þriðjudagur, 13. febrúar 2007

Euróvísan


Þá er komið að einu Júróvisíon ári og virðist stefna í það að toppað það sem var í fyrra. Það er samt eitt og annað sem ég er ekki alveg að skilja varðandi þetta lagaval sem er nú í gangi. Rosalega frábært að Eiki Hauks hafi tekið sig til og ákveðið að vera með, tólf árum eftir að hann var síðast í þessari stöðu með Pálma og Helgu Möller. Ekki slæmur brautriðjanda hópur þetta. Að vísu er þetta ekki alveg rétt hjá mér það voru ekki Eiríkur og Helga sem sungu í sjónvarpssal 1986 heldur söng Pálmi þetta einn, en svo voru gerðar breytingar áður en farið var út til að "meika það" og vinna þessa keppni, Eiríki og Helgu bætt með til að dubba aðeins Pálma gamla upp. Það má kannski einnig minnast á það fyrst ég er byrjaður að tala um þessu gömlu kempur og keppni, að 1986 var keppnin háð í Bergen í Svíþjóð. Tókst það með ágætum hefði ég ekki viljað að Pálmi hefði farið einn út, þá efast ég um að lagið myndi lifa í minningu fólks eins og það gerir í dag. Þessi keppni er mikið breytt frá því þetta var og kannski ágætt. En í gegnum tíðina hafa verið að fara oft út í keppnir ótrúlega leiðinleg lög svo ég sé nú bara harðorður. Ég vona að ég sé ekki að særa einhverja últra harða júróviríon aðdáendur með því að segja þetta en ég held að ég sé ekki að fara með einhverjar fleipur varðandi það. Og ef það á að senda hann Hafstein Þórólfsson með lagið "Þú tryllir mig" þá er enn eitt lagið komið í vondulagakeppnina. Ég er ekki að skilja hvernig þetta komst í gegn um síur dómnefndar. HALLÓ !!! voru ekki fleiri lög til að velja úr eða hvað, ég er ekki að skilja þetta. Hræðilegt lag. "þú tryllir mig jejejeja" ekki skemmtiefni. Svo voru nú fleiri sem hefðu alveg mátt sitja heima og horfa frekar á alvöru talenta sem kunna sitt fag í staðinn fyrir að gera sig hálfpartinn að fíflum uppi á sviði fyrir framan þjóðina og ætla ég ekki að tjá mig frekar um það, þar sem þessir aðilar komust ekki í úrslit, sem betur fer segði ég nú bara því þá hefði ég gefið tónlist uppá bátinn. Ok smá upptalning. Eldur með Friðriki Ómari, fínt lag sem viðlagið festist aðeins við hausinn á manni, gæti farið út, mögulega vegna þess að hann er "öðruvísi" og já hann er ágætis söngvari. Bjarta brosið, Andri Bergmann. Halló hver er þetta eiginlega. Var eins og hálfgerður spítukarl á sviðinu átti eitthvað erfitt með sig. Ekki að fýla hann, sorry Bergmannsætt, sorry. Blómabörn Bríet Sunna, þetta er eitt af þeim lögum sem ég nenni hreinlega ekki að tjá mig um, hræðilega fölsk, sorry. Áfram, Sjonni Brink, þetta er ofurtöffari sem er að heilla allar mæður ungra stelpna, allar vilja fá Sjonna sem tengdason, góður titill þetta "Sjonni Brínk tengdasonur ísland" hann fær allavega prik og stig frá kerlunum. Heiða, ég og heilinn minn. var nú ekki að kaupa þetta lag þegar ég heyrðí það fyrst, svo fór ég að hlusta á það aftur og svo aftur, pældi eins í textanum og fattaði þá að þetta er hrikalega súrt lag, en jafnframt alveg frábært, veit samt ekki hvort það sé góður útflutningur fyrir okkur að senda þá í júró. Matti papi, húsin hafa augu, þetta er það sem ég er búinn að vera með á heilanum í tvær vikur "því húúúúsin hafa augu, babababababababa" algert klísturslag, afhverju var ekki bara samið um ást eins og í öllum hinum. Nei nei þetta er frábær tilbreyting í textaflóruna að þá þennan texta. Jónsi, segðu mér. Eins og með Bríeti þá nenni ég eiginlega ekki að tjá mig um þetta lag, þetta er ágætisvæla, en hann er búinn að reyna svipað með Heaven, það var ekki að ganga þannig að við skulum ekki senda hann aftur með eitthvað vælulag.
EIRÍKUR HAUKSSON OFURTÖFFARI, ég les í lófa mínum. Þetta er framlag Íslands til Söngvakeppni Efrópska sjónvarpsstöðva 2007 og ekkert annað. Þetta er risinn, töffarinn, naglinn, coolistinn, kallinn, maðurinn, já þetta er maðurinn sem við eigum að senda út, ég er alveg harður á því að hann eigi eftir að komast nokkuð langt með þetta úti. Hlakka mjög mikið til að heyra þetta lag á engilsaxnesku, það verður forvitnilegt að sjá það. en svo ég spái kannksi aðeins með úrslitin næstu helgi þá held ég að það það fari á þennanveg

1. Eiríkur Hauksson

2. Jónsi

3. Friðrik Ómar.

4. Heiða.

En þetta er einungis mín skoðun og speglar á engan hátt skoðuð heimilisins.

Varðandi hið árlega Evróvision teiti þá er ekkert planað þessa helgi, en fólki er velkomið að koma og horfa með. En til ykkar hinna sem málið varðar þá verður náttúrulega hið árlega á sínum stað og engu haggað með það.

Bið að hilsa Einar Eir

2 ummæli:

Adólf Kristjánsson sagði...

Ekki það að ég ætli að vera með eh leiðindi en síðast þegar ég vissi þá var Bergen á vesturströnd Noregs ...

Nafnlaus sagði...

Ekki að ég ætli heldur að vera með leiðindi, en eru ekki meira en tólf ár síðan eurovision ´86?
En ef þetta gerpi hann Friðrik Ómar vinnur þá lofa ég að mæta aldrei í eurovisionpartý ever again, maðurinn er djöfullinn sjálfur í mannsmynd, eina vitið væri að senda Súkkat eða hugsanlega Sverri Stormsker