
jæja þá er Elvar Máni kominn í nýja herbergið, og er svakalega ánægður. Þetta er búið að vera aðeins meira en að segja það. Við gerðum okkur ekki grein fyrir því hvað það var mikið drasl sem var búið að safnast upp hjá okkur á aðeins einu og hálfu ári. Það er búið að fylla tvo statíon fjölskyldu bíla af haugamat, búið að selja svefnsófann og meira á leiðinni inn á barnaland. Ef einhverjum er að vanta eitthvað barnadót þá endilega hafið samband við Ásu 844-9009 það er eitthvað til fyrir alla.

En eins og ég sagði hér að ofan þá er þetta búið að vera meira en að segja það. Það magn sem Elvar er búinn að safna að sér var lýgilegt, allsstaðar í öllum hornum og undir öllu og inni í öllu var eitthvað dót sem hann var að geyma, en nú er mikið af því á leið til himna. lokið var við að mála í gærkveldi og svo var innflutningur í kvöld hjá honum og fyrst nóttin í nótt. Íbúðin er búin að líta út eins og eftir

kjarnorkusprengju og er það ekkert grín eins og sjá má hér til hliðar. Þá er næsta mál sem er á dagskrá hér það er að koma Ester Unu í gamla herbergið hans Elvars. Það er allavega búið að losa það að mestu núna þannig að það er þá að fara að mála. Ef einhverjum er að vanta vinnu við að mála þá endilega hafði samband og ég skal redda málingu og bjór. Allavega ágætis dagverki lokið í dag,
húrra fyrir okkur
biðjum að heilsa ykkur öllum. Einar og Ása
2 ummæli:
Flott herbergi hjá þér Elvar Máni , hlýtur að vera gaman að fá svona alveg nýtt herbergi :) Einar hemm ég er nú alveg sannfærð að hann Friðrik komist áfram , eiginlega meira eftir því sem ég hlusta oftar á , Eiríkur var góður hér í dentíð , held að hann sé úr sér genginn jamm , tek það fram að þetta er engöngu mín skoðun :) Hvað finnst svo Ásu minni um þetta?? kveðja Heiða móðursystir
Já Heiða ef það er eithvað sem ég er hætt að hafa skoðun á þá er það júróvision, held einhvernvegin alltaf með glötuðu lögunum, mér finnst t.d lagið hjá Heiðu og dr. Gunna nokkuð skemmtilegt;)
Skrifa ummæli