föstudagur, 16. febrúar 2007

Klár strákur.


Það er alltaf gott að fá staðfestingu á því að maður eigi klárt barn. Auðvitað er barnið manns klárasta barn í heimi, en allt gott að fá að heyra það fá einhverjum öðrum. Ása fór í foreldraviðtal í Vesturkot í dag en það er einmitt leikskólinn hans Elvars fyrir þá sem ekki vita það. Þar lýsti deildarstjórinn Elvari Mána sem rosalega klárum strák. Einn af fáum sem eru farnir að skrifa nafnið sitt sjálfur, og svo er hann rosalega góður drengur. Hann vill ekki skilja stelpurnar eftir í leikjum þó svo hinir strákarnir vilji það, og svo er hann rosalega vinsæll í hópnum. Hann er einnig komin með "kærustu" sem er hálfgerður "stoker". Hún er alltaf með honum og bíður eftir honum á morgnana ef hann er seinn í skólann, og spyr og spyr hvenær hann komi. Elvar segir að hún sé stundum að pirra hann, hvort það sé vegna þess að hún sé alltaf hangandi í honum eða hvað, það vitum við ekki alveg. Eins sagði hann okkur að hún væri stundum að reyna að kyssa hann, skil ekki að alveg hvers vegna hann er ekki að vilja það. Hann er allavega mjög klár þessi drengur sem við eigum og eru við í skýjum með það, að við séum þá á réttri leið með hann hvað varðar meðal annars uppeldið á honum..go go við, staðfesting á að við séum gera eitthvað rétt.

Kveðjur af Holtinu.

Engin ummæli: