerast, samkvæmt þessum niðurstöðum, nokkrum sinnum á ári. Vill ég taka fram samt sem áður að eflaust er hluti af svifryksmenguninni til komið vegna bilaumferðar af Reykjanesbrautinni. Þá spyr ég...ef Alcan er eins og raunin er ( eftir minni bestu vitund ) búið fullkomnum hreinsunnarbúnaði til að hreinsa útblástur sem fer í andrúmsloftið nái ekki að halda þessu undir hættumörkum eru þeir þá eitthvað frekar að ná að halda þessu niðri þegar álverið er orðið meira en helmingi stærra ??? á það sem er að fara frá Þeim þá ekki bara eftir að verða helmingi meira. þetta er það sem ég hef verið að velta einna mest fyrir mér.
Auðvitað er fjárhagslega gott fyrir Hafnfirðinga að fá stækkun á álverið, tekjur bæjarins yrðu svakalega miklar, beinar tekjur bæjarins geta numið um 800 milljónum á ári. Alcan hefur staðið mjög mikið á bakvið bæinn og íbúa varðandi niðurgreiðslur á íþróttaiðkun barna í firðinum og ýmsum viðburðum í bænum, og það til fyrirmyndar. Ekki væri nú gott ef stækkun yrði felld og á næstu fimmtán árum færi álverið. Og hvað þá ? Þá þurfum við sem búum í þessu bæjarfélagi að fara að greiða fyrir til dæmis íþróttaiðkun barnana, og eflaust myndi ýmislegt annað hækka til að vega upp á móti tekjunum sem bærinn hefði þá misst vegna flutnings eða lokun álversins. Svo ekki sé talað um alla þá sem myndu missa vinnuna. Eiga einungis Hafnfirðingar að fá að kjósa um þetta eða á að gera þessa að þjóðaratkvæðagreiðslu ?? Á íbúðarverð hér á holtinu svo ég tali nú ekki um á Völlunum eftir að hrapa í kjölfar stækkunnar, vill einhver búa með risa stórt álver í bakgarðinum hjá sér. Það er eitt og annað sem maður hefur verið að velta fyrir sér, en enga afgerandi niðurstöðu fengið í þær pælingar. Mjög naumt hefur verið á skoðanakönnunum sem hafa verið gerðar þannig að það er spurning hvoru megin þetta lendir, það er allavega eitthvað sem erfitt er að spá um. Það hafa allir skoðun á þessum máli, það er bara það versta að ég veit ekki hver mín skoðun er. Er einhver sem getur hjálpað mér ?? Hér er hægt að kynna sér nánar um hvað málið er að snúast á báða bóga. Með eða á móti ?? Það er stóra spurningin http://alcan.is/?PageID=221 http://www.solistraumi.org/
miðvikudagur, 14. febrúar 2007
Menn með leiðindi...
jæja það er bara verið að taka á manni, já já svona eru þið þá. Ég vil byrja á því að biðja alla Svía fyrirgefningar á því að kenna Bergen við Svíþjóð, svo vil ég biðja alla Norsara fyrirgefningar á því að kenna Bergen við Svíþjóð og svo vil að lokum biðjast fyrirgefningar til allra þeirra bloglesenda minna sem ég hef við að fylla af rangupplýsingum um landafræði. Að lokum við ég biðja Pálma, Helgu, Eika Hauks og Íslensku þjóðina fyrirgefningar á að segja að tólf ár séu síðan Bergen ævintýrið í NOREGI var en auðvitað eru það tuttugu og eitt ár síðan, stærðfræðin aðeins að fara með mig. Held samt að ástæðan fyrir þessum misskilningi með árafjöldan sé sú að ég upplifi mig mun yngri en ég er í raun.Svo til að slá botninn í þetta vil ég þakka lesendum blogsins fyrir þessar ábendingar.
kv Einar Eir
þriðjudagur, 13. febrúar 2007
Euróvísan
Þá er komið að einu Júróvisíon ári og virðist stefna í það að toppað það sem var í fyrra. Það er samt eitt og annað sem ég er ekki alveg að skilja varðandi þetta lagaval sem er nú í gangi. Rosalega frábært að Eiki Hauks hafi tekið sig til og ákveðið að vera með, tólf árum eftir að hann var síðast í þessari stöðu með Pálma og Helgu Möller. Ekki slæmur brautriðjanda hópur þetta. Að vísu er þetta ekki alveg rétt hjá mér það voru ekki Eiríkur og Helga sem sungu í sjónvarpssal 1986 heldur söng Pálmi þetta einn, en svo voru gerðar breytingar áður en farið var út til að "meika það" og vinna þessa keppni, Eiríki og Helgu bætt með til að dubba aðeins Pálma gamla upp. Það má kannski einnig minnast á það fyrst ég er byrjaður að tala um þessu gömlu kempur og keppni, að 1986 var keppnin háð í Bergen í Svíþjóð. Tókst það með ágætum hefði ég ekki viljað að Pálmi hefði farið einn út, þá efast ég um að lagið myndi lifa í minningu fólks eins og það gerir í dag. Þessi keppni er mikið breytt frá því þetta var og kannski ágætt. En í gegnum tíðina hafa verið að fara oft út í keppnir ótrúlega leiðinleg lög svo ég sé nú bara harðorður. Ég vona að ég sé ekki að særa einhverja últra harða júróviríon aðdáendur með því að segja þetta en ég held að ég sé ekki að fara með einhverjar fleipur varðandi það.
Og ef það á að senda hann Hafstein Þórólfsson með lagið "Þú tryllir mig" þá er enn eitt lagið komið í vondulagakeppnina. Ég er ekki að skilja hvernig þetta komst í gegn um síur dómnefndar. HALLÓ !!! voru ekki fleiri lög til að velja úr eða hvað, ég er ekki að skilja þetta. Hræðilegt lag. "þú tryllir mig jejejeja" ekki skemmtiefni. Svo voru nú fleiri sem hefðu alveg mátt sitja heima og horfa frekar á alvöru talenta sem kunna sitt fag í staðinn fyrir að gera sig hálfpartinn að fíflum uppi á sviði fyrir framan þjóðina og ætla ég ekki að tjá mig frekar um það, þar sem þessir aðilar komust ekki í úrslit, sem betur fer segði ég nú bara því þá hefði ég gefið tónlist uppá bátinn. Ok smá upptalning. Eldur með Friðriki Ómari, fínt lag sem viðlagið festist aðeins við hausinn á manni, gæti farið út, mögulega vegna þess að hann er "öðruvísi" og já hann er ágætis söngvari. Bjarta brosið, Andri Bergmann. Halló hver er þetta eiginlega. Var eins og hálfgerður spítukarl á sviðinu átti eitthvað erfitt með sig. Ekki að fýla hann, sorry Bergmannsætt, sorry. Blómabörn Bríet Sunna, þetta er eitt af þeim lögum sem ég nenni hreinlega ekki að tjá mig um, hræðilega fölsk, sorry. Áfram, Sjonni Brink, þetta er ofurtöffari sem er að heilla allar mæður ungra stelpna, allar vilja fá Sjonna sem tengdason, góður titill þetta "Sjonni Brínk tengdasonur ísland" hann fær allavega prik og stig frá kerlunum. Heiða, ég og heilinn minn. var nú ekki að kaupa þetta lag þegar ég heyrðí það fyrst, svo fór ég að hlusta á það aftur og svo aftur, pældi eins í textanum og fattaði þá að þetta er hrikalega súrt lag, en jafnframt alveg frábært, veit samt ekki hvort það sé góður útflutningur fyrir okkur að senda þá í júró. Matti papi, húsin hafa augu, þetta er það sem ég er búinn að vera með á heilanum í tvær vikur "því húúúúsin hafa augu, babababababababa" algert klísturslag, afhverju var ekki bara samið um ást eins og í öllum hinum. Nei nei þetta er frábær tilbreyting í textaflóruna að þá þennan texta. Jónsi, segðu mér. Eins og með Bríeti þá nenni ég eiginlega ekki að tjá mig um þetta lag, þetta er ágætisvæla, en hann er búinn að reyna svipað með Heaven, það var ekki að ganga þannig að við skulum ekki senda hann aftur með eitthvað vælulag.
EIRÍKUR HAUKSSON OFURTÖFFARI, ég les í lófa mínum. Þetta er framlag Íslands til Söngvakeppni Efrópska sjónvarpsstöðva 2007 og ekkert annað. Þetta er risinn, töffarinn, naglinn, coolistinn, kallinn, maðurinn, já þetta er maðurinn sem við eigum að senda út, ég er alveg harður á því að hann eigi eftir að komast nokkuð langt með þetta úti. Hlakka mjög mikið til að heyra þetta lag á engilsaxnesku, það verður forvitnilegt að sjá það. en svo ég spái kannksi aðeins með úrslitin næstu helgi þá held ég að það það fari á þennanveg
1. Eiríkur Hauksson
2. Jónsi
3. Friðrik Ómar.
4. Heiða.
En þetta er einungis mín skoðun og speglar á engan hátt skoðuð heimilisins.
Varðandi hið árlega Evróvision teiti þá er ekkert planað þessa helgi, en fólki er velkomið að koma og horfa með. En til ykkar hinna sem málið varðar þá verður náttúrulega hið árlega á sínum stað og engu haggað með það.
Bið að hilsa Einar Eir
Breytingar í Bæjarholti
húrra fyrir okkur
biðjum að heilsa ykkur öllum. Einar og Ása
sunnudagur, 11. febrúar 2007
Hvernig á að setja comment, skrifa skilaboð til okkar
jæja þá er það comment kennsla 101, eða réttara sagt kennsla í því hvernig þig getið skrifað skilaboð á síðuna okkar. Nokkuð hefur borið á því að fólk sé að kvarta yfir því að það sé ekki hægt að setja skilaboð á síðuna okkar. En hér koma einmitt leiðbeiningar hvernig gera á þetta. Fyrir neðan hverja ... stendur "comment" þið ýtið á það og þá er komið inn í annað umhverfi. í glugganum sem er til vinstri skrifi þið eitthvað sem þið viljið koma á framfæri við okkur, eða ábendingar varðandi síðuna eða senda okkur kveðju eða hvað sem er. Svo þegar því er lokið er frekar neðarlega hægra megin og þar stendur "Choose an identity" þar setjið hak í "other" þá birtist gluggi sem stendur fyrir framan "name" þar er nafnið sett, og svo er hinn glugginn sem fyrir framan stendur " your web page " þar getið þið sett til dæmis barnalands síðuna ykkar eða einhverjar aðra síðu sem þið eruð með og viljið deila með okkur.
En þá eru komnar leiðbeiningar um hvernig á að setja skilaboð á síðuna
Með kærri kveðju og von um að þið farið nú að setja comment inn á síðuna
Einar Eir
laugardagur, 10. febrúar 2007
Stórverkefni hrint afstað.
Í bili.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)