jæja það er bara verið að taka á manni, já já svona eru þið þá. Ég vil byrja á því að biðja alla Svía fyrirgefningar á því að kenna Bergen við Svíþjóð, svo vil ég biðja alla Norsara fyrirgefningar á því að kenna Bergen við Svíþjóð og svo vil að lokum biðjast fyrirgefningar til allra þeirra bloglesenda minna sem ég hef við að fylla af rangupplýsingum um landafræði. Að lokum við ég biðja Pálma, Helgu, Eika Hauks og Íslensku þjóðina fyrirgefningar á að segja að tólf ár séu síðan Bergen ævintýrið í NOREGI var en auðvitað eru það tuttugu og eitt ár síðan, stærðfræðin aðeins að fara með mig. Held samt að ástæðan fyrir þessum misskilningi með árafjöldan sé sú að ég upplifi mig mun yngri en ég er í raun.Svo til að slá botninn í þetta vil ég þakka lesendum blogsins fyrir þessar ábendingar.
kv Einar Eir
Engin ummæli:
Skrifa ummæli